25.10.2007 | 10:54
Dýradagurinn mikli
Í gær fór ég með Mala minn í geldingu og pestarsprautu nr. 2 hjá Dagfinni dýralækni. Ég fór með hann að morgni og skildi hann eftir mjálmandi og vælandi. Ég náði svo í hann síðdegis og var hann þá vægast sagt framlágur og lítill í sér. Hann skjögraði á fótunum og þegar hann ætlaði að stökkva upp á eitthvað dreif hann ekki hálfa leið og þóttist svo á eftir bara eitthvað vera að huga að feldinum sínum til að draga athyglina frá aumingjaskapnum. Ég þurfti líka að halda á honum allan daginn og hann elti mig volandi um húsið ef ég sleppti hendinni af honum. Tvisvar kastaði hann upp. Og hann var nú ekki meiri bógur en svo að hann var skíthræddur við æluna úr sjálfum sér, setti hreinlega upp fádæma aumkunarverða kryppu.
Það olli mér þungum áhyggjum að hann, sjálfur Malinn, malaði ekki neitt allan daginn eftir að hann kom heim úr geldingunni. Hann stóð sem sagt engan veginn undir nafni.
Og skyldi kettinum ekki leiðast að láta steingelda sig.
En í morgun hefur Mali engan bilbug látið á sér finna. Hann er þegar búinn að velta um nokkrum blómapottum og eyðileggja mörg blöð úr prentaranum mínum en það er hans uppáhalds hryðjuverk. Svo er hann að rífa og tæta allt annað líka sem hann nær í.
Og svo malar hann og malar eins og honum sé borgað fyrir það með rækjum og túnfiski.
Í gær leit ég við hjá kunningja mínum en tíkin hans var að gjóta tveimur hvolpum. Þeir eru blindir og út úr heiminum og ekki sjón að sjá þá. En mamma þeirra var eins og drottning, stolt, vitur og yfirveguð. Hún og Mali eru orðnir ágætir vinir.
Dagurinn í gær var sem sagt dýradagurinn mikli.
Meginflokkur: Mali | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 19:04 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Aumingja Mali. Hvernig gastu gert honum þetta?
María Kristjánsdóttir, 25.10.2007 kl. 12:41
Ég á læðu, er að fara með hana í sprautu no.2 í dag. Veit ekki hvað ég geri í kynlífsmálum hennar, hún hittir náttl. aldrei aðrar kisur svo ég verð að bera þetta undir lækninn. Ég skrifaðu smá um kisu mína á síðunni minni í gær, kisur eru yndislegar. Kær kveðja frá Bóthildi minni til Mala.
Ásdís Sigurðardóttir, 25.10.2007 kl. 13:11
Segi það nú María. Mér finnst ég líka vera dr. Göbbels.
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.10.2007 kl. 14:14
Kisur eru alveg eins og börnin manns, nema að einu leyti maður lætur ekki gelda börnin sín.
Svava frá Strandbergi , 25.10.2007 kl. 15:49
En ég var nú samt að láta gelda aumingja Mala!
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.10.2007 kl. 16:17
Aumingja litli Mali þinn. Þetta er bara nokkuð sem verður að gera. Ég á tvo fressketti, sem gengu í gegnum þessa aðgerð. Og heimilisköttur minn til tuttugu ára var einnig geltur þegar hann var kettlingur. Þeir verða heimakærari og rólegri þegar þeir eru ekki alltaf að hugsa um dömur. Kettir eru frábær dýr. Og hundar líka! Kveðja.
Auður (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 18:09
Fressið er þá svona Unic.
Karlmenn verða líka þægilegri í umgengni og hlýða betur ef þeir fara í svona aðgerð. http://www.urbandictionary.com/define.php?term=unic
En þessi máti hefur verið lagður af. Segi ekki meira.
Ólafur Þórðarson, 26.10.2007 kl. 00:23
þetta hefur verið yndislegur dagur
gott að Mali var hress á eftir
halkatla, 27.10.2007 kl. 16:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.