Góð ákvörðun

Þessi tíðindi mega ekki kafna í áhuganum fyrir leik Íslendinga í undanúrslitunum á ólympíuleikunum.

Björn Bjarnason, sama sem bloggvinur minn, hefur tekið þá ákvörðun að mál Páls Ramses verði tekið til umfjöllunar á nýjan leik.

Það er gaman að eiga slíkan mann sem sama sem bloggvin!


mbl.is Mál Ramses tekið fyrir á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

þetta er frábært og það er leikurinn líka

halkatla, 22.8.2008 kl. 13:09

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, að leikslokum fór ég meira að segja að gráta í fyrsta sinn síðan ég fæddist!

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.8.2008 kl. 14:17

3 identicon

Sammála! Batnandi manni er best að lifa. Og þar á ég við bloggvin þinn (geri ekki ráð fyrir að þú lagist mikið úr þessu...(.

Jón Bragi (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 14:47

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mál Paul Ramses og hans fjölskyldu er auðvitað hápunktur dagsins, hitt er skemmtilegur bónus.

Fórstu að grenja?

Fruss, ég skellihló.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2008 kl. 15:12

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En yfir hverju hrundi mér hagl af hvarmi? Það veit Mali einn! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.8.2008 kl. 15:57

6 identicon

Til hamingju með "sama sem bloggvin" þinn, Sigurður!  Honum er greinilega ekki alls varnað.  Svo virðist sem þú hafir unnið fyrstu lotuna í störukeppninni milli þín og hans!   Fyrsta orustan unnin!  Veieiei...

PS.  Ég tek undir varðandi leikinn í dag - ég fór líka að brynna músum að honum loknum.  Og ég hálf skammast mín fyrir að viðurkenna það vegna þess að ég er marg yfirlýstur antisportisti.  Ég semsé sveik lit í dag - mitt grjótharða antisportistahjarta bráðnaði gjörsamlega í klessu á no time.  Nú er ég orðinn tækifærissinnaður sportisti!  Batnandi konu er best að lifa!  Áfram strákarnir okkar, allir með tölu!

Malína (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 16:26

7 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, nú er ég líka ánægð með Björn Bjarnason - kannski bara svolítið meira en strákana -sem er þá ansi mikið.

María Kristjánsdóttir, 22.8.2008 kl. 18:36

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já María, nú eru víst allir ánægðir með alla! Mali malar stanslaust!

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.8.2008 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband