12.10.2007 | 10:54
Ólíku saman að jafna
Það er viðurkenning á starfi loftsslagsnefndar Sameinuðu þjóðannna að hún skuli hafa fengið friðarverðlaun Nóbels. Á starfi þessarar nefndar, réttara sagt vísindaritstjórn hennar, hvíla allar deilur og umræður um loftslagsmálin. Í þeim deilum, á báða bóga, er nú vægast sagt ekki öll vitleysan eins.
Ekki get ég samt séð hvað starf loftsslagsnefndarinnar kemur friði við. En það er gaman að eitthvað sem tengist veðurfræði skuli fá alheimsverðlaun. Hins vegar finnst mér Al Gore á engan hátt vera jafnoki þessarar nefndar í mynd sinni Óþægilegur sannleikur sem hann færi verðlaunin fyrir í reynd. Valið á honum finnst mér fyrst og fremst vera daður við tískuna. Það er sláandi við fréttaflutning af verðlaunaveitingunni og líka umfjöllun bloggara að nefndin er algjörlega í skugga Al Gore. Honum verður nú enn meira hampað en áður af ýmsum sem aldrei hafa haft minnsta áhuga fyrir loftsslagsmálum fyrr en pólitík hljóp í spilið en loftsslagsnefndin mun verða í skugga hans áfram og starf hennar. Gátu þeir nú ekki sleppt Al Gore og leyft vísindanefndinni virkilega að njóta sín. En hann er frægur og umtalaður og á einkaþotu. Það á til dæmis John Houghton ekki sem er miklu betri og öruggari fræðari um gróðurhúsaáhrifin en Al Gore.
Og nú er víst borin von um að Tómas Jóhannesson eða aðrir vari íslensku þjóðina gegnum vefsíðu Veðurstofunnar við gormæltri sjálfumgleði Al Gores og oft og tíðum hæpnum vinnubrögðum í þessari frægu mynd hans. Það er blettur á starfi Veðurstofunnar gagnvart almenningi hve hlutdræg hún var gagnvart þremur kvikmyndum um loftsslagsmálin sem sýndar voru á svipuðum tíma í Ríkissjónvarpinu.
En ég veit að þeir sem þar komu að málum, þó ég þekki þá alls ekkert, skella skolleyrunum við allri gagnrýni. Það hafa þeir sýnt í verki.
Al Gore og loftslagsnefnd SÞ hljóta friðarverðlaun Nóbels | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Hinn 10. október 2007 féll dómur í hinum virðulega rétti London High Court vegna kvikmyndarinnar "An Inconvenient Truth". Þetta var sem sagt rétt áður en tilkynnt var um hver hlyti friðarverðlaun Nóbels.
Sjá færsluna um málið hér
Veðurstofan hafði ekki séð ástæðu til að birta neitt um kvikmyndina, eins og þeir gerðu um aðra mynd. Miklu virðulegri stofnun hefur tekið af þeim ómakið.
Ágúst H Bjarnason, 12.10.2007 kl. 14:16
Ég ætlaði einmitt að fara að vísa á síðuna þína um þetta. En þú tekur af mér ómakið! Aumingja Veðurstofan. Allir vondir við hana!
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.10.2007 kl. 14:38
þetta eru mikil og merkileg orð einsog þín er von og vísa - og ég bið að heilsa Mala
halkatla, 12.10.2007 kl. 14:49
Mali er núna - að mala!
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.10.2007 kl. 15:12
Siggi, ég keypti kattabókina og þar sá ég mynd af þrenns konar tegundum sem bera þetta marmaramunstur sem mamma hans Mala er með. Það er British shorthair, American shorthair og svo Bengal. Ég veit að Bengal kettir eru ræktaðir hér á Íslandi en þeir eru allir seldir geldir, nema þú kaupir þá held ég á rúmlega þrjú hundruð þúsund krónur eða meira. Svo Mali er náttúrulega af aðalsættum í aðra ættina. En hann er svo óvenju háfættur og það eru American shorthair líka. Ég skal setja mynd af ketti með þetta mynstur inná síðuða mína.
Svava frá Strandbergi , 12.10.2007 kl. 16:24
Eitt finnst mér skrýtið. Afhverju grípa íslenskir fjölmiðlar ekki tækifærið og ræða við veðurfræðinga vegna þessara verðlauna sem allt í einu varða veðurfar?
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.10.2007 kl. 17:46
Já, svo er Mali líka aðalgaurinn á þessari bloggsíðu.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.10.2007 kl. 17:51
Sigurður, í dag snýst allt um Geysilegt grín. Fjölmiðlar hugsa ekki um annað í dag.
Ágúst H Bjarnason, 12.10.2007 kl. 18:38
Það er ekki líklegt til vinsælda að tala um sólargos hér frekar en annarsstaðar.
Fríða Eyland, 12.10.2007 kl. 20:26
Hvernig er heilsan Sigurður? Ertu búin að ná þér?
Jóna Á. Gísladóttir, 13.10.2007 kl. 23:52
Hæ, skoðaðu Youtube myndbandið hjá henni Kötlu bloggvinkonu minni 'Talandi kettir.'
Svava frá Strandbergi , 14.10.2007 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.