Reykviskt veður

Það hellirigndi á borgarstjórann þegar hún setti Menningarnótt í dag. Hún talaði um að það væri bara "reykvíkst veður". Það á víst að skilja sem svo að hér sé alltaf "rok og rigning". Það virðist vera innprentað í fólk að mikil "rigning og rok" sé eitthvað sérstaklega dæmigerð fyrir landið og þá líka Reykjavík. Auðvitað er oft svona veður en enn þá oftar annars konar veður, jafnvel blíðviðri viku eftir viku.

Hið dæmigerða íslenska veður er ekki endilega "rok og rigning". Hið "dæmigerða" íslenska veður er reyndar varla til því hér er veðráttan mjög breytileg sem þýðir samt ekki að hún sé endilega svo vond. Hér eru vetur til dæmis furðulega mildir. Sumrin hafa farið mjög  batnandi síðari ár eða réttara sagt færst aftur í það horf sem þau voru mikinn hluta 20. aldar eftir all-langt skeið með hraklegum sumrum.

Það er líka rangt sem oft heyrist, bæði í gamni og alvöru, að veður séu "betri" fyrir norðan en á suðurlandi. Til dæmis er sólríkara fyrir sunnan en á norðurlandi fyrir utan það að þar er hlýrra að jafnaði. Og hin síðari ár hefur fremur mátt búast við mestu hitunum á suðurlandi en fyrir norðan.

Þetta skiptir náttúrlega ekki miklu máli hvernig borgarstjórinn komst að orði og ekki ber svo sem að taka það of alvarlega. Allt var þetta á léttu nótunum mælt í mikilli rigningu. 

Mér finnst samt þessi klisja sem klingir  hve nær sem rignir að það sé eitthvað sérstaklega dæmigert veður fyrir Ísland að þar sé rigning orðin ósköp þreytandi.

Af því að hún gengur ekki upp.

Hitt er annað mál að ég er ekki frá því að Mennngarnótt sé heldur seint að sumrinu. Hitafar að meðallagi er þá farið að lækka talsvert. Það er líka hættar við votviðrum og hraglanda heldur en um hásumarið.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þessi dagur er sennilega einn af þeim sístu sem komið hafa í sumar hvað veðrið varðar en þessi rigning er jú bara ein tegund af Reykvísku veðri eins og þú segir. Stundum finnst manni að það megi ekki tala illa um veður á ákveðnum stöðum á landinu á meðan mönnum er gefið algert skotleyfi á veðrið í Reykjavík. En auðvitað eiga allir landshlutar sínar góðu og slæmu veðurhliðar en góðu hliðarnar snúa bara ekki alltaf upp allstaðar á sama tíma.

Emil Hannes Valgeirsson, 23.8.2008 kl. 17:52

2 Smámynd: halkatla

núna er norðfirskt veður hjá mér

halkatla, 23.8.2008 kl. 17:57

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, Emil, einmitt! Hver landshluti á sína góðu og slæmu hliðar veðurfarslegar og ekkert tal um veður er eins leiðinlegt eins og héraðarígur í þeim efnum en fíflatalið um að "hjá okkur er alltaf gott veður" er jafnvel enn verra. Ég undaskil þó Norðfjörð í þessu dæmi. Þar er veðurfar þannig að það er langt fyrir neðan mína gríðarlegu virðingu að ræða það svo mikið sem! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.8.2008 kl. 18:23

4 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Rok og rigning er orðið fáséð í Reykjavík, það rignir talsvert oftar beint niður en það gerði.  Væntanlega hefur trjágróður borgarinnar heilmikið um það að segja.

Síðustu þrjú sumur hafa verið mjög fín hér fyrir sunnan, þetta má alveg vera svona áfram

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 23.8.2008 kl. 20:48

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Trjágróður borgarinnar hefur stórlega dregið úr veðurhæð í Reykajvík, það er alveg viðurkennt.

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.8.2008 kl. 20:52

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kl. 21 var hitinn í Reykjavík 9,3 stig og hefur ekki verið jafn lítill á þeim tíma í næstum tvo mánuði. Í dag var 13 stiga hiti og rigndi bara annað slagið. Ég get því ekki séð að veðrið hafi endilega "batnað" eins og veðurfræðingurinn vildi meina. Hitastigið skipir mjög miklu máli til að fólki líði vel t.d. á útutónleikum. Mér finnst veðrið hafa stórum versnað síðan í dag.

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.8.2008 kl. 21:52

7 identicon

"......að veður séu "betri" fyrir norðan en á suðurlandi."

Við förum nú ekki að láta þingeysku loftbelgina spilla gleði okkar hérna í góða veðrinu í höfuðborginni!

Malína (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 01:17

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Ósammála Sigurði þarna, veðrið snarbatnaði fram á kvöld, rigning og rok er alltaf verra veður en þurrt og logn fyrir minn smekk, mér er nær alveg sama um hitastigið.  Fyrirbærin vindkæling og loftraki skipta meira máli en það, um hvort manni er kalt eða ekki.  Ég fór ekki á útitónleikana en það gerðu vinir mínir og var ekkert kalt.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 25.8.2008 kl. 00:34

9 identicon

Já það er ekki létt að lýsa veðrinu á Íslandi einsog það er margbreytilegt.

Ég bý í Svíþjóð og fólk er oft að spyrja mig hvort ekki sé óskaplega kalt á Íslandi en ég get ekki nefnt neinar frosttölur til að imponera á viðmælandur mína. Það sem er stærsti munurinn, finnst mér dramatíkin í veðrinu á Íslandi, þessi óskaplegu rok sem stundum eru, en ekki er svo þægilegt að útskýra þau fyrir fólki.

Það sem kallað er stormur hér og þykir fréttnæmt óveður myndi í hæsta lagi vera kallað "strekkingur" á Íslandi.

Fjórir vinnufélagar mínir sænskir dvöldu á Íslandi í tvær vikur í desember síðastliðnum og þeir fengu að upplifa íslenskt rok og þótti mikið til koma.

Jón Bragi (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 07:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband