Vá!

Skyldi þessi spá ganga eftir?

Ég tryllist!

080729_1200_28


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það hefur væntanlega einhver róbótinn gert þessa hitaspá. En eigum við samt ekki að vonast eftir almennilegum 25 stigum þarna uppi á Veðurstofutúni?

Emil Hannes Valgeirsson, 29.7.2008 kl. 23:19

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég bráðna... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.7.2008 kl. 23:30

3 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

vó!

krossum putta...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 30.7.2008 kl. 00:02

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

uff... þetta er samt soldið....eins og í skáldsögu

Heiða B. Heiðars, 30.7.2008 kl. 00:08

5 Smámynd: Júlíus Valsson

Frábært! Það er ánægjulegt að Veðurstofan er farin að birta almennileg og nútímaleg veðurkort á vedur.is. Líklega hefur samkeppnin frá belgingur.is haft sín áhrif. Veðurstofan er annars hálfgerð risaeðla og ég hef það fyrir satt að það sé enginn þar á launum við að gá til veðurs! Tilvalið jobb fyrir gamlan bónda eða sjómann (eða kannski bara rithöfund?).

Júlíus Valsson, 30.7.2008 kl. 00:52

6 Smámynd: Beturvitringur

Er það rakinn eða heiðskýr himinninn sem veldur því að +25° C  hér á landi virkar miklu heitara en víða erlendis. Kannski bara krónan og lágt viðmiðunarveðurgengi?

Beturvitringur, 30.7.2008 kl. 00:53

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég líka!!  Kannski maður hætti bara við að flytja til Danmerkur, en þar var einmitt 24 stiga hiti þegar ég var þar seint í maí.

Daginn sem  við fórum heim, þann 30. maí,  var svo hitinn í Danaveldi kominn upp í 30 stig. Svona á þetta að vera!!

Svo vona ég bara að sumarið á Íslandi fari líka, ekki bara að hlýna, heldur einnig lengjast í báða enda, svo það vari lengur en þessa skitnu tvo til þrjá mánuðu eins og það oftast gerir.

Svava frá Strandbergi , 30.7.2008 kl. 01:41

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Svava: Sumarið hefur undanfarin ár ekki aðeins verið að hlýna heldur líka lengjast í báða enda frá því við vorum ung - en það er orðið æði langt síðan!

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.7.2008 kl. 01:50

9 Smámynd: halkatla

veðurfræðingar hljóta að verða ótrúlega vinsælir ef veðurspáin heldur áfram á þessum nótum svona almennt séð sko, en ef Ísland breytist í Ibiza 2 þá flyt ég til Grænlands!

halkatla, 30.7.2008 kl. 02:16

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ana Karen með nýrri mynd: Er bara ekki nóg að þú verðir áfram í Neskaupsstað þar sem voru brjóstumkennanleg 15 stig í dag?

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.7.2008 kl. 03:19

11 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

var þetta inni á vedur.is? kannski bara gæðingar eins og þið Mali sem fáið 27°

okkur hinum eru bara skaffaðar 22°

sussu, fer bara að skreppa suður á Ítalíu.

Brjánn Guðjónsson, 30.7.2008 kl. 03:59

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í Sigga hvín og syngur,
í sólskini mikill æsingur,
tápmikill Eros,
og tinkall í Oz,
út í fettir allt hann fingur.

Þorsteinn Briem, 30.7.2008 kl. 05:27

13 identicon

Siggi tryllist þegar sólin,
skín.
Heyrist í honum undarlegt,
hrín.

Í þrjátíu gráðum gengur um,
glaður.
Bíður ekki um bloggverja,
blaður.

dtm 

dtm (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 10:26

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Siggi, þetta eru kannski öfugmæli, en mér fannst annars svona í minningunni að það hafi alltaf verið sól og hiti, þegar við vorum krakkar og unglingar. T.d. þegar við vorum á Hreðavatni  þar sem komu þrumur og úrhellis hitabelitisrigning, eftir einn heitasta daginn.

Og í Skorradalnum var alltaf sól, minnir mig. Allavega stakk ég mér þar til sunds í Skorradalsvatn og stefndi út á  það mitt .  Og ég fann ekki fyrir kulda, Kannski af því að ég hló svo mikið, þar sem ég datt óvart á hausinn í vatnið þegar ég var að skyggnast um eftir silungsseiðum. Brá mér svo mikið við að detta í vatnið, að ég synti frá landi. Helga systir sem stóð á bakkanum, vissi ekki hvaðan á hana stóð veðrið þegar systir hennar tók upp á því svona  upp úr þurru, að stinga sér til sunds í jökulkalt vatnið.

En kannski er þetta einmitt merki um það, að maður sé farin að eldast að maður standi í þeirri trú að það hafi alltaf verið sól og sumar þegar maður var ungur.

Svava frá Strandbergi , 30.7.2008 kl. 21:53

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Svava: Þessi sumur, það var júlí reyndar, 1957 og 1958 voru mjög sólrík og hlý í Borgarfriði þó ekki kæmu dagar eins og þessi í dag. Og hér yrkja menn alveg á kommentakerfinu af einskærri veðurgleði! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 31.7.2008 kl. 01:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband