Máttlausar bænir

Í messunni áðan í útvarpinu var hinn himneski faðir beðinn um að gefa stjórnvöldum visku  til að stjórna og   margt og margt fleira var beðið um.

Allan græðgitímann var guð líka beðinn um að gefa stjórnvöldum visku.

Viskan varð samt aldrei að raunveruleika.

Bænirnar voru til einskis. 

Hvernig nenna menn að halda áfram þessu bænatauti í hverri einustu lúterskri messu? 

Má ekki leggja þennan meiningarlausa ósið niður?

Það er bara andskotans ekkert gagn af honum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Hvernig nenna menn að halda áfram þessu bænatauti í hverri einustu lúterskri messu?"

Hvernig nenna menn að hlusta á þetta bænataut?! -  segi ég nú bara.

Malína (IP-tala skráð) 8.3.2009 kl. 14:25

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hlusta bara í þeirri von að heilagur andi snerti mig harða og hofmóðuga hjarta. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.3.2009 kl. 16:52

3 identicon

Ég vil nú frekar halda mínu grjótharða gribbu- og steinhjarta heldur en að fá hjarta sem er uppfullt af guðsvæli og himnaríkisdóti.

Ojjj...

Malína (IP-tala skráð) 8.3.2009 kl. 18:25

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þér er ekki viðbjargandi Malína. Guð hjálpi þér bara!

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.3.2009 kl. 19:49

5 identicon

Þegar ég sé prest fara með bænir þá dettur mér í hug villimaður úr týndum þjóðflokk frá Amason.

Hugsið ykkur, fólk árið 2009 með hátt í milljón á mánuði fyrir að tala við ímyndaðan fjöldamorðingja sem pyntar alla sem elska hann ekki.
Ekkert er heimskulegra, lágkúrulegra en svona heimska :)
OG hugsið ykkur að þetta lið fær aðgang að börnum okkar í skólum landsins... íslendingar eru vitleysingar :)

DoctorE (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 14:27

6 identicon

Það er von að þú spyrjir.

Ég fer oft inn á bloggið þitt og líkar vel, einkum samtal ykkar Malínu. Sé sé ekki betur en milli ykkar séu einstakir dáleikar.

Í þessu efni dreg ég þinn taum, en ekki hennar.

Bænin er mér blessun í sjálfri sér og þó ég hafi oft orðið fyrir vonbrigðum og fundist Guð algjrlega á villigötum með viðbrög eða engin viðbrög hef ég líka dæmi um ótrúlega beina bænheyrslu.

Þrátt fyrir reiði gegn Guði stundum vildi ég ekki án hans vera og þess að mega biðja hann.

Ég trúi sem sagt á afskiptasaman Guð, en ekki fjarlægan.

En í mér eins og að ég held öllum býr samt efinn.

Ég er að les bók sem heitir Syndirnar Sjö er er eftir Finnan Jaakko Heinimäki og var skrifuð á tímum hrunsins í Finnlandi. Hún kom út hjá Bjarti 2003 þýdd af Aðalsteini Davíðssyni. Mæli með henni.  Þunn, en ekki létt.

Ég er að komast á þá skoðun að ég verði að fara að koma mér upp bloggi. Sennilega tímabært þegar aðrir eru á Facebokk og Twister.

Hólmfríður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 14:38

7 identicon

Hólfríður... meintar bænheyrslur eru ekki óeðlilegar, þetta er eins og að lesa stjörnuspá... hún mun eiga við einhvern, því fleiri sem lesa, þvi meiri líkur að einhver telji spá eiga við sig.

Bænir eru vitleysa, guðir eru bara til í höfði fáfróðra + þeirra sem eru aldir upp við að trúa á ævintýr.
Sorry en svona er þetta bara.

DoctorE (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 20:43

8 identicon

DoctorE

So?

Ef svo er er ég sátt við að vera fáfróð og alin upp við að trúa á ævintýri.

Ég ætla ekki að munnhöggvast við þig, en óska þér alls hins besta

H.P.

Hólmfríður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 22:35

9 identicon

Megi faðir vor hjálpa ykkur ef hann er þarna.  

EE elle (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 23:28

10 identicon

So.... þroskast Hólmfríður, ég hugsa að þú sért of gömul til þess að eiga þykjustu pabba í geimnum.

DoctorE (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 10:07

11 identicon

DoctorE.

Þakka þér fyrir umhyggju þína, eða er eitthvað annað sem rekur þig til að svara öllum þeim sem vilja trúa, eða er það bara kristið fólk sem þú vilt telja trú um að trú sé blekking? (ef ég skil þíg rétt )

Það er rétt hjá þér að ég er ekkert unglamb lengur og er  mjög sátt við það.

Það vinnst ýmislegt með aldrinum, reynsla, menntun, umburðarlyndi og nokkuð ljós mynd af því sem maður telur mikilvægast í lífinu.

Ég held ég sé hvorki heimsk né auðtrúa og ég hef lesið The God Delusion. En ég segi bara fyrir mig að ég hef komist að því að Það að geta treyst Guði fyrir mér og mínum er það sem ég vil síst án vera.

Svo vona ég að þú þurfir ekki orðabók til að skilja þetta gamalmennatungutak.

Ég held að það sé ekki til neins að við séum að skrifast svona á sérstaklega ekki á síðu sem hvorugt okkar á.

Ég reyni ekki að telja þig ofan af skoðun þinni og ég vona að þú hafir þá sómatilfinningu að hætta að reyna að fá mig til að skipta um skoðun.

Ég held að þú sér heldur ekki heimskur og vel að taka skrif þín sem velvilja í minn garð en eigum við ekki að segja þetta sé nóg að þessu sinni?

Kveðjur, H.P.

Sigurður Þór,  Ég hálf skammast mín fyrir að vera að skrifast á við DoctorE á síðunni þinni.

Sigurður Þór

Hólmfríður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 17:46

12 identicon

Kristni, íslam,gyðingdómur blah... þetta er allt púra bull, þú veist það alveg innst inni.

Þú talar eins og meðalkrissi, ekki reyna að fá mig til að skipta um skoðun.. það má ekki segja neitt um delusionið mitt, ég er happy í mínu delusion.
Hefur þú annars lesið biblíu?... hefur þú séð hversu steikt þessi bók er, hversu lítils virði konur eru... hversu mikill fantur og morðingi meintur guð er?
Hvernig getur nokkur manneskja játað trú á slíka skepnu... allir ættuað gleðjast yfir því að þetta er skáldskapur.

Af hverju skammast þú þín fyrir að tala við mig á þessari síðu.. .í contexti við pistil og alles, eru það fordómar úr biblíu, hún segir jú að fólk eigi að drepa þá sem reyna að koma vitinu fyrir þann trúaða, að sá trúaði eigi glaður að grýta ættingja sína til bana ef þeir efast um tilvist einræðisguðsins :)

DoctorE (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 21:51

13 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

DoctorE er mikill trúmaður. Trú hans brennur í hjartanu.  Hann er maður með erindi. Fagnaðarerindi! Það má sjá hér að ofan: "allir ættu að gleðjast yfir því að þetta er skáldskapur". Þetta er hans gleðiboðskapur. Samræða hans hefur forsendur í að trúað fólk bulli og að guð þeirra sé fjöldamorðingi etc.

Það er auðvitað ekki  hægt að eiga í vitibornum samræðum af þessu tagi. Enda er trúin fullvissa um hluti, sem ekki verða séðir eða rökstuddir út frá skynsemissjónarmiðum. Krossinn er hneyksli skynseminnar. Þetta er allt saman viðurkennt af hinum kristnu. Þeir gera enga kröfu til þess að grundvöllur trúar þeirra sé fundinn með mælistiku raunvísindanna. Þetta viðurkennir HP fúslega en DoctorE espast bara.

Páll postuli, sem Sigurður  A. Magnússon segir vera einn gáfaðasta mann mannkynssögunnar, var menntaður í grískri þrætubók. Hann var sömu skoðunar og ég hef skýrt hér að framan. Einu sinni reyndi hann aðferð þrætubókarinnar við Aþeninga og er athyglisverð frásögn af því í Pálssögu Lúkasar læknis. Páll hafði ekkert erindi og er skilmerkilega frá því sagt. 

Þannig er það nú minn kæri DoctorE en trúarhiti þinn er aðdáunarverður og þú tekur mörgum trúmanninum fram að því leyti.

Sigurbjörn Sveinsson, 12.3.2009 kl. 12:08

14 identicon

Keep it real & question everything er mitt mottó Sigurbjörn.
Guðirnir eru ekki real... og samkvæmt bókunum eru þeir fjöldamorðingjar, ég er ekki að skálda þetta upp, it say's so in the bible.

DoctorE (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 16:12

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hér mega menn skrifast á sín á milli eins og þeir vilja.

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.3.2009 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband