24.11.2007 | 23:13
Skáldað liðugt
Það vellur alveg vitleysan út úr skáldum vorum þessa dagana. Í Lesbók Moggans er langt og gott viðtal við Einar Má Guðmundsson um síðustu skáldsögu hans, Rimla hugans. En ekki er þar allt sem sýnist.
Einar er að tala um lausn frá áfengisfíkn. Hann segir að bindiefni þeirrar hjálpar sem Einar Þór og Eva, sögupersónur bókarinnar, nái að að nýta sér sé ástin. "Það er er ástin sem gefur Einari Þór og Evu tilgang og styrk til þess að þrauka þessa göngu."
Þetta gengur kannski upp í skáldsögu. En í raunveruleikanum verða menn ekki edrú vegna ástarinnar. Fjöldi fólks er edrú árum og áratugum saman án þess að ástin komi þar nokkuð við sögu.
Engum þeim sem hefur haft einhver kynni af alkóhólisma dettur í hug að ástin geri menn edrú.
En það er víst allt hægt í skáldskap.
Meginflokkur: Bækur | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 18:56 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Kjöftugum ratast oft satt á munn
Fishandchips, 24.11.2007 kl. 23:19
Þetta selur Sigurður minn. Þetta er það sem kallað er markaðstorg.
Þórbergur Torfason, 25.11.2007 kl. 01:37
Ég þekki a.m.k. einn mann sem hætti endanlega að drekka eftir margar tilraunir vegna ástar. Það var reyndar ást á dóttur hans, en ást engu að síður.
Lára Hanna Einarsdóttir, 25.11.2007 kl. 02:09
"Alkagen" getur nú varla verið til, því alkóhólið varð til eftir að maðurinn var fundinn upp, held ég megi segja. Eða hvað segja guðfræðingarnir um það atriði?
En ef fíkngenið væri tekið úr okkur öllum myndu öll hagkerfi hreinlega hrynja, því þetta gen stjórnar allri fíkn, til dæmis fíkn í áfengi, kynlíf, eiturlyf, sígarettur, skrif á Moggablogginu, sjónvarp, fótbolta, útivist, súkkulaði, ferðalög og skemmtanir.
Fíkn getur því birst í ýmsum myndum og við verðum að læra að hafa stjórn á okkar fíknsortum. Maður sem er sólginn í útivist getur líka verið mikill kynlífsunnandi, og þetta getur farið ágætlega saman, en náttúrlega farið úr böndunum, eins og dæmin sanna. Og sumir verða að láta útivist alveg eiga sig, sem og áfengi.
Steini Briem (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 05:38
Ég dreg það í efa Lára að einhver hafi orðið edrú vegna ástar á dóttur sinni. Þvert á móti eru þess mýmörg dæmi að foreldraást verði að lúta i lægra haldi fyrir fíkninni. Ég hef hlustað á slíkan vitnisburð í viku hverri í 28 ár. Ástin er vita gagnslaus fyrir utan hvað hún er vita vitlaus!
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.11.2007 kl. 09:11
Með þessu er Lára væntanlega að segja að dóttir mín hafi ekki borið nógu mikla ást til barnanna sinna til að verða edrú....
Kjaftæði
Heiða B. Heiðars, 25.11.2007 kl. 09:52
Í alvöru: ekki geri ég lítið úr foreldraást en fíknin er sterkari. Það verður enginn minni fyrir það. Þetta er bara einkenni sjúkdómsins og best að sjá það raunsæjum augum án þess að ásaka. Hins vegar geta blæbrigði lífsins verið æði mörg og ekki loku fyrir það skotið að eitthvað í samskiptum barna og foreldra geti loks verið það korn sem fyllir mælinn að manneskja vilji verða og geti orðið edrú.
Sigurður Þór Guðjónsson, 25.11.2007 kl. 10:08
Heiða mér finnst nú óþarfi að leggja Láru orð í munn. Hún sagði að hún þekkti einn einstakling sem hefði hætt endanlega að drekka vegna ástar á dóttur sinni. Sama hvað mönnum finnst um hversu líklegt það sé, þá er það bara alls ekki það sama og segja að einhver annar hafi ekki hætt að drekka vegna þess að hann elski ekki fólkið sitt nógu mikið.
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 10:16
Nei, Heiða... það var ég alls ekki að segja. Mjög sérstakar aðstæður í þessu tilfelli urðu til þess að maðurinn áttaði sig á að hann varð að hætta að drekka. Ást hans á dóttur sinni var kveikjan að þessari uppgötvun sem varð til þess að loksins, loksins tókst það. Auðvitað kom fleira til en þetta var neistinn. Nú er hann búinn að vera edrú í rúm 20 ár.
Ég hef hins vegar oftar séð fíknina vera yfirsterkari og ekkert getað komið í veg fyrir hana.
Dóttir þín er mikil hetja, Heiða. Ég hef fylgst með henni, les bloggið ykkar beggja, og er ein af þeim sem dáist að henni og hugsa til hennar með mikilli hlýju. Þín líka, því fátt er vera verra en að horfa upp á börnin sín verð fórnarlömb fíknar.
Lára Hanna Einarsdóttir, 25.11.2007 kl. 11:26
Æi sko... ég er óþarfa viðkvæm þegar þessi mál eru annars vegar og veit alveg af því
En að einhver hafi sigrast á fíkn vegna ástvina sinna er bara ekki séns. Ást á sjálfum sér er eina ástin sem getur hjálpað fólki í fíkn. Börn dóttur minnar eru örugglega hluti af ástæðunni fyrir því að hún tollir edrú.... en ekki ástæðan fyrir því að hún varð edrú. Og ég trúi því ekki upp á nokkurn mann að hann hafi sigrast á fíkn vegna ástar
Heiða B. Heiðars, 25.11.2007 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.