30.9.2008 | 13:37
Votviðrasamur september á suður-og vesturlandi
Nú er ljóst að þessi september er sá annar úrkomumesti sem mælst hefur í Reykjavík. Metið er frá 1887, 176,0 mm, en nú reikna ég úrkomuna 173,6 mm.
Víða á suður-og vesturlandi er ljóst að þetta er úrkomusamasti september síðan mælingar hófust. Hér verða nefnd nokkur dæmi um stöðvar sem settu met og innan sviga er árið þegar mælingar á þeim hófust.
Fyrst er þá Stykkishólmur (1856) þar sem metið frá 1933 var glæsilega slegið. Þar fauk líka sólarhringsúrkomumetið. En auk þess Andakílsárvirkjun (1950) þar sem úrkoman núna var hátt upp í helmingi meiri en hún hefur áður verið, 1959; Stafholtsey (kringum 1990), Ásgarður í Dölum (1992), Mjólkárvirkjun (1960), Hólar í Dýrafirði (1982), Hæll í Hreppum (1927). Annars staðar en á suðurlandi, vestan við Mýrdal, og upp á sunnanverða Vestfirði, er langt í frá að úrkoman í þessum mánuði sé eitthvað sérstök, nema á Kvískerjum í Öræfum, úrkomusamasta stað landsins. Mér kæmi ekki á óvart þó þessi mánuður hafi þar sett Íslandsmet í úrkomu í september, en ekki hafa síðustu daga komið þaðan fréttir inn á netið nema frá sjálfvirku úrkomustöðinni.
Ekki þori ég fyrir mitt litla líf að nefna tölur því þær hef ég kannski sumar ekki alveg hundraðprósent réttar, en ég þori að hengja mig upp á þessi met. Nú, ef þau eru ekki rétt, þá hengi ég mig bara - og þó fyrr hefði verið!
Meðalhitinn í Reykjavík er í kringum 9,4 stig sem eru talsverð vonbrigði því hann var 10,1 stig þ. 24. Sólskinsstundir eru eitthvað nærri 100 sem er hvorki mikið né lítið. Mánuðurinn er annars hlýr um allt land og líklega víðast hvar tiltölulega hlýrri annars staðar en í Reykjavík og jafnvel í hreinum tölum. Á austurlandi kemur mánuðurinn mjög vel út, held ég.
Sumar á Íslandi er talið vera frá júní til september. Ekki er hægt að segja annað en þetta ágæta sumar endi alveg hörmulega. Nú er hálfgert vetrarveður fyrir norðan og í morgun var alhvít jörð og snjódýpt 1 cm á Skeiðsfossvirkjun í Fljótum og jörð talin flekkótt af snjó á nokkrum stöðum á norðausturlandi. Þetta er fyrsti haustsnjórinn. Hiti núna er langt undir meðallagi og vel getur verið að fara að snjóa í Reykjavík næstu daga. Eitthvað álíka hefur auðvitað gerst áður en þetta er alveg jafn andstyggilegt fyrir því. Október hefur oft verið ljúfur síðustu árin og stundum verið sumarveður.
Nú leggst það í mig að verði óárán hin mesta í vetur og muni hann Lurkur kallaður verða eður Hreggviður!
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Sorrý, að ég spurði! Þetta var ekki meint sem nein vandlæting. Það er óþarfi að æsa sig upp í háa C-ið....
Malína (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 16:35
Það hafa komið vandlætingar yfir mínu veðurbloggi og bara þó nokkuð oft, því er ég að ýja að.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.9.2008 kl. 16:43
Mér finnst veðurbloggið þitt frábært og les alltaf allt, líka Einar Sveinbjörns og Emil Hannes. Veðurfræði er áhugaverð og skemmtileg.
EN ég blogga ekki sjálf um veðrið. Hef engar forsendur til þess.
Er ég þá ekki vitsmunavera?
Lára Hanna Einarsdóttir, 30.9.2008 kl. 20:47
Og ég sem kom ekki blessuðum haustlaukunum ofan í moldina í dag. Sé ekki heldur að ég hafi tima til þess næstu daga og þú segir að það fari kannski bráðum að snjóa í Reykjavík.
Svava frá Strandbergi , 30.9.2008 kl. 23:35
Ertu viss um Sigurður að þetta sem þú kallar vandlætingar séu það alltaf í raun? Það er nefnilega ekki víst að þeir sem fá athugasemdir skynji alltaf það sem liggur að baki, stundum getur jafnvel bara verið um saklausa smástríðni að ræða í fullri vinsemd.
Emil Hannes Valgeirsson, 30.9.2008 kl. 23:41
Kannski er vandlæting ekki rétta orðið en menn hafa stundum sagt nokkuð yfirlætislega að veðrið sé ekki áhugavert.
Sigurður Þór Guðjónsson, 30.9.2008 kl. 23:52
Ég skil ekki hvernig nokkrum Íslendingi getur fundist veðrið EKKI vera áhugavert. Veðrið hefur stjórnað þessari þjóð á svo margan hátt í gegnum aldirnar - og gerir enn þótt í minna mæli sé kannski og áherslur hafi breyst.
Svo eru hinir órannsakanlegu vegir veðursins svo fjári spennandi.
Lára Hanna Einarsdóttir, 1.10.2008 kl. 00:07
Emil
Malína (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 00:40
Ég held að ég kunni ágætlega að þekkja stríðni þegar hún birtist í lífinu en get kannski feilað stundum, en ekki svona yfirleitt. Aðfinnslur um veðurfærslur mínar eru oftast ekki nein stríðni.
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.10.2008 kl. 13:10
Æj Æj, er ég núna orðin vonda og grimma konan?!
Það hefur aldrei verið meiningin hjá mér að ráðast eitthvað sérstaklega á veðurfærslurnar þínar. Eigum við ekki að segja að þær hafi bara verið "innocent bistander". Athugasemdir mínar á þessar færslur hafa aðeins verið aumleg tilraun hjá mér til að kommúnikera við þig - ég gerði það bara á svona fíflalegan hátt. Ég er því miður ekki betri að mér í mannlegum samskiptum en þetta - enda aldrei verið mín sterka hlið.
Þar hefurðu það, herra Nimbus! Ég vona að við séum ekki orðnir óvinir.
Malína (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 16:57
Leiðrétting: "Innocent by-stander" Þetta var ekki meint sem nein árás á veðurfærslurnar!
Malína (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 17:16
Sæll Sigurður Þór !
Fín samantekt að vanda.
ESv
Einar Sveinbjörnsson, 2.10.2008 kl. 13:12
Hafðu ekki áhyggjur Malína! Þetta er allt í lagi!
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.10.2008 kl. 17:47
Veðrið er yndislegt, njótum þess.
Hafdís Lilja Pétursdóttir, 3.10.2008 kl. 08:13
heyrðu Siggi minn. ég bara verð að spyrja þig....
...nú á þessum tímum bölmóðs og volæðis....hvernig getur þú bara hugsað um veðrið?
Brjánn Guðjónsson, 6.10.2008 kl. 23:17
Sæll bróðir góður. Ég vona nú alltaf að þú farir að blogga aftur um annað en veðrið. þó ekki hafi ég neitt út á veðrið að setja. Þú ert bara svo andsk... skemmtilegur og góður penni að það er synd að missa alveg af pistlunum þínum.
Tító, Gosi og ég biðjum að heilsa Mala.
Svava frá Strandbergi , 7.10.2008 kl. 00:58
Hvar er Mali? Ég sakna hans
Stríða, 8.10.2008 kl. 02:07
Ég verð nú bara að viðurkenna að ég bíð eftir því í ofvæni að þú Sigurður bloggmeistari ávarpir þjóð þína á þessari ögurstundu....
Jón Bragi (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 19:58
Jón Bragi, Nimbusinn er að útbúa nýja veðurfærslu fyrir okkur hin til að nöldra yfir...
Malína (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 02:11
Halló Sigurður!
Nú er verið að lýsa Þórbergi sem geðveikum á bloggi Hörpu Hreinsdóttur.
Hvað skal gera?
Jón Bragi (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 22:14
Ég sakna Nimbusar og Mala!
Malína (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 21:33
Halló!Halló!
María Kristjánsdóttir, 18.10.2008 kl. 01:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.