15.10.2007 | 00:41
Einkennileg viðbrögð Silfurs Egils við nóbelsverðlaunum
Eins og allir vita fékk loftslagsnefnd SÞ nóbelsverðlaunin fyrir starf sitt. Þess vegna finnst mér einkennilegt að Silfur Egils skuli hafa kallað til Hannes Hólmstein Gissurarson af því tilefni. Reyndar er ég að sumu leyti sammála Hannesi í loftsslagsmálunum, en þarna þótti mér kjörið tækifæri til að kynna starf loftsslagsnefndarinnar fyrir almenningi af einhverjum sem vel þekkir til og hefur vísindalega þekkingu á viðfangsefninu. Veðurfræðingur hefði verið alveg sjálfsagður.
Egill Helgason gat ekki leynt ánægjusvip sínum yfir málflutningi Hannesar og er það svo sem gott og blessað. Mér var sjálfum oft dillað. En ég endurtek að mér finnst að kalla hefði átt til veðurfræðing og ræða málin á forsendum loftsslagsnefndarinnar að þessu sinni. Það var hún sem fékk nóbelsverðlaunin en ekki gagnrýnendur hennar.
Best af öllu hefði verið ef eitthvað af þeim eilifðartíma sem enn einu sinni fór í þetta borgarstjórnardrama hefði farið í að ræða loftsslagsmálin í vitiborinni umræðu, bæði með og móti.
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Mér finnst harla eðlilegt að Silfur-Egill skuli vera ánægður með málflutning Hannesar. Það er mjög gleðlegt að menn skuli þora að synda á móti straumnum og hafa eigin skoðanir á málunum og rökstyðja þær. Jafnvel þótt þær skoðanir séu kolrangar að mati fjöldans.
Mig grunar því að það hafi verið málflutningur Hannesar fremur en innihaldið sem gladdi Egil svo mjög í þættinum. Skoðanaskipti manna varðandi loftlagsmálin og framsetning minna um margt á trúabragðadeilur.
Júlíus Valsson, 15.10.2007 kl. 10:55
Sammála þessu mati þínu Júlíus. Málflutningur Hannesar dillaði mér líka og svo er ég þó nokkuð sammála innihaldinu að auki, en ekki alltaf. En mér finnst samt að Egill hefði átt að tala við veðurvísindamann um nefndina, helst hafa umræður.
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.10.2007 kl. 11:15
Já, nú er ég að taka salíbunu í loftsslagsmálunum og lesa enn einu sinni uppáhaldsmækurnar mínar um efnið. Ég er svo sljór og tregur að ég þarf alltaf að vera að lesa aftur og aftur það sem ég les því annars gleymi ég því jafnharðan. Þetta eru allt rólegar fræðibækur og greinar en ekki trúboðsrit, hvorki fyrir rétttrúnaði né trúvillu. Segiði svo að nóbelsverlaun hafi ekki áhrif!
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.10.2007 kl. 11:21
Ég er orðin aldeilis þreytt á Hannesi Hólmsteini sama hvað hann talar um og heldur bágborin röksemdarfærsla fannst mér að ræða loftslagsbreytingar jarðarinnar útfrá því hverning honum hefur fundist veðrið um ævina. Ég hefði nú heldur viljað að rætt hefði verið við þig. Annars er ég svo gefin fyrir heimsendaspár!
María Kristjánsdóttir, 15.10.2007 kl. 12:59
Ég hef alltaf soldið gaman að Hannesi. Hann þorir a.m.k. að vera hann sjálfur með öllum sínum sérkennum. Svo er ég sannfærður um að heimurinn er að farast hvað svo sem ég segi eða Hannes Hólmsteinn eða jafnvel fjandinn sjálfur og María mey. En ég held að það verði ekki veðurfarið sem gerir út af við heiminn heldur ýmislegt annað. Það held ég nú. Það er nú líkast til.
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.10.2007 kl. 14:33
Viðbót um Hannes úr því hann er til umræðu á annað borð: Hann mætti alveg leyfa athugasemdir á blogginu sínu en kannski óttast hann svívirðingar og þess háttar. Svo mætti hann sjálfur gera athugaemdir hjá öðrum. Bloggarar sem eru bara greinahöfundar eiga á hættu að einangrast. Þetta held ég að sé einmitt skýringin á því hvað Hannes er lítið lesinn bloggari miðað við hvað hann er áberandi í þjóðlífinu.
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.10.2007 kl. 15:21
Mjá, var í dag að kaupa Cool it eftir þennan voðalega Lomberg. Segiði svo að Hannes hafi ekki áhrif! Einnu sinni skrifaði ég grein í Moggann þar sem ég fagnaði hafísleytsi við Ísland. Þá sendi útgefandi Hins sanna ásýnd heimsins eftir Lomberg mér eintak af bókinni, hefur talið mig Lombergsita, en ég fékk líka ógnandi hatursbréf frá nafnlausum umhverfissinna sem vildi endilega hafís og það mikið af honum. Bara mundi eftir þessu.
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.10.2007 kl. 18:18
Egill á heiður skilinn fyrir að kalla á sinn fund gagnrýninn mann, til að fjalla um vitleysuna frá IPCC og því liði öllu. Hannes fór rétt með all, ef ég man rétt. Finnst þér ekki Sigurður, að IPCC hafi komið sínum trúar-boðskap nægilega vel á framfæri ? Að minnsta kosti er þessi söngur umhverfis-flónanna kominn upp í kok á mér.
Kannski er mér klígju-gjarnara en flestum öðrum, því að ég veit fyrir víst að hjalið um áhrif lífsandans (CO2) er fáránlegt. Þótt þú sért grallari Sigurður, finnst mér rétt að þú farir að sýna réttan lit í þessu máli og hjálpa til við að kveða IPCC í kútinn. Ef ekki verður tekið í taumana munu utanríkisráðherra og umhverfisráðherra valda þjóðinni stórkostlegu fjárhags-tjóni.
Kveðja.
Loftur Altice Þorsteinsson, 16.10.2007 kl. 13:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.