Fjölmiðlum er hætta búin

Í  Laugardagsþætti Ríkisútvarpsins var Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fréttamaður að segja frá ástandi fjölmiðla í Rússlandi en hún sat þing alþjóðasambands blaðamanna í Moskvu. Lýsingar hennar eru hrollvekjandi en koma þó ekki á óvart. Í stuttu máli hefur hún eftir rússneskum blaðamönnum að ströng ritskoðun ríki í Rússlandi. Ritskoðun markaðarins. Með dyggum stuðningi stjórnvalda. Það eru auglýsendur, auðmenn, sem ráða alveg hvað er sagt í fjölmiðlum. Blaðamenn eru miskunnarlaust myrtir ef þeir segja frá óþægilegum málum og í níu af hverjum tíu tilvikum kemst aldrei upp hverjir frömdu ódæðið.

Konur eru að taka yfir blaðamennskustarfið, áttatíu prósent allra blaðamanna eru konur. Ástæðan er þó ekki jafnréttisleg. Hún er blátt áfram sú að blaðamennska er illa launuð og nýtur lítillar virðingar og það þrýstir auðvitað konum í starfið.

Þóra Kristín lauk máli sinu með þeirri aðvörun að þau vandamál sem eru af ganga að blaðamennsku í Rússlandi dauðri, alræði markaðarins og yfirgangur peningaaflanna, sé einnig fyrir hendi hér á landi og þau öfl muni fara eins langt og þau komast ef þeim er ekki veitt aðhald.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

´... og það þrýstir auðvitað konum í starfið.´
afHVERJU??
Er í alvörunni orsakasamband þarna á milli?

gerður rósa gunnarsdóttir, 16.6.2007 kl. 20:55

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Afhverju?? Segi ég líka.

Svava frá Strandbergi , 16.6.2007 kl. 23:33

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurður.

Ég hlustaði um stund á þessa lýsingu í útvarpinu í dag og mér datt margt í hug sem átti við hér á landi í því sambandi og er ekki hissa á því að Þóra skuli hafa bent á þá staðreynd.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.6.2007 kl. 23:37

4 identicon

Ýmislegt í lýsingu þinni á við um BNA, hér hvar peningamenn stjórna öllu sem sagt er. Og blaðamenn og stjórnmálamenn sem ganga út af peningadansinum eru ekki skotnir, heldur bara reknir með undirspili trompetta og flugeldasýningum. Svona eins og ef einhver veðurfræðingur segir rigna á Akureyri, þá er hinn sami tekinn fyrir og sendur suður með det samme.

Olafur Thordarson (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 23:46

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég veit ekki afhverju þetta er, ég er aðallega að endursegja það sem sagt var í útvarpinu. En eitthvað var það að blaðamennska væri láglaunastarf og lítils metið í Rússíá af karlolígörkunum og er ekki konum hér á landi einmitt mikð í láglaunastörfum. Ætli sé ekki eitthvað svipað þarna. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.6.2007 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband