Auðlindin

Nú ætla ég að líta upp úr veðurskræðunum til að vera neikvæður. Hvernig dettur Ríkisútvarpinu í hug að setja þennan mjög svo sérhæfða þátt Auðlindina,sem fjallar um atvinnumál, á dagskrá klukkan 19:15? Þessir þættir eru afar sérhæfðir og höfða áreiðanlega ekki til fólks í stórum stíl. Áðan var til dæmis fjallað um þaravinnslu.

Menn verða svo að bíða eftir Speglinum til klukkan hálf átta en þar er fjallað um efni sem höfðar til miklu fleiri.

Er ekki hægt að finna annan og hentugri tíma í dagskránni fyrir þessa atvinnumálaumfjöllun sem Auðlindin er? Ég held að þetta sé leiðinlegasta efni sem ég heyri í útvarpinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

sem fjasað frá mínu hjarta. reyndar er Auðlindin orðin örlítið almennari atvinnumálaþáttur en í upphafi, þegar hann fjallaði aðeins um ufsa og ýsur.

mér þykir þetta stórt skref til baka, að hafa ekki nema korters aðalfréttatíma og svo einhvern þátt sem fáir hafa áhuga á og slítur milli örfréttatímans og fréttaskýringaþáttarins Spegilsins, sem er oft ansi góður.

Brjánn Guðjónsson, 3.12.2008 kl. 18:40

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Það er líka búið að flytja helstið úr fréttunum fram fyrir spegilinn-það er einsog hreinlega sé verið að gera í því að hindra hlustun á einn besta þátt rúv: spegillinn.

María Kristjánsdóttir, 3.12.2008 kl. 18:52

3 identicon

18:15!

Sigurbjorn Sveinsson (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 20:34

4 Smámynd: Drífa Kristjánsdóttir

Ég hef ekki álit á efninu en bendi bara á að tímasetning þín Sigurður er ekki rétt.  Auðlindin hefst klukkutíma fyrr en þú segir eða kl. 18:15.  Spegillinn byrjar kl. 18:30.  Ekki svo sem að þetta skipti máli. Þú fyrirgefur það var ekki illa meint að gera þessa athugasemd.......

Drífa Kristjánsdóttir, 3.12.2008 kl. 22:10

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er oft búinn að lesa þessa tímasetningu þegar ég var að vita um athugasemdir og sá aldrei neitt athugavert við hana. Ekki er ég nú alveg í sambandi! Það gerir veðrið! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.12.2008 kl. 22:28

6 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Væntanlega er fullt af fólki sem hefur misst vinnuna og er á leiðinni að missa vinnuna ósammála um að þáttur um atvinnumál sé á góðum tíma. Mér finnst gott að endurreisa þennan þátt, kemur í stað fjass um fjármálamarkað (gott að losna við þær Nasdaq og álíka upptalningar)

Reyndar er samt Spegillinn enn mikilvægari og það má ekki skyggja á hann.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 3.12.2008 kl. 22:31

7 Smámynd: Magnús Þór Friðriksson

Fyrir mér er þetta ekki svona mikið mál... hlusta á heila klabbið... Fréttir, Auðlindina og Spegilinn. Auðlindin á í mínum huga fullan rétt á sér á þeim tíma sem hún er, þar sem hún segir okkur yfirleitt fréttir af einhverju uppbyggilegu sem er að gerast í atvinnulífinu.

Innilega sammála Hildigunni með það að nú er mál að linni fréttum af Vísitölum og öðrum eins ófögnuði sem voru sem guðsorð fyrir suma þar til fyrir stuttu.

Magnús Þór Friðriksson, 4.12.2008 kl. 00:44

8 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Bölvuð arfavitleysa Siggi. Þaratínsla er bráðnauðsynleg iðja. Kreppa og útrásarsamúræar neyddu t.d. japönsku þjóðina til að leita til sjávar og safna þangi og þara og jafnvel sæbjúgum. Fljótlega þegar hrísgrjónin fóru aftur að gróa, fundu þeir upp Súshi, sem er mikil auðlind og gott fóður fyrir vel fjáða og jafnvel illa stönduga eins og mig.

Mér þykir leitt að hafa misst af þættinum. Þátturinn um berjatínurnar var bestur.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.12.2008 kl. 01:40

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er bara svo hræddur við fjörulallana.

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.12.2008 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband