Fahrenheit og celsíus

Þær kuldatölur sem hér eru nefndar í fréttinni eru mjög  líklega eftir fahrenheitmæli, sem algengir eru í Bandaríkjunum, en við erum vanir celsíusmælum.  Sextíu stiga frost á celsíus kemur varla í Alaska þó mesta frost sem þar hafi nokkru sinni mælst sé -80 stig fahrenheit, eða -62 celsíus. Það var í Prospect Creek 23. janúar 1971. En slíkir metkuldar hafa ekki verið undanfarið þó kalt hafi verið. 

Hér er vísun á netsíðu sem sýnir mesta frost á hverjum degi í Alaska það sem af er febrúar á fahrenheit. Lægsta talan er -62 stig fahrenheit sem mældist þann fyrsta en flesta daga hefur verið miklu mildara. Þetta samsvarar 52 stigum á celsíus. Það er auðvitað feiknalegur kuldi en samt munar nokkru á honum og sextíu stigum. Auk þess hefur alla aðra daga verið minna en 50 stiga frost  á celsíus og allt upp í 39 stig. 

Á fylgiskjalinu má sjá töflu yfir fahrenheit breytt í celsíus frá mínus 76 stigum og upp í plús 60.


mbl.is Með kalbletti á kinnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til er einföld formúla til að breyta celsius í fahrenheit. Sjálfsagt er til vísa sem gengur út á að muna þær. Nóg er að vita aðra þeirra og smá algebru til að fá út hina:

[°F] = [°C] × 9 ? 5 + 32

[°C] = ([°F] ? 32) × 5 ? 9

Dæmi: -62 fahrenheit yfir í celsius:

[°C] = (-62 ? 32) × 5 ? 9 = -52,2

Gunnar Geir (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 22:10

2 Smámynd: Ár & síð

Hitinn núna er -7° á F í Nome og virðist hafa farið niður í -30° (-22-34°C) fyrr í febrúar svo eitthvað hafa tölur skolast til. Kannski áttu keppendur við útreiknað hitastig með vindkælingu.
Matthías

Ár & síð, 11.2.2009 kl. 22:38

3 identicon

Tekið af vefnum http://www.icelandalaska.com.

 "The frost today went down to -60° on Celcius and with windchill on their speed temperature was -92°C."

Markús Sveinn Markússon (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 09:15

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Takk fyrir þetta Markús. Þetta er mjög upplýsandi. Þarna kemur fram að um celsíusmælingu var reyndar að ræða. Áður en lengra er haldið vil ég taka það fram að ég er á engan hátt að gera lítið úr hreysti keppenda í þessum fimbulkulda, aðeins velta fyrir mér þessum kuldatölum út frá veðurlegu sjónarmiði, en af því  hef ég gaman eins og þessi síða vitnar um. Nú ber þess að gæta að venjulegar hitamælingar eru gerðar í hálfs annars metra hæð frá jörðu í sérstökum skýlum sem vernda mælana frá geislun. Þær kuldatölur sem USA TODAY gefur upp og fær hjá veðurstofu Bandaríkjanna eru þess háttar mælingar. Mælarnir á sleðunum eru hins vegar nær jörðu en þar getur verið kaldara en í hefðbundinni mælihæð en  ekki veit ég hvernig búið er um mælana eða hver áreiðanleiki þeirra er. Sleðaarnir hafa væntanlega líka farið um hæðir og lægðir þar sem engar veðurmælingar eru. Eigi að síður, að teknu tilliti til alls þessa, finnst mér  munurinn á þessari frosttölu, -60 stig, miðað við þær veðurstöðvamælingar nágrenninu hafa lægst mælt,  ansi mikill. Í Galena, þar sem sleðamennirnir komu við, hefur mesta frost síðustu daga verið 44° (þ.10.) stig í venjulegri mælingahæð (samkvæmt WetterOnline). Í gær var mest frost þar 21°. Í Mcgrath hefur frostið líka farið í sömu tölu,  þ .4. en um -25° þ. 9. þegar sleðafólkið fór þar um.

Það er mjög algengt að hitatölur sem fólk nefnir og koma stundum fram í fréttum, bæði háar og lágar, séu mjög langt frá þeim hita sem mældur er á nálægur veðurstöðvum. Ekki eru alls staðar veðurstöðvar en þegar skakkar á slíkum tölum milli mælinga sem fólk er að mæla og veðurstöðva í nágrenninu um 15-20 stig vaknar í manni vafi um áreiðanleika mælinganna. Samt sem áður er ég ekki að neita því að 60 stiga frostið hafi verið raunverulegt, aðeins að láta uppi vafa.

 

Rúmlega fjörtíu stiga frost, sem bítur náttúrlega ansi mikið á miklum hraða, er svo sem ærið og  það sýnir vel hve Ísland er vetrarmilt land, þó það sé að hluta til á sömu breiddaargráðum og Alasaka, að þó í nótt hafi þar mælst mesta frost vetrarins og í mörg ár, - 29 stig í Svartárkoti í blankalogni,  er það langt frá því sem búast má við á svipuðum breiddargráðum í Alaska.

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.2.2009 kl. 12:02

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

...kalt

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 12.2.2009 kl. 23:19

6 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Brrrrrrrr segi ég nú bara Mér finnst meira en nógu kalt hér.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 13.2.2009 kl. 03:15

7 Smámynd: Róbert Björnsson

Hér í Minnesota fór hitinn langleiðina niður í -40 stig um daginn...og gildir þá einu hvor kvarðinn er notaður þar sem þeir mætast báðir þar.  Meðalhitinn í Janúar var rétt um 0 á F sem er ca -18°C og allt gaddfreðið eins og verið getur.

En ég heyrði einu sinni sögu af Westur-íslendingum í Kanada sem sendu bréf heim og sögðu að hitinn væri alveg að drepa þá...heilar 100 gráður!  Fólkið á íslandi Jesúsaði-sig í bak og fyrir og gat ekki skilið hvernig fólk lifði slíkann hita af.  Reyndar hefðu blessaðir íslendingarnir sennilega ekki skynjað muninn á 38 gráðum og 100 þó svo kvarðinn hefði verið á hreinu.

Róbert Björnsson, 14.2.2009 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband