Hittir naglann á höfuðið

Kristján Þór Júlíusson er svekktur sem vonlegt er. Hann sagði í hádegisfréttum RÚV að styrkveitingamál Sjálfstæðisflokksins bitnaði á öllum flokkum því allir hafi þeir þegið styrki.

Mönnum finnst kannski Sjálfstæðisflokkurinn þarna stórtækastur. En Kristján Þór hittir samt naglann á höfuðið.

Fólk er líka margt búið að fá hreinustu skömm á gömlu stjórnmálaflokkunum og það er alveg hrikalegt að sitja uppi með þá eftir kosningar. Sömu menn í sömu flokkum úr sömu spillingu. Ekki er raunhæft að búast við því að Borgarahreyfingin afli sér verulegs fylgis.

Enginn bjóst við þessu þegar búsáhaldabyltingin stóð sem hæst. 

„Við stöndum frammi fyrir því að skapa verður traust að nýju á milli stjórnmálamanna og almennings. Það varð trúnaðarbrestur í vetur og þessi nýjasta uppákoma hjá Sjálfstæðisflokknum var ekki til að bæta úr því," segir Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingarinnar.

En traust verður ekki skapað með því að smella fingrum þegar það er einu sinni brostið. Það er ekki traustvekjandi það sem okkur er í boðið til að kjósa. Engin raunveruleg uppstokkun eða uppgjör hefur farið fram í flokkunum. Ekkert peningauppgjör hefði orðið nema upp komst um strákinn Tuma. Ella hefði flokkarnir aldrei uppvíst um sukkið af sjálfsdáuðum.Þannig er mórallinn í flokkunum.

Framtíð þjóðarinnar er ekki björt ef fyllsta raunsæis er gætt. Ég býst við efnahagslegri, menningarlegri og móralskri hnignun. Það er alþekkt að þjóðir lifi hnignungaarskeið og hverfi síðan úr sögunni. Biskupinn, og margir aðrir vilja vera bjartsýnir. Þá verða líka að vera einhver teikn  á lofti sem hægt er að byggja bjartsýnina á.

Hvar eru þau teikn? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Já þetta er ljótt ástand í okkar þjóðfélagði,allt að hrynja í okkar góða landi,en engin af þessum stjórnmálaflokkum,braut nú lög,það var ekki bannað að taka við þessum stórum upphæðum,en það er siðlaust,(en maður lítur á svona stórar upphæðir eins og mútu,en maður getur ekki dæmt allan flokkinn,sveim mér þá.???) En eftir alla þessa uppákomu með alla þessa styrki,þá veit maður ekkert hvað maður á að gera eða kjósa,fyrir svona mánuði síðan var ég ekki í vafa,nú stendur maður á krossgötu,??? En ég ætla að reyna að gleyma þessu klúrri allavega yfir páskana,ég á bara eitt orð. GLEÐILEGA PÁSKA. og njóttu þess Sigurður,þetta er fínn pistill hjá þér.

Jóhannes Guðnason, 12.4.2009 kl. 13:07

2 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Jamm .. það er ýmsu ábótavant í samfélagi okkar þessa dagana.

En gleðilega páska kæri Sigurður - og takk fyrir bloggvináttuna í gegnum árin.

 Bestu kveðjur.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 12.4.2009 kl. 13:54

3 identicon

Já og mér finnst að fréttamenn eigi að krefjast þess fyrir hönd almennings og og gera stjórnmálaflokkum það ljóst að það að opna bara bókhald fyrir 2006 er ekki nóg. Fyrst þeim fannst svona lítið mál að taka við þessum peningum á þessum tímapunkti,hvernig hefur það þá verið áður og eftir að þetta gerðist. Því oft er það þannig að afbrotamenn fremja ekki bara afbrot einu sinni, heldur stundum oft. Hvað með Sjálfstæðisflokkinn, hefur hann gerst sekur um að taka við mútum oftar en í þetta skiptið?

Valsól (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 14:25

4 identicon

Ég var að lesa þetta: http://altice.blog.is/blog/altice/entry/851723/

Og þó manni finnist óskiljanlegt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við milljónum frá rotnum banka og rotnu fyrirtæki.     

EE elle (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 15:37

5 Smámynd: Hjörleifur Guttormsson

Sæll Sigurður. Á bloggsíðu minni frá páskadagsmorgni má m.a. lesa:

"Hér á Íslandi ristir umræðan ekki djúpt á heildina litið. Vinstri grænir eru eini stjórnmálaflokkurinn sem nú í aðdraganda kosninga gerir kröfu um að önnur gildi verði ráðandi í samfélaginu framvegis. Flokkurinn hefur allt frá því hann var stofnaður fyrir 10 árum varað við fyrirsjáanlegri kollsiglingu og krafist róttækra breytinga með sjálfbæra þróun og hófstillingu sem leiðarljós til framtíðar litið. Vinstri grænir hafa andæft af þrótti stóriðjustefnunni, varað við útrásinni og gert kröfu um að siðræn gildi en ekki auðgildi ráði för í samfélaginu.

Ekki aðeins ráðandi stjórnmálaöfl heldur einnig fjölmiðlar hafa brugðist hlutverki sínu og auðveldar það ekki almenningi að halda áttum. Enn er oftast fjallað um stjórnmálaflokkana sem óskipt mengi sem sé undir sömu sök selt. Þetta birtist m.a. í spillingarumræðu síðustu daga tengt fjárstyrkjum til stjórnmálaflokka. Einnig þar hefur Vinstrihreyfingin - grænt framboð sérstöðu með opið bókhald um langt árabil og hófsemi í fjáröflun og fjárútlátum tengt starfsemi sinni. Yfir þessu er þagað þunnu hljóði, sem kannski er vorkunn þegar keppinautar eiga í hlut, en opinberir fjölmiðlar hafa hér enga slíka afsökun."

Ég fer ekki fram á að þú skrifir upp á mína túlkun, en það er slæmt ef menn telja sig engum geta treyst og gefa sjálfir upp vonina um betri tíð. Ég hef þá trú að framundan sé vakning meðal almennings og fólk sé reiðubúið að taka undir ný viðmið. Eigi árangur að nást kallar það hins vegar á virkni og þátttöku margra og umfram allt gagnrýna hugsun.

Hjörleifur Guttormsson, 12.4.2009 kl. 16:20

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Traust glatast bara hvort sem það er slæmt eða ekki. Ég held að ég tali fyrir munn margra þegar ég orða þessar hugsanir mínar sem aldrei hafa kviknað áður hvað þjóðmálin varðar. Ég var alltaf mjög vinstri sinnaður en veit nú ekki mitt rjúkandi ráð. En mæli með gagnrýninni hugsun.

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.4.2009 kl. 16:30

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég viðurkenni að ég verð stundum full svartsýnn en fer alltaf upp að lokum. Vonandi verð ég kominn á fullt skrið á kosningadag!

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.4.2009 kl. 16:37

8 identicon

Hvað er svona agalegt? Væ dónt ví djöst hev som fön? Vissu ekki allir að D veður í peningum? Og vinstri grænir eiga bara peningana sjálfir en ekki flokkurinn.

Jón bóndi (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 17:11

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mr. Bond ert þú ekki alltaf að hafa fön með glæsigellum?

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.4.2009 kl. 17:17

10 Smámynd: Kjartan Birgisson

Gleðilega páska Sigurður og megi guð vera með þér.

Kjartan Birgisson, 12.4.2009 kl. 17:36

11 identicon

Skyldi einhver trúa þessu liði í FL-okknum sem eitt af öðru keppist um að lýsa því yfir að það hafi ekki vitað neitt um mútuféð?

Malína (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband