Að mér dauðum en ekki lifandi

Nú er ég kominn með flensu. Ég er að drepast úr hósta og verkjum í skrokknum og er með hita. Ég treysti mér því ekki til að fara að kínverska sendiráðinu og standa þar úti. Hins vegar verð ég að skjótast út í búð seinna í dag til að kaupa páskalambið svo ég hafi eitthvað að éta um páskana.

Páskalambið er svona voða lítið og sætt lamb eins og sýnt var í myndinni um hann Ástþór í sjónvarpinu í gær. Svo er því slátrað svona sætu og krúttlegu og étið.

Kannski lifi ég ekki þessa flensu af. Kannski fer vírusinn í hjartað á mér og drepur mig eða í heilann og ég verð eins og zombí.

Ef svo skyldi fara að ég deyi vil ég endilega að útför mín fari fram í pukri.

Ég vil heldur ekki að einhver asni skrifi um mig minningargrein. Það yrði hvort sem er allt saman tóm lygi. 

Í gær kom hér kolsvartur hrafn og krunkaði lengi á þakrennustokknum. Ég setti Mala út í þakglugga og hann titraði alveg af veiðihug. Á eftir var hann snaróður út um alla íbúð.

Ég ætla að arfleiða Mala að öllum mínum veraldlega og andlega auði.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hvað ég skil horrorinn vel. Ég gafst uppá ´onum!

Skoðaðu www.waterviewcebu.com og láttu þig dreyma

Alfreð (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 12:04

2 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

       Liggur í flensu laus við gáska

       langþreyttur Nimbus og kvalinn

       varla mun þreyja veraldar háska

       válynda tíð né snemmbæra páska

       ærnar, kýr og sMalinn...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 22.3.2008 kl. 12:58

3 Smámynd: Kreppumaður

Svartur hrafn, flensa, þú ert jafn feigur og Poe.

Kreppumaður, 22.3.2008 kl. 14:04

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Verður ekki hysterískum aðdáendum tilkynnt um andlátið? Eða ertu að því fyrirfram núna?

Ekki líst mér á flensuna þína, láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig. Ég vil ómögulega missa þig aftur, nýendurheimtan.

Lára Hanna Einarsdóttir, 22.3.2008 kl. 14:34

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Veit það Kreppumaður og takk fyrir öfluga hughreystingu! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.3.2008 kl. 15:02

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Poe! Pó! er það ekki einn stubbanna? vissi ekki að hann væri dauður.

Brjánn Guðjónsson, 22.3.2008 kl. 20:34

7 Smámynd: Ásta Björk Solis

vonandi hressist thu vid fljotlega flensan er omurleg.

Ásta Björk Solis, 22.3.2008 kl. 22:04

8 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Ég er allur að stíflast þannig að þessi fjandi er laus jafnt norðan heiða sem sunnan. Útför í pukri - ekki hljómar það vel. Engu líkara en þú hafir fengið einhvern til að jarða þig svart.

Gleðilega páska og takk fyrir öll snilldarbloggin!

Svavar Alfreð Jónsson, 22.3.2008 kl. 22:56

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef hægt er að jarða menn í kyrrþey, því þá ekki í pukri. Annars er fyndið að ég hef einmitt verið að hugsa svo til þín í kvöld Svavar Alfreð. Ekki fyrsta dæmið um einhvers konar fjarhrif á blogginu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.3.2008 kl. 23:46

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góðan bata óskar þjáningarsystir, ligg sjálf í einhverjum vesaldómi.

Marta B Helgadóttir, 23.3.2008 kl. 00:12

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég var búinn að kaupa páskaegg en í dag skaust ég dúðaður út og keypti mér páskaliljur og páskalamb.

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.3.2008 kl. 00:38

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér finnst þú frekar svartsýnn, þú hlýtur að lifa þetta af.  Flensur koma og fara en þvermóðskan lifir alltaf!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.3.2008 kl. 03:12

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

PS: ég var nágranni þinn í mörg ár, þegar þú bjóst á Melabrautinni, vinkona mín átti heima í sama húsi, núna er það Melabraut 2 en þá...hmm hmmm ég man það ekki  kannski þrjátíuogeitthvað???

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.3.2008 kl. 03:15

14 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Keyptir þú hvítlauk með lambinu. Stingdu því ekki í lambið, heldur einu rifi upp í munninn, óelduðu, og sjúgðu það eins og brjóstssykur. Það mun fæla alla vírusa, illa anda og leiðinlegt fólk í burtu á svipstundu - ef það drepur þig ekki. Kettir elska hvítlauksremmu. Mali mun gefa þér marga páskakossa. Myntuolía er líka góð til langlífis. Nokkrir dropar á dag.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.3.2008 kl. 06:18

15 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Annars er blogg oftast heilbrigðisvottur, merki þess að menn séu ekki aldeilis að hrökkva upp af og geti talað um sjálfa sig og aðra án þess að roðna eða skammast sín. Þeir sem ekki blogga eru hins vegar hálfdauðir eða framliðnir.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.3.2008 kl. 06:20

16 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Verst að ekki er lengur hægt að fá kamfóru og hoffmannsdropa! Það er það eina sem dugar gegn þessum kvölum.

María Kristjánsdóttir, 23.3.2008 kl. 13:20

17 identicon

Sigurður

Varðandi minningargreinina þína. Lá legg ég til að þú skrifar hana bara sjálfur. Þá geturðu fegrað þína ímynd, eða ekki. Eða bara sagt sannleikann, hver sem hann nú er. Annars vona ég að þú haldir áfram að mala hérna megin lífsins. Og fá'ið ykkur lýsi þá lagastu kallin, og mali með. 

Þórður J. (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 03:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband