Hitabylgjan búin

Síðustu átta daga hefur hitinn náð tuttugu stigum eða meira einhvers staðar á landinu og reyndar á mörgum stöðum inn til landsins. En þokan og hafáttin olli því að lítið varð úr hitanum við sjóinn, t.d. í okkar ástkæru höfuðborg. Það sem af er mánaðarins er meðalhitinn hér samt hálft annað stig fyrir ofan meðallag eða jafnvel meira. Nú er dýrðin búin því í dag varð hvergi hlýrra en 18 stig og varð það í Hrútafirðinum af öllum stöðum.  

Og spáin næstu daga er einstaklega ógeðsleg. Fyrst verða votviðri en svo snýr hann sér í norðrið.  Þá birtir auðvitað yfir hér syðra en hitanum verður kannski ekki fyrir að fara. Eftir það gæti ég svo trúað að komi eldgos og hallæri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Það er naumast þó ert upprifinn með veðurspána. Ég er að fara í Meistaramót í golfi hjá GR um helgina. Það hefur bara ekki klikkað í þau skipti sem ég hef tekið þátt í þeim árlega atburði að það hefur verið ausandi votviðri alla dagana. Hvað munar mann svo um eldgos með tilheyrandi hallæri í kjölfarið . En Neskaupstaður nei takk. Varla fyrir kattardýr að mínu mati. Eitthvað annað í Hafnarfirði sem hefur aldrei verið flottari en núna á 100 ára afmælisárinu. Viltu kíkja aftur í kortin og vita hvort lóðar ekki á háþrýstisvæði einhversstaðar í nágrenninu kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.7.2008 kl. 21:51

2 Smámynd: halkatla

ég trúi ekki lengur á veðurguðina

halkatla, 11.7.2008 kl. 22:16

3 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Í minni fjölskyldu hefur ævinlega verið sagt ef góðviðri stendur lengi: Nú fer að gjósa. Það hefur auðvitað ekki alltaf staðist en ærið oft. Ég tek það fram að sama fjölskylda æðir yfirleitt af stað glöð í bragði til að komast sem næst eldgosum. Þannig að þessi afstaða byggist ekki á svartsýni.

Spurningin er bara núna var þessi kafli nógu langur?

María Kristjánsdóttir, 12.7.2008 kl. 01:40

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er ekki hægt að kvarta yfir sumrinu í Reykjavík hingað til, með sólríkustu júnímánuðum sem líka var hlýr og það sem af er júli hefur verið hlýtt og sæmilega sólríkt og svo bætist við einn af allra hlýjustu maímánuðum. Við fáum það lítið betra - en samt soldið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.7.2008 kl. 16:01

5 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Var þetta ekki bara orðið gott í bili ?  Maður/kona var alveg við það að fá sólsting hér í Vesturbænum.

Svo ég komi nú Hrútafirðinum til varnar, þá er þar nú alltaf fallegt þegar vel veiðist

Hildur Helga Sigurðardóttir, 12.7.2008 kl. 16:54

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst Hrútafjörðurinn alveg hrútleiðinlegur!

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.7.2008 kl. 17:12

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Af því að þau eru yfirvofandi. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.7.2008 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband