11.8.2007 | 20:08
Glaður og góður dagur
Upp úr hádeginu kom frændi minn til mín og dró mig út í skemmtilega göngu meðfram sjónum. Þegar ég skildi við hann var veðrið svo gott að ég rölti niður í bæ. Þá var gaypride-gangan einmitt á ferðinni. Ég tók þátt í henni í fyrra en það stóð ekki beinlínis til að þessu sinni af mjög svo persónulegum ástæðum.
Eigi að síður var aldeilis gaman að sjá allt þetta fólk á öllum aldri og margir voru með börn. Lögreglan segir að fimmtíu þúsund hafi verið í bænum en sumir segja að þeir hafi verið enn þá fleiri.
Hvort heldur sem var þá segir þessi mikli fjöldi aðeins eitt:
Þeir sem þarna voru eru velviljaðir hommum og lesbíum.
Enginn var að mótmæla þeim eða var með stæla. Allir voru glaðir og góðir. Og það gefur augaleið að þau börn sem þarna voru og eiga kannski eftir að koma aftur með foreldrum sínum í seinni göngur alast upp í samþykki og velvild í garð samkynhneigðra. Sem sagt í kristilegum anda. Þannig er þjóðin að meginhluta.
Og hvað haldiði! Gekk ég ekki fram á báðar systur mínar í Lækjargötu, glaðar og góðar eins og allir aðrir. Þetta er lítill heimur en alls ekki svo galinn! Ekki spillti að það var sól og 17 stiga hiti um miðjann daginn.
Fámennur en harðskeyttur hópur manna elur stöðugt á fordómum og hatri í garð samkynheigðra, oft undir merkjum trúarinnar. Þessir menn eru algjörlega skotheldir í skoðunum sínum og taka aldrei neinum rökum né sönsum og virðast vera fullkomlega ómeðvitaðir um hvað þeir virka fráhrindandi á allt sæmilegt fólk sem ekki er haldið trúarbrjálsemi í garð samkynhneigðra.
Hingað til hefur samfélagið sýnt þessum hópi ótrúlegt langlundargeð og þolinmæði. Hvað á það að ganga lengi? Þó ég sé með afbrigðum friðsamur maður finnst mér álitamál hvort ekki sé kominn tími til að útskúfa þessu hommahatursliði úr kristinna manna tölu af svona álíka hógværð og lítillæti og það úthúðar hommum og lesbíum. Æ, það þykist víst elska einstaklingana sem eru hommar og lesbíur en hata þá synd sem þeir eiga að hafa ratað í með kynhneigð sinni. En það er bara ekki þannig. Þetta fólk hatar einfaldlega homma og lesbíur. Af allri sálu sinni og af öllu hjarta sínu. Og ekkert með það bara. Eins gott að það segi það hreint út en sleppi þessu kærleikskjaftæði.
Því það er bara kjaftæði sem enginn innistæða er fyrir.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Þú gengur nú lengra í skrifum þínum en ég á minni síðu - en við höfum átt svipaða reynslu í dag sé ég.
Halldóra Halldórsdóttir, 11.8.2007 kl. 20:50
Já, langt genur hann, en um hvaða einstaklinga er hann að tala þarna í síðustu klausunum? Einhverja Íslendinga? Hverjir eru það, Sigurður bloggvinur minn, sem þú vilt útskúfa úr kristinna manna tölu?
Jón Valur Jensson, 12.8.2007 kl. 02:15
Frábær færsla Sigurður!
Er ekki nokkuð ljóst um hverja hann talar? Lestu aftur... hægt!
Heiða B. Heiðars, 12.8.2007 kl. 08:22
Segi það líka, frábær færsla hjá þér, sérstaklega kaflinn varðandi hinn harðskeytta fordómahóp.
Svava frá Strandbergi , 12.8.2007 kl. 09:46
Heldurðu að hann sé að meina þig, Jón Valur? :)
Sigurði finnst það greinilega bara ekki mjög kristilegt athæfi að setja út á homma og lesbíur fyrir kynhneigð sína. Það er nokkuð ljóst.
Og kannski það séu fleiri sem vilja þó veg Guðs sem mestan (og þá er ég að tala um hinn eina sanna) sem eru sama sinnis?
Hver veit?
gerður rósa gunnarsdóttir, 12.8.2007 kl. 10:04
Hvaða hann eru allir að tala um! Hefur HANN eigi nafn? Jú, hann heitir Sigurður eins og Jón Valur tekur fram.
Ég hef margar og oft afdráttarlausar skoðanir, þó ekki hafi ég skoðanir á öllu, á stjórnmálum, samfélagsmálum, trúmálum, feminísma, dýravernd, umhverfismálum og guð má vita hvað, en sjaldnast blogga ég um þær. Mitt blogg er yfirleitt ekki skoðanablogg. En ég má alveg taka rispur um skoðanir mínar ef ég vil. Ég nefni þarna (harðsnúinn) hóp en ekki einstaklinga, þó óhjákvæmilegt sé að einstaklingar myndi hópinn alveg eins og það eru oft mjög vúlnerable einstaklingar sem eru í homma-og lesbíuhópnum, kannski yfir sig ástfangnir eða í ástasorg, sem verða að lesa um sig óhróður af öllu tagi því annað er ekki hægt að kalla margt af því sem skrifað er og sagt gegn hommum, t.d. á Omega. Ég held svo að flestir lesendur þessarar færslu átti sig á því að orð mín um útskúfun á hommahöturum er bara ýkt útfærsla á þeirra eigin framkomu í garð samkynhneigðra.
Svona set ég fram mína skoðun, einmitt þegar við á, á hommadeginum, en ég hef ekki í hyggju að deila um hana fram og til baka enda mótmæli ég aldrei hommafælupóstum á annarra manna bloggsíðum.
En ljóst er að ekki er ég sammála þeim sem leggja homma í einelti. og því vil ég endilega koma fram á minni eigin bloggsíðu. Ég á nokkra vini sem eru hommar og einn þeirra er meira að segja sérstakur trúnaðarmaður minn á vissu sviði mannlífins. Af því að hann er vitur maður og velviljaður.
Ég vona svo að menn haldi ekki að ég sé á móti guði þó ég hafi deilt á þá sem ofsækja homma. Í kvöld ætla ég einmmitt kl.8 í guðshús, Laugarneskirkju, eins og ég geri oft á sunnudögum á sumrin, til að biðja fyrir þeim sem ofsækja homma og lesbíur. Hvet sem flesta til að koma.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.8.2007 kl. 11:20
Já, og svo er Krítarhringurinn frægi eins og hann leggur sig bara mættur á síðuna til að lýsa yfir samþykki sínu!
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.8.2007 kl. 12:04
Ég sagði ekkert um hvort ég væri sammála eða ekki. Ég sagði bara þér finnst og öðrum finnst kannski ;)
gerður rósa gunnarsdóttir, 12.8.2007 kl. 12:13
En Krítarhringurinn er alla vega mættur! Ertu kannski ósammála mér? Ég þori aldrei fyrir mitt litla líf að vera ósammála þér!
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.8.2007 kl. 12:48
chicken
Heiða B. Heiðars, 12.8.2007 kl. 13:19
Skessa!
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.8.2007 kl. 13:25
Ég frábið mér að orðið hæna sé notað í niðrandi merkingu - af mjög svo persónulegum ástæðum.
gerður rósa gunnarsdóttir, 12.8.2007 kl. 17:15
Aukast nú heldur vandræði vor. Hvað á nú að gjöra? Malaðu nú Míó minn ef þú ert einhvers staðar á lífi.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.8.2007 kl. 17:53
Míó ærðist af söknuði og er fluttur.
gerður rósa gunnarsdóttir, 12.8.2007 kl. 22:12
Hvert flutti hann Míó minn?
Sigurður Þór Guðjónsson, 13.8.2007 kl. 00:41
Flutti hann kannski í annan heim?
Sigurður Þór Guðjónsson, 13.8.2007 kl. 00:46
Það finnst mér ekki (ég skynja alltaf þegar kettirnir mínir eru dauðir - hann er samt alveg á mörkunum að vera minn köttur). Hann hefur bara ekki komið heim í svolítinn tíma. GErðist um daginn líka en ekki svona lengi samt. Annaðhvort er hann dauður - eða lifandi.
gerður rósa gunnarsdóttir, 13.8.2007 kl. 15:46
Þakka fyrir góða færslu, skemmtilegt blogg.
Kolbrún Kolbeinsdóttir, 17.8.2007 kl. 01:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.