10.8.2008 | 22:46
Öskjuhlíð
Líf mitt er fullt af eins manns hefðum sem ég hef skapað sjálfur gegnum árin. Ein er sú að fara upp í Öskjuhlíð á góðviðrisdögum eftir að komið er fram í ágúst. Það er svo gaman að ganga göngustígana í suðurhlíðum hennar. Mest gaman er að stígnum sem liggur að grjótgörðunum. Það er hins vegar ótrúlega erfitt að finna rétta stíginn og þó ég hafi oft farið þarna fann ég hann ekki í dag. Það þyrfti að merkja hvert þessir stígar liggja. Þegar ég var strákur var hægt að fara á berjamó í Öskuhlíðinni. Nú er þar berjalyngið áfram en engin ber á því. Ekki veit ég hvernig á þessu stendur.
Ég er ekki viss um að þessi mikli trjágróður sé til bóta í Öskjuhlíðinni. Það er orðið erfitt að finna sæmilegar skvompur þar sem sólar nýtur. Útsynið af Öskuhlíðinni er frábært. Snæfellsjökull blasti við og ekki er hann nú næstum því horfinn eins og ein fíflafréttin á Mbl.is er þó að segja.
Ég bjó á unglingárunum í Hlíðunum. Þess vegna var ég vanur að enda Öskjuhlíðaferðinar með því að ganga niður Eskihlíð og fara yfir Miklubraut inn á Gunnarsbrautina. En nú er þetta ekki hægt lengur. Þetta ótrúlega andstyggilega umferðarmannvirki sem kom í staðinn fyrir hringtorgið á Miklatorgi lokar leiðinni. Það er komin girðing yfir Miklubrautina sem varnar gangandi vegfarendum leiðarinnar. Þeir verða að beygja hjá gamla Eskihlíðarbænum og ganga óraleið eftir umferðarbrúnni og fara síðan hasarderaðan veg yfir umferðargötur þar sem ekkert tillit er tekið til gangandi fólks.
Aðeins nokkrir metrar eru á milli neðsta hluta Hlíðahverfisins og Norðurmýrarinnar en af þessum ástæðum er samt alveg ómögulegt að komast auðveldlega milli þessara rótgrónu íbúðahverfa. Eina leiðin er um skarð í girðingunni sem liggur upp á mitt Miklatún sem hét reyndar Klambratún í mínu ungdæmi sem var á bítlaárunum. Þá var nú fjör!
Ég skil bara ekki svona heimskulegt og mannfjandsamlegt borgarskipulag.
Og þessi kaninka varð á vegi mínum í Öskjuhlíðinni í dag.
Meginflokkur: Ég | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 17:24 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Viljir þú upplifa enn meiri horror og mannfjandsamlegt skipulag, þá spásséraðu um í Smáralindinni. Til fróðleiks, sem sagt, fremur en skemmtunar
Rómverji (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 23:41
Það er þá ekki búið að slátra þeim öllum. Ég hef ekki séð kanínur þarna lengi og heldur ekki í kirkjugarðinum. En sammála með að það má grisja trén í Öskjuhlíðinni.
Marta Gunnarsdóttir, 10.8.2008 kl. 23:44
Ekki mæli ég Smáralindinni bót, en hún er ekki íbúðarhverfi. Mér fnnst að taka hefði átti eitthvert tillit til þess að fólk geti komist milli íbúðahverfa sem liggja svo að segja saman en er nú búið að kljúfa með hamragili sem enginn kemst yfir nema fulglinn fljúgandi.
Sigurður Þór Guðjónsson, 10.8.2008 kl. 23:55
Miklabrautin verður lögð í stokk og þá geta stokkendurnar gengið í sérstökum stokkandarstokk frá Tjörninni og upp í Kringlu til að kaupa í kveldmatinn.
Reist verða hús á stokknum, sem verður margra milljarða króna virði sem byggingarland, og öll mengunin úr stokknum fer í röri til Húsavíkur.
Þorsteinn Briem, 11.8.2008 kl. 00:21
"Taktu hár úr hala mínum... !! " Það er ekki gert ráð fyrir að fólk sé að "flækjast" þarna á tveimur jafnfljótum...... farðu á bílnum maður!!!! !!!!
Edda (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 00:26
Er það ekki langsótt að menn þurfi að fara á bíl nokkra metra milli íbúðarhverf? Og Þó bílar séu ágætir er samt ekkert gaman að fara í gönguferðir á bíl!
Sigurður Þór Guðjónsson, 11.8.2008 kl. 00:31
Er verið að slátra kanínunum í Öskjuhlíðinni? Hvurslags mannvonska er nú það? Dýrvonska öllu heldur...
Malína (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 00:56
Farðu nú að sofa Helga Malína! Klukkan er að verða eitt.
Sigurður Þór Guðjónsson, 11.8.2008 kl. 01:00
En ég er nátthrafn! Halló! Við sofum ekki á nóttunni!
Malína (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 01:05
Ég er farinn að sofa! Og Mali er hringaður eins og nýra og steinsefur.
Sigurður Þór Guðjónsson, 11.8.2008 kl. 01:20
Malína (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 01:31
Mæltu manna heilastur. Þetta lengdi gönguferðina niður í bæ um margar mínútur, þegar ég bjó í Eskihlíð. Mér finnst að þeir ættu að leggja göngubrú þarna strax í dag.
Elías Halldór Ágústsson, 11.8.2008 kl. 07:45
ég man þegar þessi ömurlega girðing var sett upp
annars er þetta bara kerfið á Íslandi, ef eitthvað virkar þá þarf að eyða peningum í að skemma það, og svo í að laga og breyta. Ekkert er nógu gott fyrren það hefur verið lagfært fyrir mikla peninga, langt frammúr áætlun
halkatla, 11.8.2008 kl. 09:26
ekkert smá sæt þessi litla kanína - Karítas langar nú bara að leika við hana
halkatla, 11.8.2008 kl. 09:30
Já, kanínan er best. Ein svona skoppar um heima hjá mér.
Emil Hannes Valgeirsson, 11.8.2008 kl. 09:40
Hvernig vissi ég að þú myndir falla fyrir þessari kanínku Anna Karen? Getur verið að ég sá smávegis forspár og djúpvitur? En hvar er Bangsíimon, asninn og gríslingurinn?
Sigurður Þór Guðjónsson, 11.8.2008 kl. 11:15
eru það ekki blessaðar kanínurnar sem eta öll berin í Öskjuhlíðinni?
Brjánn Guðjónsson, 11.8.2008 kl. 11:43
Ekkert jafnast á við góða kanínu:
http://www.matarlist.is/recipe.asp?recipe_id=520
Rómverji (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 11:58
Ég efast um að kanínurnar eigi sök á berjaleysinu. Þær hljóta þá að sitja alveg um þau og éta þau löngu áður en þau ná þroska. Það hafa ekki einu sinni sést grænjaxlar í mörg ár, bara lyngið sjáflt. Er það ekki fremur mengun sem veldur? Eða eitthvað.
Sigurður Þór Guðjónsson, 11.8.2008 kl. 12:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.