Hvenær verður byltingin?

Bjarni Ármannsson fékk 90 miljónir fyrir fjögurra mánaða vinnu í bankanum.

Margir þræla alla ævi og fá þó aldrei svona mikla peninga fyrir ævistarfið.

Er vinna Bjarna svona meira virði en annarra?

Eða er þetta orðið geðveikt?

Jú, jú, það er víst bara öfund  að skrifa svona, segja sumir. 

Ég segi nei. Það er lágmarks réttlætiskennd.

Hvernig getur Bjarni yfirleitt bara látið sjá sig meðal fólks, brosandi og strokinn.

En hann er víst bara yfir sig ánægður.  

Hvenær verður blessuð byltingin?

Hvenær hrynur allt hrófatildrið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Það styttist alltaf í byltinguna það er ljóst,og varðandi venjulegt vinnandi fólk þá get ég ekki séð að það breyti neinu hvort við segjum nei strax í dag eða eftir fimm ár,við verðum hvort eð er búin að tapa aleigunni í vaxtarugli og kúun þá.Svo ég segi hreint út byltinguna núna strax og hana nú.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 31.1.2008 kl. 19:59

2 Smámynd: Guðrún Markúsdóttir

Góð spurning.

Guðrún Markúsdóttir, 31.1.2008 kl. 20:16

3 Smámynd: Kristján Pétursson

Það eru komnar "yfirstéttir",sem hafa samvinnu sína á milli um ofurlaun.Þeir hafa engin siðferðismörk,auðhyggjan og græðgin ræður ferðinni.Þjóðin lætur þetta möglunarlaust yfir sig ganga.Þessir ofurlaunamenn sigla sléttan sjó,þeir þurfa ekki að óttast neinn mótvind.Er ekki þjóðin að dásema útrás víkinganna? Það er arfavitlaus þjóð,sem lætur svona hluti yfir sig ganga.

Kristján Pétursson, 31.1.2008 kl. 21:38

4 identicon

Byltingin étur börnin sín var sagt. Auðvitað er öllum misboðið nema milljónamóttökurum. Hvað vildi blaðamaðurinn?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 21:54

5 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Alvarlegust eru skilaboð svona gjörninga til barna okkar og unglinga. Verið er að ala á öfund og brengluðu verðmætamati; allt á fást fyrir ekkert og ærlegt handtak er lítils virt. Um daginn sá ég númeraplötu á nýjum, 15 millj. króna jeppa. Á plötunni stóð: AFI NR. 1 . Segir allt sem segja þarf...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 31.1.2008 kl. 22:40

6 identicon

Auðvitað er þetta bara öfund, getum við ekki samglaðst þeim sem vel gengur hjá. Við fæðumst fæst með silfurskeið í munni, atorka okkar og seigla skilar öllum góðum árangri sem vilja. En svo eru þeir sem velja Bakkus, nenna ekki að menntasig nenna ekki að vinna, þykjast vera rithöfundar eða listamenn og telja sig misskilda í stað þess að fara að draga björg í bú. Ég er þessi á fimmtán miljónajeppanum sem kostaði reyndar ekki nema þrettán og hálfa.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 00:47

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mein Gott!

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.2.2008 kl. 00:50

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Mér finnst nú listamenn og rithöfundar, margir hverjir,  jafnvel þó misskildir og bláfækir séu,  oftast nær skilja eftir sig fágætari dýrgripi og  ómetanlegri listaverk komandi kynslóðum til handa,  heldur en seigustu aurapúkana getur nokkru sinni dreymt um að komast yfir á heilli mannsævi.

Svava frá Strandbergi , 1.2.2008 kl. 01:35

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Það eru þrjár stéttir í landinu, Hin Ofur-Ríku, Meðal-Jónarnir og Meðal-Jónurnar, og svo við Fátæka Fólkið.

Íslendingar eru alltof sljóir til að hafa vit á að gera byltingu. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 1.2.2008 kl. 10:18

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Satt hjá ykkur báðum, megameyjum, Guðnýju Svövu og Grétu Björg.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.2.2008 kl. 11:33

11 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ómar, það þarf ekki Bakkus eða leti til, stundum er nóg að hafa alla tíð unnið í láglaunastörfum, það er að segja við að huga að velferð náungans, og hafa þess utan lent í áföllum, svo sem alvarlegum veikindum, til þess að geta í dag kallast fátæk/ur.

Greta Björg Úlfsdóttir, 1.2.2008 kl. 12:10

12 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Mér er alveg sama um 90 milljónirnar hans Bjarna Ármannssonar. Hann er með svo lítinn tittling, að hann þarf líklega svona bitling.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.2.2008 kl. 21:19

13 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vilhjálmur þó! Þér yrði nú ekki sama ef einhver færði þér 90 miljónirnar á silfurfati.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.2.2008 kl. 21:42

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Við] sem alin erum upp undir ofbeldi þeirrar fölsku heimspeki, að mennirnir séu í innsta eðli sínu skítug og eigingjörn dýr, að lífið sé og eigi að vera ruddaleg samkeppni, þar sem sá duglegasti hafi siðferðilegan rétt til að bola keppinautum sínum frá gæðum heimsins, þar sem jafnvel þeir, sem telja sig til jafnaðarstefnunnar, eru svo eitraðir af ólyfjan þessarar lífsskoðunar, að þeir snobba alveg eins og hinir fyrir slungnum ræningjum, er komist hafa ofan á í þjóðfélaginu, í stað þess að skapa voldugt almenningsálit, sem gerði þessum fínu rándýrum með öllu ólíft í samfélagi siðaðra manna.

Þetta er úr Rauðu hættunni eftir Þórberg Þórðarson og er hnuplað af bloggsíðu Tótu minnar pönk. Það nær alveg þessu sem ég er að fara með þessaro færslu hvort sem Ómari, sem á bara 13 miljóna jeppa, líkar betur eða verr !

Sigurður Þór Guðjónsson, 2.2.2008 kl. 02:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband