28.11.2008 | 15:17
Veðurheimska og rólegheit
Tvær píur hlupu í gær hálfberar út á Lækjartorg til þess að mótmæla loðfeldum. En í fréttum sjónvarpsins var haft eftir þeim að Ísland væri kaldasta land sem þær hefðu mótmælt í og höfðu þær þó bæði verið í Moskvu og Helsinki.
Það var óvenju hvasst í gær og því ansi napurt þó hitinn hafi ekki verið lægri en um frostmarkið.
Hins vegar eru viðbrögð stelpnanna alveg dæmigerð fyrir margt fólk hvað dóma um veðurfar varðar. Það kemur til einshvers lands á þeim svæðum heimsins þar sem veðrið er mjög breytilegt og er þó kannski sjálf frá sams konar landi. Og alveg umsvipalaust dæmir það veðráttu þessa lands sem það kemur til eftir upplifun sinni af einum veðurdegi eða svo. Það hugsar ekkert út í það að veðrið í landinu sé álíka breytilegt og heima hjá því sjálfu.
Þetta kalla ég veðurheimsku. Og veðurheimska er versta tegund af heimsku. Af því að hún ber vitni um það að menn skynji ekki umhverfi sitt.
Samt er hægt að fyrirgefa þetta.
Hins vegar er ekki hægt að fyrirgefa það að rækta loðfeldi. Mér finnst að ætti að flá alla loðdýraræktendur lifandi. Og gera það í rólegheitunum.
Í eigin skinni á Lækjartorgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Kannski er ekki hægt að ætlast til mikillar og djúprar veðurspeki af fáklæddum konum, jafnvel þótt þær séu að mótmæla loðdýrarækt.
Emil Hannes Valgeirsson, 28.11.2008 kl. 18:35
Já, það loðir alltaf við vegna nafnsins að talað er um Ísland sem kalt land. Í raun er það auðvitað vitleysa því við höfum svöl sumur og hlýja vetur. Hins vegar er hér nokkuð veðrasamt og varðar það helst að það er útkomusamt og nokkuð vindasamt, veður breytist ört.
Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 19:47
Veðurheimska er nú kannski ekki alveg versta tegundin af heimsku. Hún er nú til svartari heimskan.
En annars er ég þó nokkuð sammála þér.
Þórdís (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 20:56
Ég hafði þungar áhyggjur af því að það myndi slá að stelpunum. Vonandi eru þær heilar heilsu.
En fyndnast fannst mér að sjá í einhverjum netfjölmiðli sagt að þær hefðu verið berrassaðar á torginu, því það voru þær nú ekki... alveg. Hins vegar voru þær berbrjósta.
Lára Hanna Einarsdóttir, 28.11.2008 kl. 21:04
Mér ogbauð nú lýsingar þessara stelpna, sem voru meira að fá útrás fyrir sýniþörf (sem var vel þegin) en að vekja athygli á dýravernd. Þær töluðu um að dýr væru rotuð og flegin lifandi og fleira svo óhuggulegt að ég hafði jafnvel aldrei heyrt annað eins. Hvaða erindi það átti hingað upp, fæ ég ekki skilið. Annars eru þessi PETA samtök eitt þessara lyga, skemmdarverka og öfgasamtaka, sem þrífast á peningagjöfum ólæsra iðjuleysingja, líkt og Sea Sheppard og Greenpeace.
Jón Steinar Ragnarsson, 29.11.2008 kl. 12:44
Þessar stelpuskottur voru samt ótrúlega óheppnar með tímasetningu á þessum mótmælum, ég efast um að þær hefðu getað fundið tíma sem Íslendingum almennt væri minna sama um akkúrat þetta, en núna, þó þær hefðu reynt...
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 29.11.2008 kl. 18:18
Sigurður Helgi: Ég mæti þá með sveðjuna en af því að þetta er þú skal ég hespa það af í einum hvelli og vera ekkert að drolla! Jón Steinar: Nú gerirðu mig mát. Ég veit ekkert um þessi Petasamtök. En ég var bara að hugsa um hvað hann Mali er mjúkur og fínn á feldinn og góður í sér og fór að halda með öllum loðdýrum. Það veit guð að það var ekki illa meint. En fyrst og fremst var ég að koma veðurspeki á framfæri.
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.12.2008 kl. 01:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.