Geir Jón er reiður

Í hádegisfréttum RUV var Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í ham og var reiður. 

Hann neitaði, þvert ofan í vitnisburð margra sjónarvotta, að lögreglan hefði nokkru sinni beitt mótmælendur ofbeldi. (Blaðamannafélagið segir t.d. að svo virðist sem lögreglan hafi vísvitandi beint piparúða að blaðaljósmyndara).

Hann sagði beinum orðum að þjóðin væri að ráðast gegn lögreglunni og hún yrði því að verja sig. 

Geir Jón var ofsafullur í röddinni og öllum málflutningi.

Þetta veit á illt. 

Lögreglan virðist líta á þjóðina sem óvin sinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru vonbrigði að guðsmaðurinn skuli segja ósatt um framgöngu lögreglunnar.

Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 12:57

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Kannski er þetta nú og vonandi augnablikshiti í honum en það sló mig sérstaklega að hann sagði hreinlega að að þjóðin væri að ráðast á lögregluna, ekki sumir mótmælendur, heldur þjóðin. Vona að sú hugmynd sé ekki ríkjandi innan lögreglunnar.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.1.2009 kl. 12:59

3 Smámynd: Einar Þór Strand

Hvað fær þig Sigurður Þór til að ljúga að sjálfum þér.  Ef þú ert staddur einhverstaðar á almenningi og lögreglan biður þig að fara þá áttu að fara annað er lögbrot, ef þú neitar að fara þá ert þú orðin ofbeldismaðurinn ekki lögreglan, þetta á einnig við þegar leyfi er fyrir fundinum. Hinns vegar má lögregla kannski ekki reka þig alla leið upp í Breiðholt af Austurvelli og það var hún ekki að gera heldur að hafa garðinn og götuna fyrir framan fyrir sig og það er ekki að fara offari.

Varðandi myndatökumennina sem urðu fyrir piparúða þá myndi ég reka ef ég væri ritstjóri því þeir ná engum myndum sem nothæfar eru sem fréttamyndir í troðningnum fyrir framan lögregluna og að blaðamannafélagið hafi verið að kvarta sýnir bara hvað við eigum lélega blaðamenn.

Sigurður þú skuldar Geir Jóni og lögreglunni afsökun.

Einar Þór Strand, 22.1.2009 kl. 18:03

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Til hamingju með að vera kominn á forsíðuna aftur. Veit ekki hvenær ég fæ uppreisn æru fyrir að vera annarar skoðunnar en ritstjórn bloggsins. Kannski er ég bara bannfærður til eilífðar eins og Lúter.

Það er lúxus hjá þeim þarna að geta ráðið örlögum manna með þumlinum einum eins og Rómarkeisararnir. Mikið held ég að Árni Matt og co finni til sín, þótt fáum þyki mikið til þeirra koma.

Jón Steinar Ragnarsson, 22.1.2009 kl. 18:25

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Einar Þór Strand: Ég er að herma orð Geir Jóns í útvarpinu upp á hann. Þarf ég að biðjast afsökunar á því? Þú ætti fremur að biðja mig afsökunar á þessum útúrsnúningi. Hann neitaði að lögreglan hafi beitt ofbeldi þó margir segi að svo hafi verið (ég nefndi sjónarvotta og Blaðamannafélagið, ég fullyrti ekki sjálfur að lögreglan hafi framið ofbeldi heldur að aðrir hafi sagt það, en þessu öllu neitar Geir Jón, eitthvert vægi hljóta þó sjónarvottarnir að hafa). Hann sagði líka að þjóðin væri að ráðast gegn lögreglunni. Á ég að biðjast afsökunar á því að segja frá því sem hver maður gat heyrt? Áður en þú ferð að krefjast afsökunarbeiðni frá mér ættirðu að lesa betur það sem þarna stendur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.1.2009 kl. 18:26

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er heldur ekki dónalegt að hafa svo geistlegan skipunarþunga og Einar Þór. Kannski hann hafi svipaðar ranghugmyndir um vald sitt og mikilvægi í cosmísku samhengi og Árni Matt. Hvað veit ég. En það virkar þannig.

Jón Steinar Ragnarsson, 22.1.2009 kl. 18:28

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef þekkt Árna Matt árum saman og veit að hann er óvenjulega vænn maður.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.1.2009 kl. 18:30

8 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Líklega eruð þið nú ekki það óvanir að hlusta á fréttaflutning fjölmiðla, að þið gerið ykkur ekki grein fyrir að viðmælendur eru valdir eftir því hvað fréttamenn vilja að komi fram. Sanneikur og raunveruleiki í slíku tilfelli er hreint aukaatriði.

Hvernig ljúga á með myndatökum, lærði ég á ljósmynda- og myndbandamámskeiðum. Þeir sem þekkja til slíkra trixa, sjá vel hvernig þau eru framkvæmd. Ég hef ekki enn séð SANNAR myndatökur af atburðum átakanna, því iðulega er frumþáttur atburðanna utan myndsviðs, vegna þess að slíkt hentar myndefninu betur.

Ég mundi því ráðleggja fólki að vera ekki of stóryrt vega frétta eða myndbirtinga af þeim átökum sem verið hafa, því það er langur vegur frá að þar sé sannleikann að finna. 

Guðbjörn Jónsson, 22.1.2009 kl. 18:42

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

núnú, bara kominn aftur í vínarbrauðsklubbinn, Sigurður.

til lukku með það

Brjánn Guðjónsson, 22.1.2009 kl. 18:48

10 identicon

Ég er búinn að vera þarna undanfarið og einnig skoða haug mynda og myndbanda af atburðum. Ég verð að segja að hegðun ákveðins hóps mótmælenda slær mig meira en nokkurntímann aðgerðir lögreglunnar.

Þórður Ingi (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 19:19

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þvælan í þér, Sigurður, – Geir Jón var þvert á móti mjög sanngjarn og sannferðugur í þessu viðtali og einarður eins og bezt mátti vænta af honum eftir þessar árásir á lögregluna. Hlustið á þetta viðtal við hann sjálf, HÉR, til að sannfærast.

Jón Valur Jensson, 22.1.2009 kl. 20:12

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þú ættir að tala sem minnst um þvælu Jón Valur Jensson. Ég þakka nú bara guði fyrir að komast á mínu bloggi aldrei með tærnar þar sem þú ert með hælana í þeim efnum.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.1.2009 kl. 20:23

13 Smámynd: María Kristjánsdóttir

En mér fannst nú nokkuð gott að mótmælendur skyldu þurfa að slá skjaldborg um lögregluna  til að verja þá fyrir ólátabelgjum.

María Kristjánsdóttir, 22.1.2009 kl. 23:42

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fín greinin þín María í Mbl í dag '' Að standa saman''. Takið eftir því og takið vel eftir því að nú er her manns  að reyna að spyrða saman ólátabelgina og mótmlælendur á þann hátt að setja samasemmerki þar á milli.

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.1.2009 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband