Á afmæli kattarins

Viðsjárverð þykir mér glyrnan gul,
geymir á bak við sig marga dul,
óargadýranna eðli grimmt
á sér í heilanum fylgsni dimmt.

Alla tíð var þó með okkur vel,
einlægt mér reyndist þitt hugarþel,
síðan ég forðum þig blindan bar,
breiddi á þig sæng þegar kaldast var.

Fimm voru systkinin fædd í heim,
fagnar þú degi hið eina af þeim;
hinum var öllum í æsku drekkt,
ósköp er kattlífið dapurlegt.

Lifað þú hefur nú árið eitt,
oddhvöss er vígtönnin, klóin beitt;
stundum á kvöldin með kurteis hljóð
kveðurðu af munni fram ástarljóð.

Andvakan þykir mér yfrið löng
uns ég í garðinum heyri söng,
hugurinn glaðnar þá heldur til,
hlægir mig dillandi raddarspil.

Til munu þeir sem það tónverk líst
tilkomu lítið, en eitt er víst:
læðan sem kúrir í leyndum stað
leggur við eyrun að hlusta á það.

Mjúkur með kirfileg kampahár
kemuru að dyrum í morgunsár,
upp þig úr munnvatni allan þværð,
augunum lygnir í sæld og værð.

Ólundin margsinnis úr mér rauk
er ég um kverk þér og vanga strauk,
ekki er mér kunnugt um annað tal
álíka sefandi og kattarmal.

Trýnið þitt starfar og titrar kvikt,
tekst því að skynja svo marga lykt,
þar sem mér ekki með allt mitt nef
unnt er að greina hinn minnsta þef.

Bugðast af listfengi loðið skott,
lyftist með tign er þú gengur brott;
aldrei fær mannkindin aftanverð
á við þig jafnast að sundurgerð.

Jón Helgason 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þetta er glæsilegt kattakvæði, þakka birtinguna... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.12.2007 kl. 13:47

2 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Sigurður má sig sælan prísa

að sælkerans uppáhald er ýsa,

en ekki Nimbusar kalda nár

næstum vikugamalt uppá hár.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 11.12.2007 kl. 14:21

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kötturinn hans Jóns var bara blindur þegar hann var blindur kettlingur var það ekki.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.12.2007 kl. 14:37

4 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Köttur útí mýri setti á sig stýri, úti er ævintýri? 

Þorkell Sigurjónsson, 11.12.2007 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband