Jæja þá

Við skulum bara ekkert vera að breyta nafninu á landinu.  Ísland skal það áfram heita. 

Það er mín hyggja að haust muni snemma að leggjast með frostum allmiklum og ofankomum, en vetur mun hinn harðasti verða til sjávar og sveita með kaföldum ógurlegum og jarðbönnum og alls konar öðrum bönnum og munu þá margir aðkrepptir verða og illir viðskiptis um allar sveitir. Um jafndægur munu hafísar leggjast að ströndum í hrönnum og grimmir hvítabirnir munu um landið eigra og eta upp menn suma alla sem á vegi þeirra verða, en ríða má yfir hvern fjörð og hverja vík sem á föstu bóli væri.  

Og það verður mikið riðið! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Gott að lesa svona jákvætt og uppbyggilegt efni fyrir svefninnþ

Hólmdís Hjartardóttir, 26.8.2008 kl. 01:16

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hvaða Hvaða, er bara verið að spá nýjum frostavetri hinum mikla.  Ekki hef ég trú á því að svo verði.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.8.2008 kl. 01:25

3 identicon

Við þurfum ekki að kvíða frostavetri með þetta líka afbragðs úrræði til að halda á okkur hita í frosthörkunum!  Leikfimiæfingar a la Malapabbi! 

Malína (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 02:06

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Mikið er ég feginn að þú skulir ekki ætla að breyta nafni landsins. Ég var farinn að hafa áhyggjur.

Loksins, loksins almennnilegur vetur á Íslandi!

Ágúst H Bjarnason, 26.8.2008 kl. 06:08

5 Smámynd: Sævar Helgason

Hún leggst þungt á lífríkið þessi skyndilega lægð sem yfir okkur gengur Þessa dagana.  Nafnið á landinu ómögulegt og harðindi framundan.  Svo hækkar loftþrýstingurinn á ný og lífríkið tekur gleði sína að nýju. En það er gaman að þessu og pistlarnir þínir góðir-- takk fyrir það.

Sævar Helgason, 26.8.2008 kl. 09:06

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er að drepast úr kulda og mér er alveg sama hvers vegna, ofnarnir eru bilaðir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.8.2008 kl. 09:25

7 Smámynd: halkatla

bara svo lengi sem bangsarnir fá nóg að borða þá er ég sátt

halkatla, 26.8.2008 kl. 10:48

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Bara að þeir borði ekki Kassí og Karítas!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.8.2008 kl. 10:50

9 Smámynd: Marta smarta

Svo mörg voru þau orð. 

Þá er bara að draga fram gömlu góðu Kraft-gallana og brosa upp í veðrið. 

Það vorar alltaf aftur, ekki satt.

Marta smarta, 26.8.2008 kl. 12:21

10 Smámynd: halkatla

ég veit allt um það :

29.ágúst Höfuðdagur – Stór dagur. Hér bregður vanalega veðráttu og helst þá við það sama í 20 daga en minnir á það í heila 40 daga eftir Egidiusarmessu.
veðrabreytingin helst fram að réttum eða uþb þrjár vikur.

halkatla, 26.8.2008 kl. 15:25

11 Smámynd: halkatla

fyrir þá sem muna hvernig veðrið var á sunnudaginn:

24.ágúst Bartólómeusarmessa – fyrirboði um það sem haustið ber í skauti sér.

halkatla, 26.8.2008 kl. 15:26

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þar fáið þið það!

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.8.2008 kl. 17:18

13 identicon

Það var svakaleg rigning hérna hjá mér á sunnudaginn, aldrei séð annað eins á þessu svæði....shit..verður það þá svoleiðis....en það var hlýtt :)

alva (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 00:48

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það verður verra!

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.8.2008 kl. 01:08

15 Smámynd: Gulli litli

Verður ridid mikið í Danmörku?

Gulli litli, 27.8.2008 kl. 02:00

16 identicon

Danirnir eru mjög flinkir við alls kyns leikfimiæfingar...

Malína (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 02:29

17 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Eru menn að lesa eitthvað annað út úr þessum þjóðlega texta en ástæða er til? Hver sér náttúrlega sjálfs síns hug í því sem hann les!

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.8.2008 kl. 10:29

18 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Gott að vita að veturinn verður ljúfur þó veður verði óvægin.

Jón Halldór Guðmundsson, 27.8.2008 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband