23.4.2008 | 10:04
Vörubílstjórar nota bíla sína sem þungavopn
Nú eru vörubílstjórar búnir að loka suðurlandsvegi við Rauðavatn.
Um daginn kom ég þar að sem þeir höfðu lagt bílum sínum í Tryggvagötu. Þetta eru engir smáræðis trukkar. Þá varð mér ljóst hvers vegna lögreglan lætur bílstjórana vaða uppi án þess að grípa til nokkurra aðgerða gegn þeim að heitið geti.
Bílarnir eru eins og þungavopn. Það myndi t.d. lítið þýða fyrir lögregluna að handtaka bílstjórana og færa þá á stöðina því enginn lifandi máttur gæti fært þessa mörgu bíla úr stað sem myndu þá teppa umferðina von úr viti.
Þetta vita bílstjórarnir. Þeir fara um sem sveit alvopnaðra manna sem enginn þorir eða getur staðið á móti.
Þeir haga sér eins og frumstæðir ruddar sem vaða áfram í krafti afls og einskis annars. Eftir er bara að vita hvort þjóðfélagið ætlar að láta það líðast að slíkir menn koma kröfum sínum fram, t.d. þá fáránlegu frekju þeirra um hvíldartímann sem dómbærir menn segja að muni stefna lífi og limum vegfaranda í hættu ef hún nær fram að ganga.
Vörubílstjórarnir eru að fremja eins konar hryðjuverk og nota bíla sína sem vopn líkt og aðrir hafa notað flugvélar.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.12.2008 kl. 17:50 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
En hugsaðu þér hvað gæti gerst ef þeir hættu að einblína bara á sína sérhagsmuni og færu að taka þykkjuna upp fyrir aldraða, eftirlaunaþega, öryrkja, heilbrigðiskerfið, frið og svo framvegis!
María Kristjánsdóttir, 23.4.2008 kl. 10:44
Þá yrði öflug víkingasveit send á þá með hjálma og alvæpni og eitruðu gös.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 11:00
Ég held að það sé mjög ýkt að rýmkun einstrengingslegra reglna um hvíldartíma flutningabílstjóra stefni lífi og limum vegfaranda í aukinn voða. Að mínu viti snýst þetta um það hvort bílstjóri á leiðinni norður má leyfa sér að ljúka ferð og koma sér inn á planið við Staðarskála (eða Brú, ef mikið liggur við) eða hvort hann verður að stöðva einhvers staðar í norðurhlíðum Holtavörðuheiðar þar sem hann er í rauninni fyrir annarri umferð og stórum líklegri til að valda slysum en þó hann ruggist áfram þessa fáeinu kílómetra, þangað sem hann getur komið bílnum út fyrir umferð. -- Nefni þetta sem dæmi. Þeir flutningabílstjórar sem ég þekki hafa almennt enga löngun til að halda áfram að aka eftir að þeir eru orðnir úrvinda, aðeins að tekið sé tillit til þeirra aðstæðna sem þeim eru búnar.
Sigurður Hreiðar, 23.4.2008 kl. 11:29
jæja já... flutningabílstjórar komnir í sama flokk og hryðjuverkamenn.. hefur það bara ekki of gott Sigurður ?
Óskar Þorkelsson, 23.4.2008 kl. 13:00
Það ber nú kannski ekki að skilja þetta alveg bókstaflega, þetta er svona líking. Þeir nota óneitanlega trukkana sem óárennuileg vopn. Hvernig hefur þú það Óskar?
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 13:07
Gleymdu ekkui fyrirvaranum Óskar, "eins konar hryðjyverkamenn", hann segir soldið.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 13:08
Hvað á fólk að nota til að ná sínu fram þegar rikið hefur hellt vaxi í eyru sér?
Magnús (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 14:58
Hmmmm
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2008 kl. 15:00
Hmmmm hvað Jenný?! Ég er náttúrlera kominn með vægan móral yfir þessari færslu í ljósi síðari tíðinda. En ég hafði samt ekki samúð með aðgerðum bílstjóra. Mörgum finnst að stjórnvöld hlusti ekki á málstað þeirra en það réttlætir ekki hvaða aðgerðir sem er. Að þessu sögðu er ekki þar með sagt að ég sé í skýjunum yfir aðgerðum lögreglunnar. Kannski hefði verið betra að beita klókari og mildari ráðum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 15:48
Í þessu sem öðru kallar ofbeldi bara á meira ofbeldi. Mér finnst bílstjórar hafa haldið sínum aðgerðum á of ofbeldisfullu "plani" og ættu því að búast við mótaðgerðum í sama dúr.
Ef ég myndi stilla mér upp í Ártúnsbrekkunni og stoppa alla umferð yrði ég handtekin, og ég yrði ekkert hissa á því að vera handtekin við þann gjörning.
Samúð hef ég með öllu fólki sem berst fyrir rétti sínum. Málefni bílstjóranna eru komin í nefnd, sem er vissulega biðstaða en þeir eru búnir að vekja athygli fólks á stöðunni. Meira verður ekki gert að svo stöddu. Þessi áframhaldandi læti eru tilgangslaus og geta orsakað slys á saklausu fólki.
Marta B Helgadóttir, 23.4.2008 kl. 16:32
....ætlar þú ekki að velja á mig haus Sigurður?
Marta B Helgadóttir, 23.4.2008 kl. 16:34
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 17:08
Þakka þér fyrir þennan pistil Sigurður, ég kem auga á margt nýtt við lestur hans. Takk fyrir spjallið áðan. Með beztu kveðju.
Bumba, 23.4.2008 kl. 17:36
Halló ,,Halló,, Hverslags dómgreindarleysi er hér á ferð að kalla friðsamleg mótmæli hryðjuverk,, Þegar bifreiðastjórar í hlutverki fulltrúa þeirra sem ósáttir eru við getuleysi og aðgerðarleysi stjórnvalda eru sallaðir niður af vopnuðum lögreglumönnum sem hafa fengið fyrirskipun frá æðstu stöðum um að fórna sér , sem og mótmælendum ,, meðan þeir sem skipa njóta morgunverðar í mestu makindum,, Skelfingar Bullþvæla getur oltið upp úr fólki,,!!
Bimbó (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 17:48
Eins konar hryðjuverk, lestarsnjalli Bimbó!
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 18:02
Rétt að leggja áherslu á að það er gersamlega sitt hvað að hafa samúð með tilteknum málstað og vera á móti ofbeldi, svo sem því að loka vegum fyrir fólki sem hefur erindum og starfi að gegna.
Sigurður Hreiðar, 23.4.2008 kl. 18:06
Sammála Sigurður!
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 18:19
Auðvitað hljóta bílstjórarnir að hafa getað sagt sér það sjálfir að til tíðinda myndi draga. Það er ekki hægt að loka þjóðvegum til höfuðborginnar eins og ekkert sé. Þar fyrir er alveg mögulegt að aðgerðir lögreglunnar hafi verið of harkalegar í sjálfu sér en það var samt tímaspursmál hvenær hún gerði eitthvað. Menn voru einmitt að bera saman aðgerðaleysi hennar núna og í mótmælum umhvefissinna. En trukkarnir voru notaði sem eins konar vopn, skelfilegir ásýndar allir saman, mynduðu vegg sem var ekki árennilegur. Þar var farið fram með valdi og afli. Og hver er niðurstaðan. Nú hætta stjórnvöld að hlusta á bílstjórana hvað þá meira. Reyndar hefur verið sýnt fram á það að hvert sem olíuverð sé muni bílstjórar ekki bera skarðan hlut frá borði. Það sem kemur þeim í koll er heimskuleg forysta, þrjóska og stífni og skortur á hyggindum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 18:31
Góðfúslega ,,ákveðið yður,, Erum við að ræða lestir eða trukka,,???
Bimbó (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 19:24
ég er alveg bit. En ég sagði strax þegar trukkakallarnir byrjuðu að mótmæla á þennan uppáþrengjandi hátt sinn að þetta væri sennilega sá hópur sem löggan þyrði síst að ráðast gegn og það reyndist rétt - þartil í dag, þetta er hinn almenni maður plús að hann er trukkakall, og eftir þessa misheppnuðu mótmælastjórnun dagsins munu þeir bara halda þessu áfram mig langar svo að halda með mótmælendunum og segja að BB og Geir hafi rangt fyrir sér en það er eiginlega ekki hægt, þetta er bara hrikalega óeðlilegt ástand!
halkatla, 23.4.2008 kl. 19:31
Ég held að mótmælin haldi áfram, hvað sem um þau má segja, og þarna hafi í raun verið helt olíu á eld. Og Íslendingar þola ekki kylfur, þjösnalegar handtökur og gassprey. Nú eru margir reiðir með réttu eða röngu út í lögguna. En Mali tekur þessu rólega og malar bara.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 20:01
Ég er sammála því að þessir trukkar eru notaðir sem vopn, og þarmeð er eiginlega ekki hægt að segja að þetta séu friðsamleg mótmæli.
Það sást líka vel í dag, þegar ökumaður fólksbíl ákvað að sýna atvinnubílstjórum samstöðu með því að stoppa umferð um hjáleiðina þarna.
Hann stöðvaði nefnilega vörubílstjóra sem var ekki að taka þátt í mótmælunum, sá var reiður og tuskaði bílstjórann til þar til hann flúði inn í fólksbílinn sinn. Þá tók vörubílstjórinn sig til og undirbjó kranann á bílnum sínum til þess að flytja fólksbílinn með burtu.
Það skiptir semsagt máli að fara ekki léttvopnaður í þetta götustríð.
P.S. hérna má sjá myndband af þessu atviki
http://www.youtube.com/watch?v=Yzv0GAOWP5M
Ingólfur, 23.4.2008 kl. 22:03
Gott að vita að Mali malar, Sigurður.
Lögreglan tekur mjög misjafnlega á mótmælendum það er allavega deginum ljósara ...
Gleðilegt Sumar
Fríða Eyland, 23.4.2008 kl. 22:43
Ertu búin að lesa blogg Viðars Helga Guðjohnsen og sjá myndbandið þar?
María Kristjánsdóttir, 23.4.2008 kl. 23:10
Búinn að skoða, en sjáðu þetta!
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.4.2008 kl. 23:29
hvað meinarðu með því að hafa aðeins sólahringstímamörk á því að skrifa komment við færslurnar þínar?? viltu alltaf eiga síðasta orðið........?? ákveðin ritskoðun?
Harpa Oddbjörnsdóttir, 24.4.2008 kl. 01:21
Tímamörkin við að gera athugasemdir hjá mér er yfirleitt 14 dagar en frá því er einstaka sinnum brugðið. En hvað meinarðu með að vera ætla manni vafasamar tilhneigingar, "eiga síðasta orðið", "ritskoðun"?
Sigurður Þór Guðjónsson, 24.4.2008 kl. 09:32
Gleðilegt sumar báðir, Sigurður og Mali
Marta B Helgadóttir, 24.4.2008 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.