Á efnahagur að ráða ritfrelsinu?

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs ætlar að höfða meiðyrðamál gegn tímaritunum Mannlífi og Ísafold vegna skrifa þeirra um hann. Segist Gunnar ætla að krefjast hárra skaðabóta. Blaðið hefur eftir honum: "Ég ætla að láta þá borga. Það er það eina sem þetta fólk skilur." Hann segir líka:" Svo er spurning hvort það er eitthvað af þeim að hafa. Ég hef mestar áhyggjur af því." Eitthvað þessu líkt sagði Gunnar einnig í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi.

Taka verður með í reikningin að Gunnar er reiður og finnst að vegið hafi verið að sér. Og ekki ætla ég að segja neitt um réttmæti greinanna í þessum tímaritum sem ég hef ekki einu sinni lesið. Það er samt eitt sem mér finnst ískyggilegt við orð Gunnars ekki síst vegna þess að þau eru endurómur þess sem oft hefur komið upp áður. Það er að þegar einhverjum mektarmanni, sem hefur völd og peninga, finnst að sér vegið og hótar meiðyrðamáli skýtur hann oft að þeim sem þeir ætla að lögsækja einmitt með þessu: Svo eruð þið ekki einu sinni borgunarmenn fyrir orðum ykkar. 

Þá spyr ég: Á fjárhagur manna að ráða því hverjir mega gagnrýna og koma við kaunin á öðrum en því athæfi fylgir alltaf viss hætta á því að menn fari yfir strikið. En eiga þeir sem ekki eru ríkir að gæta sín alveg sérstaklega vel að stíga ekki á tærnar á ríka fólkinu bara af því að þeir eru ekki sjálfir ríkir en þeir sem peningana hafa geta látið móðan mása enda eru þeir "borgunarmenn" fyrir orðum sínum?

Það gætir mjög vaxandi tilhneigingar í þá átt að þeir sem öllu ráða í krafti valda og peninga vilji að bókstaflega allt sé metið eftir peningum: líka rétturinn til að gagnrýna opinberlega. 

Í því felst að það séu bara þeir ríku sem megi tala eða yfirleitt hafa sig í frammi. Þeir sem ekki eru "borgunarmenn" fyrir orðum sínum í beinhörðum peningum eiga að steinhalda kjafti.

Þetta er ískyggilegt tímanna tákn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Ólafsson

"Þeir sem ekki eru "borgunarmenn" fyrir orðum sínum í beinhörðum peningum eiga að steinalda kjafti."

Alltaf annað slagið dúkka líka upp gróusögur úr Kópavogi Birgissonar um að mönnum sé líka hollast að halda kjafti og vera þægir ætli þeir sér að fá úthlutað lóð. Hljómar svolítið eins og það eimi enn af arfleifð gamalla tíma hér á landi sem vonandi heyra brátt sögunni til. En kannski losnum við aldrei alveg við vald peninganna því það er alveg sama hvaða jafnaðarstefna er prófuð, alltaf verða svínin aðeins jafnari en hin dýrin, eins og í sögunni góðu.

Karl Ólafsson, 15.6.2007 kl. 20:08

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Nú er kominn kraftur í karl. Haltu ótrauður áfram þínum góðu blogggreinum. Var sérlega hrifinn af grein þinni um daginn sem fjallaði um Víkingasveitina, hafðu þökk fyrir. 

Þorkell Sigurjónsson, 15.6.2007 kl. 20:17

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er fín grein hjá þér, Sigurður, hér er einmitt málefni sem glöggur hugur sem þinn (og rithöfundur sjálfur) kemur auga á, að gengur ekki. Það er líka níðangurslegt, ef ríkir menn fara að tíðka það að lögsækja jafnvel góða blaðamenn og rithöfunda og heimta af þeim háar fébætur í "manngjöld" fyrir rykið sem fellur á hvítflibba þeirra fyrrnefndu.

Mér hefur þótt Gunnar Birgisson um margt skemmtilegur karakter og afar öflug jarðýta á framkvæmda- og stjórnmálasviði, sömuleiðis með munninn fyrir neðan nefið, en svalur nokkuð, lifandi andstæða reglugerðaþjónsins og skeytingalítill um ófrjó og neikvæð "umræðustjórnmál". Hann á samt ekki að tala niður gagnrýnendur með hótunum um að rýja þá, fátæklingana, inn að skinninu. Hitt er annað mál, að fjölmiðlar geta fallið í þá freistni að slá upp hneykslisfréttum, meðfram til að auðgast á aukinni sölu, og þá er eðlilegt, ef litlar eða engar málsbætur voru fyrir eitilharðri gagnrýni, að láta svo fésterka fjölmiðla gjalda fyrir ofurmæli sín, séu þau refsiverð.

Jón Valur Jensson, 16.6.2007 kl. 01:37

4 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Þetta er mikið rétt.

gerður rósa gunnarsdóttir, 16.6.2007 kl. 08:51

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

 

Karl, nú er illt í efni! En þó öll bloggdýrin í skóginum eigi að vera vinir verð ég að forðherðast í afstöðu minni. Ég vil ekki að bloggvinalistinn lengist ur hófi, sem mér finnst alltaf minna á óverðskuldaðar orðuskreytingar á herforingja, og er því að reyna að halda honum í skefjum, ákveðið að þeir sem ekki blogga langa lengi fara af honum.   Þessu ráða sem sagt fraumstæðar hagkvæmnisástæður en ekki neitt persónulegt. Einfalt ráð til að komast aftur inn á listann er að blogga og blogga eins og brjálæðingur! Týndi sonurinn verður boðinn velkominn eftir iðran sína einlæga og bloggumbót!

Ég vil svo taka það skýrt fram  að ég er ekkert á móti Gunnari I. Birgissyni. Ég er bara að benda á þessa tilhneigingu að það er að verða eins og peningar eigi líka að ráða bæði siðferði og réttlæti í landinu. Og svo minni ég aftur á að Gunnar er sár og telur ómaklega að sér vegið og orð hans eiga að skiljast í því ljósi hvað hann varðar persónulega en hugmyndir hans eru ekki nýjar af nálinni og það er þessi hugmynd, að peningar eigi að skipta  máli fyrir dómi, sem ég er að ýja að. Reyndar er eitt atriði sem mér finnst ranglátt. Ákveðin sekt í dómsmáli getur kostað einhvern mann aleiguna en ekki verið högg á vatni þegar ríkur maður á í hlut. Menn standa sem sagt misjafnt að vigi í dómsmálum eftir fjárhag. Mér finnst að dómarar eigi að taka mikið tillit til fjárhags fólks í sektardómum. Loks vil ég bæta því við að ég hef hina mestu skömm á öllu því sem hægt er að bendla við "gula pressu".

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.6.2007 kl. 11:08

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Mikið rétt, segi ég eins og Gerður.

Svava frá Strandbergi , 16.6.2007 kl. 13:04

7 Smámynd: Karl Ólafsson

Allt í góðu. Sjálfur hef ég bara 3svar óskað eftir bloggvináttu að þér meðtöldum og hafði í upphafi  bara hugsað það dæmi til þess að eiga til hlekki á þá sem mer finnst gaman að lesa blogg hjá. Svo hef ég ekkert bætt við listann í langan tíma því maður lærir smám saman þennan fasta lestrarhring utan að og þá þjónar hann ekki mínum upphaflega tilgangi lengur. Þú ferð ekki af þeim lista hjá mér í bráð, þ.e. á meðan þú ert svona aktífur og tekur á athyglisverðum málum.

Þetta með sektarupphæðirnar er einmitt athyglisverður punktur hjá þér líka og hárréttur. Ég man eftur sögum af arabískum olíuprinsum í háskólum í USA sem lögðu bílum sínum alltaf við dyr aðalinngangs skólans og borguðu svo bara sektirnar fyirir þetta eins og hvert annað stöðumælagjald. Þegar ég bjó í Bretlandi var einmitt umræða í gangi um að stilla sektarupphæðir eftir efnahag. Man ekki betur en að þeir hafi gert tilraunir með þetta fyrirkomulag líka. Mig minnir að þeir hafi vísað í finnsk fordæmi fyirir þessu.

Ég hef ekkert á móti Gunnari I Birgissyni heldur og efa ekki að hann hefur stýrt Kópavogi farsællega til þeirrar stórkostlegu uppbyggingar sem við í nágrannasveitafélögunum verðum vitni að þegar við keyrum þar í gegn (eða vinnum þar eins og ég gerði um 3ja ára skeið). Það sem mér leiðist hins vegar alltaf er að verða vitni að vinagreiðum og augljósum peningavalds- eða hagsmunatengslaráðstöfunum hvar í sveit sem er og hjá hvaða fólki sem er.

Karl Ólafsson, 16.6.2007 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband