Ég sem hörkutól

Nýlega fékk ég athugasemd við bloggið mitt þar sem sagt var að ég væri hörkutól. Þó þetta hafi kannski verið í gamni sagt held ég að það hafi líka verið í því smávegis alvara. 

Ég get verið ákaflega harður í skrifum og jafnvel miskunnarlaus. Harðast gegn ég fram gegn valdinu í þjóðfélaginu sem ég hef illan bifur á enda veitir nú víst ekki af. En ég ræðst sjaldan gegn einstaklingum sem slíkum. Ég lýsi því ekki blákalt yfir að hinn eða þessi sé eymingi eða eitthvað þaðan af verra jafnvel þó það liggi í augum uppi að hann sé það.

Prívat og persónulega er ég í umgengni ljúfur eins og lamb sem verið er að leiða til slátrunar. Nema hvað ég get alveg varið mig ef á mig er ráðist. Þá rýk ég upp eins og naðra eða sporðdreki svo fólki verður ekki um sel af undrun og skelfingu. Ég sting samt ekki nema í algerri nauðvörn. Og þá er það banabit.

Ég get verið mjög ákveðinn og harður á mínu. Þrjóskari en andskotinn. Samt leyfi ég öðrum alveg að hafa sínar skoðanir. Ég nenni yfirleitt ekki að þjarka um stjórnmál og trúmál við fólk. Ég hef meira gaman af fólkinu sjálfu en skoðunum þess.

Miklar skoðanir eru fyrir einfeldninga og fífl. Og miklar skoðanir vaða alveg uppi á blogginu sem annars staðar.

Þetta er nú mín ofurlitla skoðun á þessu.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Jamm... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 15.7.2008 kl. 15:15

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

... og jæja!

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.7.2008 kl. 15:17

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gaman finnst hér að gapa,
glórunni er búinn að tapa,
spilltur sporðdreki,
sprækur erindreki,
Andskotans og angurgapa.

Þorsteinn Briem, 15.7.2008 kl. 15:44

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

 Kæra Hörkutól...... Þú segir hér

"Miklar skoðanir eru fyrir einfeldninga og fífl"

ÚFFFFF.....

Mér finnst nú nánast hver einasti bloggari sem ég hef lesið, vera með ansi sterkar skoðannir og þar á meðal ég

Brynjar Jóhannsson, 15.7.2008 kl. 16:45

5 identicon

Ertu viss um að það sé ekki Mali sem er hörkutólið? - og þú undirgefni þjónninn hans. 

Þannig er það allavega á mínu heimili - kötturinn stjórnar öllu hérna...

Helga (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 21:31

6 identicon

( +  + ) -   =

DoctorE (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 22:36

7 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Miklar skoðanir eru fyrir einfeldninga og fífl. Og miklar skoðanir vaða alveg uppi á blogginu sem annars staðar.
Fellur þetta ekki undir það að vera "mikil skoðun"?

Matthías Ásgeirsson, 16.7.2008 kl. 14:04

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nei, nei, þetta er algjört smáræði!

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.7.2008 kl. 15:18

9 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Þú ert með öðrum orðum að segja að fólk sem þú ert ekki sammála í áherslum séu einfeldningar og fífl.  Sinnuleysi sé hin eina sanna afstaða.

Svo kvartar þú yfir því að fólk fari ekki nægilega blíðum höndum um þig hér í athugasemdarkerfi.

Matthías Ásgeirsson, 16.7.2008 kl. 20:24

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hélt nú að þessi glannalega mótsögn sem er í síðustu þrem línunum væri öllum augljós og skilin sem þau öfugmæli sem þau eiga að vera. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.7.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband