Jólasnjórinn

Hanna G. Sigurðardóttir var áðan í útvarpsþætti sínum, ''Vítt og breitt'', að tala um að nú væri jólasnjór og bætti við: ''Bara að hann fari nú ekki''.

Í morgun var snjódýpt 10 cm í Reykjavík og búið að vera alhvítt í fimm daga. Í nótt bættust 5 cm við snjóinn. Næstu daga mun bætast enn meira við. Hins vegar er spáð hláku og rigningu 22. desember og mun hún standa alla jóladagana ef spáin engur eftir. Ég held samt að þessi hláka verði ekki mjög sterk og búast megi fljótlega við suðvestanátt og éljagangi.

Hvergi er nú alautt á landinu en jörð er þó einungis flekkótt af snjó sums staðar við suður- og norðausturströndina, á vesturlandi og Vestfjörðum og - merkilegt nokk - inni í Eyjafjarðardal  og Bárðardal.

Ég efast mjög um að snjó taki upp í Reykjavík fyrir jól en hann gæti verið orðinn æði skítugur og slabblegur og kannski verður flekkótt og miklir klakabunkar. Svona nokkurn vegin eins andstyggileg jörð og hugsast getur að vetrarlagi.

Í fyrra var alhvítt að morgni  Þorláksmessu í Reykjavík og var alhvítt um öll jólin, komin 12 cm snjódýpt á öðrum degi jóla. Á Akureyri var jörð aðeins talin flekkótt að morgni jóladags en alhvítt aðra jóladagana. Öllum að óvörum var alhvít jörð á jóladagsmorgun í Reykjavik árið 2006 en snjólaust var á aðfangadag kl. 18 þegar hátíðin gekk í garð og alla aðra jóladaga og þetta ár voru alauð jól á Akureyri. Reyndar held ég að flestir miði í huga sér við kl. 18 á aðfangadag hvað  hvít jól varðar eða  rauð. Á Veðurstofunni er snjóhula hins vegar aðeins athuguð klukkan 9 að morgni og segir ekkert um hvernig snjólag er klukkan 18. Hins vegar er hægt að sjá hér veðrið á þeim tíma um land allt frá 1949 á aðfangadag.

Það hafa sem sagt verið hvít jól í Reykjavík tvö ár í röð og hugsanlega verður þetta þriðja árið. Athugasemd fréttamanns sjónvarps á dögunum um það að nú séu alltaf rauð jól í borginni stenst sem sagt ekki betur en þetta. Eins og sjá má á snjóatöflunni er nokkur munur á jólasnjó eftir tímabilum þegar nokkur ár eru tekin saman.  Eftir 1996 hefur verið lítill snjór um jólin en mikill árin 1990-1995 og enn meiri 1979 til 1984 en aftur yfirleitt ítill og oft snjólaust alveg frá fjórða áratugnum og fram á miðjan sjöunda áratuginn. Snjóleysi í Reykjavík er því engin nýlunda um jólin.

Hægt er að sjá hér snjóalög í borginni á jóladagsmorgun alveg frá 1921. Misræmi er í töflunni um árið 1964. Þar stendur í einum dálki að alautt hafi verið en í öðrum að snjóhula hafi verið 2 af 4 hlutum.

Ég vona innilega að allan snjó taki upp í borginni fyrir jólin. Fátt er eins ójólalegt og hallærislegt og hvít jól!  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér með jólasnjóinn. Þetta er hluti af Coca Cola glansmyndinni, þessi hundslappadrífa á aðfangadagskvöldið, slabb og leiðindi í raun fyrir þá sem þurfa að fara milli húsa, að maður tali nú ekki um allan þann fjölda sem heimsækir greftrunarstaði ættingja. Satt best að segja hefur Ellismellur verið að velta fyrir sér hvort þetta fyrirbrigði, jólasnjór, hafi komið hingað til lands með bandaríska hernum á sínum tíma, eins og svo margt annað, svo sem eins og rauðklæddi sanktikláusinn, sem er náttúrulega allt önnur ella en íslensku jólasveinarnir, sem eru úr heiðni og þjóðlegir íslendingar, en ekki einhverjir pótintátar á vegum kirkjuvaldsins. En þú ert nú, Sigurður, manna vísastur til að vita hvenær fólk fer að óska eftir snjó á jólum hérlendis? Hef nefnilega grun um að framundir WWII hafi landinn helst viljað hafa snjólaust bæði á jólum og sem oftast, það var praktískast og því í takt við nytjahyggju forfeðra okkar og -mæðra.

Ellismellur (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 14:40

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég held að ég hafi sagt þessa sögu áður - en ég segi hana bara aftur í tilefni pistilsins:

Einu sinni þekkti ég mann sem fannst ekkert jólalegra en að þurfa að berjast milli húsa í kafaldsbyl á aðfangadag þegar hann var að dreifa jólagjöfunum. Best þótti honum ef bíllinn festist nokkrum sinnum og ef hann þurfti bæði að fá hjálp og hjálpa öðrum. Helst mátti ekki sjást nema hámark 10 metra fram fyrir bílinn. Með þessu móti komst hann í fínt jólaskap.

Ég hef aldrei skilið þetta enda stóðu kynni okkar ekki ýkja lengi. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 17.12.2008 kl. 15:26

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég held að þessi draumur um hvít jól sé upphaflega komin frá Evrópu og á uppurna sinn kannski í kortaskreytingum eða myndskreytingum á Viktoríutímanum þegar kaldara var en nú og oftar snjór á norðurhveli um jólin en nú er. Sjá t.d. http://www.metoffice.gov.uk/climate/uk/whitechristmas/

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.12.2008 kl. 17:36

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Kannski eru jólin í dag þá bara einhverskonar þrá eftir rómantík en þá skemmir ekki hvítur nýfallinn snjórinn og kertaljós í anda liðinna tíma. Sumir sjá svo kannski rómantíkina í því að festast í snjósköflum. Maður líka getur vel skilið að í gamla daga þegar fólk bjó við þrálátan kulda og trekk, hafi jólarómantíkin snúist um annað en snjó.

Emil Hannes Valgeirsson, 17.12.2008 kl. 19:35

5 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Svo það sé á hreinu, þá er ekki stafkrók að finna um jólasnjó í Biblíunni!

Ásgeir Kristinn Lárusson, 17.12.2008 kl. 21:25

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Er annars nokkuð minnst á jólin í Biblíunni?

Emil Hannes Valgeirsson, 17.12.2008 kl. 22:01

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Merkilegt hvað maður er fastur í snjóaþráhyggjunni.  Ég er svona (verði snjór, verði snjór) en svo þegar ég las þessa færslu þá mundi ég ekki afturenda hvort jörð var auð eða hvít í fyrra, hvað þá hitteðfyrra.

Hm.. maður er ekki í lagi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.12.2008 kl. 23:56

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Néi, Jenný mín! Þú ert EKKI i lagi!

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.12.2008 kl. 00:08

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk kæri vinur, mig vantaði einhvern til að rétta mig af.  Mikilmennskubrjálæðið að ná hæstu hæðum.  Lalalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.12.2008 kl. 00:50

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Heyrðu...  líst þér betur á þetta veður? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 18.12.2008 kl. 19:18

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér líst vel á hvaða hláku sem er. En ég hef ekki trú á alveg svona miklum hita fyrr en þá eftir jólin.

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.12.2008 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband