Veđurdagatal fyrir október

Hér birtist eins konar veđurdagatal fyrir október, líkt og  áđur hefur birst fyrir september, hvađ varđar međalhita sólarhringsins, hámarks- og lágmarkshita, sólarhringsúrkomu og daglegar sólskinsstundir í Reykjavík, ásamt hámarks-og lágmarkshita á öllu landinu. Ţetta sést á fylgiskjalinu en ţarf dálítilla skýringa viđ.

Lengst til vinstri er mesti og minnsti međalhiti sólarhringsins sem mćlst hefur í Reykjavík frá 1949 og einnig árin 1920-1923. Nćst kemur međalhiti mesta og minnsta hita sólarhringsins frá 1935 til 1948 en ekki raunverulegur međalhiti. Munurinn á ţessu tvennu er yfirleitt mjög lítill ađ međaltali heils mánađar en getur orđiđ nokkur dag og dag. Međalhitinn er hins vegar ekki tiltćkur nema frá 1949 og árin 1920-1923. Međalhitinn frá 1949, er opinber međalhiti frá Veđurstofunni. Einnig sést ţarna međalhiti mesta og lćgsta hita sólahringsins árin 1888 til 1903, sambćrilegt viđ árin 1935-1948 og tekinn af sírita en ekki kvikvasilfursmćli. Loks er međalhiti hćsta og lćgsta álesturs á mćli ţriggja athugana frá morgni til kvölds árin 1907 til 1919 en ekki međaltal raunverulegs hámarks-lágmarkshita. Ţessi gildi eru líklega hćrri en orđiđ hefđi ef ţau sýndu međaltal hámarks-og lágmarks. Ađrar mćlingar en ţessar  voru bara ekki gerđar  Reykjavík ţetta tímabil. Árin 1907-1919 standa ţví eiginlega sér og sýna ađallega hvađa dagar voru hlýjastir og kaldastir á ţessu tímabili en erfitt er ađ bera dagana ţessi ár saman viđ dagana á hinum árunum nema einna helst allra köldustu dagana.    

Hámarks og lágmarkshiti í Reykjavík á hvejrum degi er hér allur í einu lagi alveg frá 1935 og til okkar daga en síđan útaf fyrir sig frá 1881 til 1903 fyrir lágmarkiđ en 1885 til 1907 fyrir hámarkiđ  og svo er ţađ líka sér á parti sem hćst og lćgst var lesiđ á mćli 1907 til 1919.

Ekki eru tiltćkar tölur fyrir daglegan međalhita, hámark og lágmark árin 1924-1934. Ţau ár koma ţví ekki til álita hér enn sem komiđ er ađ minnsta kosti hvađ hitann snertir en hins vegar bćđi fyrir sólskin og úrkomu. Ţađ er auđvitađ hiđ versta mál en verđur svo ađ vera. Ţó er hér ein stök hámarkshitamćling fyrir Reykjavík, tekin úr Veđráttunni en hún er hćrri en allar ađrar tiltćkar tölur og fellur á síđasta dag mánađarins

Hámarkshiti er lesin á veđurstöđum á ţrennan hátt, frá kl. 9-18, kl. 9 ađ morgni frá klukkan 18 eđa 21 deginum áđur og svo er lesiđ kl. 18 og gildir frá kl. 18 daginn áđur og eru ţađ ţćr tölur sem alltaf eru prentađar í Veđráttunni, yfirlitsriti Veđurstofunnar um hvern mánuđ. Ţćr hafa ţann galla ađ ţegar mjög hlýtt hefur veriđ kl. 18 einhvern daginn er hćtt viđ ađ sá hiti verđi meiri en mćlist allan nćsta dag eftir kólnun nćturinnar. Ţá sitjum viđ uppi međ hita á ákveđinni dagsetningu sem mćldist í rauninni daginn áđur en ekki á ţeim degi sem viđ á! Gott dćmi um ţetta er einmitt mesti hiti sem mćlst hefur í október samkvćmt opinberum skýrsLum, 15.7 stig, 1958, en hann mćldist í rauninni kl. 18 30. september en skráđur 1. október en ţann dag fór hitinn ekki  hćrra en í 15.4 stig. Frá ţessum ágalla hefur veriđ reynt  ađ sneiđa hjá ađ mestu og eru ţessar töflur ţví unnar eftir öllum ţessum ţremur hámarkstöflum, frá 18/21- 9, 9-18 og svo frá 18-18. Ef einhver skilur ţetta ţá má hann kallast innmúrađur og innvígđur! Hinir geta bara trúađ ţví möglunarlaust sem ég ber á borđ fyrir ţá í ţessum glćsilegu töflum á ţessari veđurglöđu blogsíđu!  

Sólarhringsúrkoman er í tvennu lagi, annars vegar frá stofnun Veđurstofunnar 1920 og áfram og hins vegar árin 1885 til 1907.

Fjöldi sólskinsstunda á dag er frá árinu 1923.

Ţessar töflur allar hef ég útbúiđ sjálfur eftir uppgjöri hvers mánađar um sig en ţetta eru ekki tilbúnar töflur frá Veurstofunni eins og ţćr liggja fyrir hér.   

Mesti og minnsti hiti á öllu landinu hvern sólarhring er ađeins tiltćkur fyrir hvern dag frá 1949 frá skeytastöđvum og 1961 fyrir ađrar stöđvar en  auk frá Teigarhorni frá 1937. Hins vegar er bćtt viđ nokkrum stökum gildum sem birst hafa sem hámark eđa lágmark alls mánađarins í Veđráttunni á árunum 1920-1948 og eru hćrri eđa lćgri en öll dagsgildin frá 1949. Hita frá sjálfvirkum stöđvum síđari ára má til gamans sjá í flipum ef ţćr slá út ţađ sem kvikasilfursmćlarnir hafa mćlt en ţetta eru ţó fyrst og fremst kvikasilfursmćlingar enda hafa sjálfvirkar hitamćlingar ađeins stađiđ í nokkur ár. Í flipum má einnig sjá ţegar um fleiri en eina ársetningu er ađ rćđa og ýmsar athugasemdir. Lesiđi endilega flipana til ađ sjá hvađ í ţeim stendur! 

Villur geta veriđ hér á vappi og jafnvel meinlokur en ţćr verđa leiđréttar undireins og upp um ţćr kemst.

Stefnt er ađ ţví á Allra veđra von ađ útbúa sams konar dagatal fyrir alla mánuđi ársins og ţegar fram í sćkir einnig ýmislegt lesmál og kort fyrir um veđriđ hvern dag ársins. Á ţetta ađ vera tilbúiđ í síđasta lagi á nćsta nýjársdag.

Heimildir: Íslenzk veđurfarsbók, 1920-1923, Veđráttan 1924-2003, Veđurfarsyfirlit 2004-2007, vefsíđa Veđurstofunnar, ýmis laus gögn frá Veđurstofunni.  

Nćstu daga er yfirvofandi ađ birtist hér síđunni ćsispennandi fćrslur um hlýjustu og köldustu októbermánuđi og um hlýja daga og kuldaköst í ţessum mánuđi.       


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband