Afsökunarbeiðni

Þegar ég var strákur í Gaggó Aust var þar einn eldri nemandi sem var algjör stjarna í skólanum. Hann var alveg hryllilega gáfaður og skemmtilegur og svo mælskur að það leið yfir stelpurnar þegar hann steig í ræðustól en þar vildi hann helst alltaf vera. Stelpurnar, sem nú eru reyndar orðnar stútungskellíngar, voru líka bálskotnar í honum. Eiginlega gerði þessi maður allt vitlaust í skólanum með því einu að vera bara til. 

Það sópaði beinlínis að honum. Líka utan skólans enda virtist hann vera tíu árum eldri en hann var. Ekki síst gerði hann garðinn frægan í Keflavíkurgöngum þar sem hann kjaftaði sig með glans inn á aðal númerin sem voru auðvitað öll afgamlir kommar og einstakir gáfumenn.

Ég keypti mér jakka eins og þessi maður átti.

Hann var sem sagt eitt af mínun átrúnaðargoðum þegar ég var í gaggó.

Hann hét Jón Sigurðsson og allir spáðu honum glæstum frama.

Svo liðu árin. Löng og ströng fyrir alla. 

Þegar Jón Sigurðsson opnar nú munninn vellur út úr honum vélræn munnræpan með þvílikum frösum og endemum að menn eru farnir að kalla hann páfagaukinn. Hann þykir nú lang leiðinlegasti og hallærislegasti stjórnmálamaður landsins. 

Hvað varð af brilljant og skemmtilega manninum sem einu sinni hreif alla með sér?

Hvar hafa dagar lífsins lit sínum glatað? Gerir pólitíkin alla svona leiðinlega?

Ég biðst innilega forláts á því að hafa fallið fram fyrir þessu átrúnaðargoði í æsku minni.

Þá var maður nú ungur og vitlaus.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

þarf að hugsa mig vel og lengi um hvort þetta er afsakanlegt!!

Heiða B. Heiðars, 5.5.2007 kl. 23:06

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, sumt er algerlega óafsakanlegt!

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.5.2007 kl. 23:46

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En fyndið Anna! Ég var einmitt að hugsa til þín og fór að skoða síðuna þína bara rétt í þessu. Telepatí?! Frábær pælingin hjá þér um prestana og kynskipti. Mig langaði að kommentera á það en það var útrunnið en samt fæ ég núna að kommentera!  Áreiðanlega telepatí. En hálfgert síkópatí hjá sérunum.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.5.2007 kl. 00:54

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Mætti ekki endurskíra pólitíkina og kalla hana mónótík?

Hrannar Baldursson, 6.5.2007 kl. 01:53

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Og ég sem var svo skotin í Jóni Sigurðssyni þegar ég var 13 ára og langaði að verða kærastan hans, en þó það færi ekki á þann veginn tengdst ég honum samt því föðurafi barnanna minna sálugi og Jón Sig. voru systkinabörn.  Jón  og afinn framliðni sem líka hét Jón eða fullu nafni Jón Rafn, voru svo líkir að þeir hefðu getað verið tvíburar. Rafn sonur minn er ansi líkur Jóni  Sig. og afa sínum sáluga. Jóni Rafni.

En sem betur fer hefur Rafn ekki erft biluðu grammófónsplötu- genin  sem Jón er haldinn,   eins og ég nefndi svo, í kommenti hjá þér um daginn, sem betur fer. 

Svava frá Strandbergi , 6.5.2007 kl. 03:57

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Góður pistill hjá þér nafni. Ég kannast við Jón og veit að hann er ágætlega gefinn.  Mín skýring er sú að hann líti á það sem hverja aðra vinnu  að vera framsóknarmaður  og hafi enga sannfæringu fyrir því sem hann er að segja.

Sigurður Þórðarson, 6.5.2007 kl. 06:06

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Strandberg: Ég er sem sagt meira og minna að hafa samband við frændfólk sem er náskylt Jóni Sig! Ég held annars að Jón Sig, sé alveg jafn skemmtilegur meðal kunningja sinna og hann var en njóti sín bara ekki sem opinber stjórnmálafígúra. Jón var víst ansi sexi í Gaggó Aust með trefilinn fræga.    

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.5.2007 kl. 11:41

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hurrrðu mig! Áttu link af góðu korti af berginu sem hún Gerður Rósa hangir á yfir Souda flóa? 

Heiða B. Heiðars, 6.5.2007 kl. 14:56

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Heldur betur!

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.5.2007 kl. 16:16

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Vá! Þetta er æðislegt kort! Takk

Heiða B. Heiðars, 6.5.2007 kl. 17:18

11 Smámynd: Pétur Tyrfingsson

Þegar ég kom í Fylkinguna var Jón auðvitað farinn í Framsókn. En ég man eftir að sú skemmtisaga var oft sögð af því hvernig núverandi Framsóknarformaður sagði skilið við ungsósíalistanna vegna þess að hann gat ekki sætt sig við þá lausn Marx á hagfræðilegri mótsögn Adam Smith og David Ricardos sem kölluð hefur verið "vinnukenningin um gildi". Þetta er flókið mál og margslungið. En þetta þótti fyndir vegna þess að fæstir fylgismenn sósíaldemókratískra flokka og kommúnistaflokka hafa nokkurn tíma skilið þessa kenningu Marx réttum skilningi. Brandarinn var að maðurinn þyrfti að hlaupa alla leið yfir til SÍS. Nóg hefði verið að vaxa upp úr Æskulýðsflylkingunni vegna aldurs. - En skemmtilegur þótti hann alltaf eftir því sem eldri félagar mínir sögðu.

Pétur Tyrfingsson, 6.5.2007 kl. 17:34

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki skil ég nú baun í þessu!

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.5.2007 kl. 18:21

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Villi geit! Þú verður að gera yfirbót fyrir þessar "rakalausu dylgjur" og "svívirðilega mannorðsróg" með því að líta á tölvufjandann minn sem er líklega orðin heilabiluð. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2007 kl. 17:58

14 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Ég efa það ekki að Jón Sigurðsson sé gáfaður. Hann sagði einu sinni við vin minn þá ritstjóri Tímans sáluga "ég geri ekki meira fyrir flokkinn en flokkurinn gerir fyrir mig"! Hafandi verið seðlabankastjóri, ritstjóri og nú ókosinn ráðherra er hann væntanlega búinn að njóta góðs frá flokknum. En það að vera gáfaður hefur ekkert með hag þjóðarinnar að gera. Hann tók ekki að sér uppskeynihlutverkið fyrir Halldór nema hafa fengið borgað fyrirfram. Og þegar hann kemst ekki á þing hefur hann lífeyri frá seðlabankanum, sendiherrastöðu eða eitthvað annað sem er þegar búið að tryggja honum. Verst hvað maðurinn er orðinn pirraður á öllum sem sprikla ekki með honum honum........

Ævar Rafn Kjartansson, 8.5.2007 kl. 01:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband