Verða sjúklingar sendir heim?

Nú er alþingi búið að samþykkja heimild til að rukka innritunargjald af sjúklingum sem leggjast inn á sjúkrahús. Ekki er að efa að til þessarar heimildar mun verða gripið.

Þá vaknar spurningin: Hvað gerist ef menn neita að greiða gjaldið? Verða sjúklingarnir þá sendir heim án læknishjálpar? Kannski að koma í hjartaþræðingu eða uppskurð vegna heilaæxlis. Hvaða skoðun hafa yfirlæknar deilda á þessu? Er það ekki skylda þeirra að veita öllum þjónustu? Geta þeir ekki sett sig upp á móti þessu? Ekki hefur þó heyrst frá þeim eitt einasta orð. Þarna er þó verið að stíga skref í heilbrigðismálum sem á sér ekkert fordæmi og engum hefði svo mikið sem dottið í hug þar til nú. Og þetta var samþykkt af löggjafarsamkundinn  án nokkurrar umræðu að heitið geti. 

Ríkisstjórnin, þessi sama og ber ábyrgð á  kaldakolinu, er á fullu að velta byrðunum yfir á þá sem verst eiga með að bera þær, sjúklinga, gamalt fólk og öryrkja, en hlífa þeim sem breiðust hafa bökin eins og Þórólfur Matthíasson hagfræðingur var að benda á í Morgunblaðinu í fyrradag. Auðvitað bjóst engin við öðru af þessari ömurlegustu ríkisstjórn í sögu landsins.

Hvað þarf til að koma þessu glæpagengi frá? Getum við ekki lært ýmislegt af Grikkjum í því sambandi?

Ef allir yfirlæknar sjúkrahúsa sendu frá sér mótmælayfirlýsingu af þessu tilefni myndi það hugsanlega hnekkja þessum siðlausu álögum. Að læknarnir  þegi þunnu hljóði sýnir að þeir meta meira fylgispekt við stjórnvöld en hag sjúklinga sinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Saell.Tetta er vist gert i U.S.A. er mer sagt.

Anna , 21.12.2008 kl. 13:07

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Því hefur verið fleygt að heilbrigðismálaráðuneytið hafi gefið út skipun um að allir þegi! Og hvað með landlækni? Hvar er hann?

Við verðum að lesa rækilega byltingarsögur um jólin. 

María Kristjánsdóttir, 21.12.2008 kl. 13:24

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er búinn að sjarma fyrir því að fá Kommúnistaávarpið í jólagjöf. Það ætla ég að lesa á aðfangadagskvöld og drekka kakó og borða smákökur og vera eins og saklausa litla jólabarnið inni mér. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.12.2008 kl. 13:29

4 identicon

Það er sko alveg öruggt að læknarnir hafa fengið kartölfu í kj.......... og segja ekki neitt. Hvernig væri að "rannsóknarblaðamennirnir"  færu nú á stúfana og spyrðu lækna og hjúkrunarfólk hvernig þetta gjald á að innheimtast. Áður en þú leggst í rúmið eða þegar þú ert búin að skríða saman.  Og hvernig leysist mál með útlendinga sem borga ekkert í sínu heimalandi þegar þeir koma hingað?  ESB-lögin  segja að hver hefur sín réttindi að heiman.  Eiga þá útlendingar að fá fría þjónustu en við hér heima eigum að borga.

J.a. (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 19:07

5 Smámynd: Ólöf de Bont

Hefur okkar góða ríkisstjórn t.a.m. sá hægri ekki alltaf verið hliðhollur BNA.  Þegar þeir ríku eru búnir að eyða sínu og hafa ekki bolmagn til að gefa sína tíund, þá er sótt í vasa þeirra sem minna mega sín.  Sagan endurtekur sig í gegnum aldirnar og byltingin í Rússlandi virðist engu hafa þar um breytt.

Ólöf de Bont, 21.12.2008 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband