Á morgun

Á morgun vona ég að verði enn hlýrra en í dag. Hef verið að reyna að skrifa á bloggið um hitabylgjur í júlí en gengur ekkert vegna hitasvækju og innri og ytri æsings.

Svo er kannski bara best að náttúran fái sjálf að tala sínu máli.

Það held ég nú.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnhildur Ólafsdóttir

Aldrei horfi ég á veðurfréttir. Né spyr fólk hvernig spáin sé - þó sumir vilji ólmir segja manni það. Mér finnst bara fínt að upplifa veðrið í beinni!

Gunnhildur Ólafsdóttir, 29.7.2008 kl. 22:05

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Auðvitað er veðrið alltaf best í beinni!

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.7.2008 kl. 22:19

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hvað er eiginlega þetta veður sem þú ert alltaf að tala um?

Heiða B. Heiðars, 29.7.2008 kl. 22:59

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Æ, Heiða, þú veður nú alltaf úr einu í annað.

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.7.2008 kl. 23:03

5 identicon

Innri og ytri æsingur?  Náttúra?  Ja hérna hér...

Þýða þessi merkingarþrungnu orð að Nimbus sé önnum kafinn við að skrifa djúsí, erótískan pistil í staðinn fyrir veðrið?

Malína (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 00:09

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ætli þetta sé bara ekki merkingarlaust rug!. En svona láta veðurdellumenn þegar þeir komast í feitt og heitt!

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.7.2008 kl. 00:22

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Tekur því nokkuð að gera veður út af þessu? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 30.7.2008 kl. 00:27

8 identicon

Feitt og heitt!  Þetta bara batnar!

Malína (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 02:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband