7.5.2007 | 17:26
Live Earth tónleikarnir
Í Fréttblaðinu á laugardaginn var sagt frá því á forðsiðu að 7. júlí verði haldnir tónleikar undnir nafninu Live Earth í nokkrum helstu borgum heims. Reykjavík kæmi til greina sem einn af tónleikastöðunum (þó varla sé hún ein af helstu borgum veraldar). Beðið hefur verið um styrk frá stjórnvöldum til að halda tónleikana en því erindi hefur ekki verið svarað. Reiknað er með að tveir miljarðar fylgist með tónleikunum í beinni útsendiningu. Í þessu sama blaði skrifar Andri Snær Magnason grein um umhverfismál og víkur að þessum tónleikum og er hneykslaður mjög á tregðu stjórnvalda til að greiða götu þeirra. Hann tekur fram að hingað eigi að koma erlendar ofurstjörnur. Ýmsir bloggarar hafa tekið undir með Andra Snæ og ná ekki upp í nefið á sér fyrir reiði út í ríkisstjórnina vondu.
Umræddir tónleikar verða haldnir fyrst og fremst til að vekja ríkisstjórnir og þjóðir heims til aðgerða til að sporna gegn hlýnun jarðarinnar að því sagt er.
Áður en lengra er haldið vil ég taka þetta fram:
Ég er mikill náttúruunandi. Ég hef sýnt það í verki með því að heimsækja nánast allar byggðir landsins, farið inn í hvern fjörð og hvern afdal, og nokkuð hef ég farið um hálendið en á það þó eftir að miklu leyti. Hvar sem ég hef farið hef ég verið vakandi yfir náttúrfarslegum sérkennum hverrar sveitar. Ég hef fylgst með íslensku veðurfari frá degi til dags í áratugi og lesið allt sem ég hef komið höndum yfir um það efni og einnig um annað náttúrufar, eldgos, jarðskjálfta, skriðuföll, snjóflóð, vatnahlaup og allt hvað þetta hefur.
Þá hef ég sökkt mér niður í byggðasögu hvers héraðs og auk þess hef ég lesið margt og mikið um sögu þjóðarinnar almennt að ógleymdum þjóðsögunum sem sagðar hafa verið um allar sveitir. Loks hef ég síðustu árin kynnt mér ættfræði og landfræðilegan uppruna helstu ætta í landinu.
Ég hef einnig gert í því að fræðast um gróður fósturjarðarinnar og þessi fáu landdýr sem hér lifa og um alla fuglana í loftinu og fiskana í sjónum. Mér finnst líka unaðslegt að lesa um lifnaðarhætti íslenskra skordýra og annarra undirmálskvikinda. Sögu Framsóknarflokksins hef ég í alveg sérstökum hávegum.
Allt er þetta mér síður en svo dauður vísdómur, þurr fróðleikur, heldur lifandi kvika mikils næmleika fyrir náttúru landsins og þeirri þjóð sem hefur lifað hér frá fyrstu tíð. Blæbrigði hvers héraðs hvað náttúru og veðurfar snertir hef ég heilmikið á tilfinningunni og þau eru mér uppspretta gleði og fagnaðar hvern einasta dag á öllum árstíðum.
Þetta vildi ég nú sagt hafa ef einhverjum dytti í hug að saka mig um það að unna ekki íslenskri náttturu.
Og ég hef viðbjóð á stóriðjustefnu íslenskra stjórnvalda.
Mér hryllir hins vegar við tilhugsuninni einni um að hér verði haldnir rokktónleikar með erlendum ofurstjörnum og tvö þúsund miljónir hýsterískra aðdáenda fylgist með þeim.
Ég hef aldrei almennilega gert grein fyrir skoðunum mínum í loftslagsmálunum. Mér hefur fundist að ég yrði að gera það nokkuð rækilega og vandlega og hef hreinlega ekki gefið mér tóm til þess.
Aðalatriðin get ég þó tíundað.
Ég efast ekki um að hlýnað hefur á jörðinni og að umsvif mannanna eigi hlut í þeirri hlýnun.
Ég hef fylgst með veðurfari lengi og breytingum á því og engin fræði finnst mér göfugri en loftslagsfræðin ef ég má verða ofurlítið sentimental. Hins vegar hef ég megnustu andstyggð á því hvernig loftslagsfræðin hefur verið notuð í alþjólegu stórpólitísku fári með öllum þeim öfgum og fanatík sem fylgir frelsunarpólitík. Því okkur er vissulega sagt að heimurinn sé að farast og það verði að bjarga honum. (Ég hef líka óbeit á þeirri grunnhyggni og fljótfærni sem veður uppi í fjölmiðlum og annars staðar og birtist í því að öll tilbriðgi í veðurfari eru umsvifalaust skrifuð á reikning "gróðurhúsaáhrifanna" svo jafnvel venjuelg hitamet eru talinn óræk sönnun fyrir þeim).
Og þá eru leiddir fram þeir bjargvæddir sem helst geta víst frelsað heiminnn. Alþjóðlegar ofurstjörnur í rokki!
Ég gæti gubbað.
Ekki þarf þó að efast um eldlegan áhuga þeirra á þessum monsterkonsert sem fá glýju í augun eða öllu heldur kling í eyrun yfir poppi og rokki hvers konar sem reyndar er að verða sannkölluð alheimsplága varla vægari en hlýnun jarðarinnar. Tregða stjórnvalda til að leyfa þessa tónleika verður líka auðvitað vatn á myllu þeirra sem vilja nota allt sem tönn á festir sínum eigin stjórnmálaskoðunum til framdráttar. Mínar stjórnmálaskoðanir hafa alltaf verið til vinstri en þær koma þessu máli bara ekkert við. Ég er bæði á móti ríkisstjórninni og tónleikunum.
Tvö þúsund miljónir hysterískra aðdáenda sem allir hugsa á sömu rokkuðu nótunum!
Menn geta rétt ímyndað sér hvernig umræðan um loftslagsmálin verður hér á landi eftir slíkan voða atburð.
Nógu eru hún einsýn og ofstækisleg fyrir.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 19:41 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Alveg er þetta frábær grein hjá þér Sigurður.
100% sammála skoðunum þínum í loftslagsmálum, en ekki alveg eins sammála varðandi stóriðju, en menn þurfa ekki endilega að vera sammála um allt :-)
Hvað skyldi það valda mikilli aukningu CO2 að flyta allan þennan skara sem von var á til landsins vegna tónleikanna?
Enn og aftur, takk fyrir hressilega grein. Engin lognmolla!
Ágúst H Bjarnason, 7.5.2007 kl. 18:00
Ég er algjörlega ósammála þér varðandi tónleikahaldið! Það væri frábært að fá þessa tónleika hingað og alveg óskiljanleg þessi tregða stórnvalda! Þessir tónleikar eru í anda Live Aid og það væri frábært að fá þá hingað til Reykjavikur.
Verst að ég verð ekki á landinu...
Heiða B. Heiðars, 7.5.2007 kl. 19:35
Ég vildi ekki heldur vera á landinu!
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2007 kl. 19:41
Þetta er frábær grein hjá þér Nimbus. Það veður á þér og það er mjög gott veður.
Svava frá Strandbergi , 7.5.2007 kl. 20:07
Forðaðu þér þá
Heiða B. Heiðars, 7.5.2007 kl. 20:33
finndu þér lítinn krúttlegan dal og farðu í felur
halkatla, 7.5.2007 kl. 20:49
Ágætu bloggvinir! Afhverju segiði ekki bara það sem þið eruð að hugsa:Farðu til fjandans Nimbus fyrir að vera á móti rokki og róli!
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2007 kl. 21:23
Farðu til fjandans fyrir að vera á móti rokki og róli
Ertu eitthvað sérstaklega á móti því?
Heiða B. Heiðars, 7.5.2007 kl. 21:29
Nei.
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2007 kl. 22:38
Ekki þá fara til fjandans
Heiða B. Heiðars, 7.5.2007 kl. 23:32
Nei.
Hlynur Þór Magnússon, 7.5.2007 kl. 23:34
Víst! Frekjukallar
Heiða B. Heiðars, 7.5.2007 kl. 23:38
Eru athugasemdarar að hrökkva af hjörunum á þessari síðu?
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2007 kl. 23:44
Jamm sýnist það Hlynur kom greinilega bara til að ibba gogg! Mætti halda að maðurinn væri Framsóknarmaður!!
Heiða B. Heiðars, 7.5.2007 kl. 23:47
Vel á minnst. Skilur nokkur þetta nýja heimsóknarsýstem. Hver er munurinn á heimsóknum og innliti? Hvað er verið að gera einfalda hluti flókna. Svo er ekki hægt að sjá neitt í stjórnborðinu, bara á forsíðum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2007 kl. 23:57
hehumm, ég myndi velja dal umfram rokk og ról alla daga vikunnar - þetta var bara vinsamleg ábending
samt er ég algerlega ósammála grein þinni varðandi rokktónleikana, mér finnst að þeir eiga að vera en rólega liðið getur bara haldið sig heima á meðan.
ég skil ekki heldur hvað er að gerast með kerfið, ég kæri mig ekki um að sjá allar þessar tölur á forsíðunni
halkatla, 8.5.2007 kl. 00:10
Ég færi frekar á rokktónleika en í dal...enda erum við bara að tala um þennan eina dag! Hef aldrei farið á Live Earth tónleika en komið í flesta dali landsins!
Og nei, botna ekkert í þessum tölum og vill ekki sjá þær!
Heiða B. Heiðars, 8.5.2007 kl. 00:20
Það er bara málið, ef einhver nennir að skilja það, að ég vil ekki vera að blanda loftslagsmálunum við rokktónleika. Allt í lagi með heimsfrægar stjörnur á rokktónleikum í Reykjavík út af fyrir sig, en ekki tengda loftslagsmálunum. Og ég er ekki rólegur maður heldur einmitt með órólegasta móti. Og sðast en ekki síst börnin mín ung og smá: Ég man vel þear rokkið kom í heiminn! Ég heyrði það í kanaútvarpinu. Sjá hér: http://nimbus.blog.is/blog/nimbus/entry/31114/
Sigurður Þór Guðjónsson, 8.5.2007 kl. 00:42
ég dái rokk og ról en ég nenni varla að hafa fyrir því að fara á tónleika. Kallið mig bara hið versta nörd, mér er sama. Á vissan hátt er betra að þeir séu ekki, þá slepp ég við að finna afsökun fyrir því afhverju ég mæti ekki
halkatla, 8.5.2007 kl. 01:13
Er ekki alveg að fatta......... af hverju má ekki nota rokkið til að vekja athygli á gróðurhúsaáhrifum eins og hungursneyð? Ef málið er að rokkstjörnur séu að gera sig breiðar með því að mótmæla þá spyr ég bara helgar tilgangurinn ekki meðalið? Eða ef meðalið helgar tilganginn er það ekki bara jafn mikið í lagi?
Ævar Rafn Kjartansson, 8.5.2007 kl. 01:14
Ég býst við að nimbus myndi mæta fjallhress á tónleikana ef þeir væru ekki tengdir loftslagsmálum??
halkatla, 8.5.2007 kl. 01:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.