Bloggfræði

Jónas Kristjánsson fyrrum ritstjóri var að velta því fyrir sér hve oft skuli blogga. Hann segir

''Ef bloggari vill afla sér traustra lesenda, þarf hann að blogga daglega. Sólarhringur er eðlilegur ryþmi í útgáfu. Bloggi menn sjaldnar, er hætt við að þeir gleymist. Hins vegar má blogga oftar, en innlitum fjölgar ekki að sama skapi. Sá, sem bloggar fimm sinnum á dag, getur notað formúluna 16-8-4-2-1. Hún felur í sér, að innlitum fækkar um helming við hvert blogg til viðbótar. Það stafar af misjöfnum lesvenjum notenda. Hvert viðbótarblogg eftir fimm á dag eykur umferð nánast ekkert. Rauntölur eru þó háðar fleiru, til dæmis, hvort menn hafi eitthvað að segja eða hafi fjölbreytta umræðu.''

Ekki  veit ég hvað hæft er í kenningu Jónasar.

Og satt að segja er mér alveg sama. Ég hef engan sérstakan áhuga á traustum eða ótraustum lesendum. Ég blogga bara þegar ég nenni og það  er mjög upp og niður. Þetta pólitíska blogg, hálfgert framhald af rifrildinu í blöðunum áður fyrr,  finnst mér  hins vegar vera að drepa bloggheiminn eftir að kreppan hófst. Flest áhugaverð, fersk og skemmtileg blogg kafna nær alveg í þeirri umræðu. En þetta pólitíska at er vinsælt eins og það hefur alltaf verið.   

Mér hefur reyndar alltaf fundist Jónas misskilja eðli bloggsins. Hann virðist líta á það eingöngu sem framhald á skoðanaskiptaheimi fjölmiðlanna um landsmálin og erlend stjórnmál. En bloggið er svo margt og mikið annað en umræða um þjóðmálin. Það á sér margar hliðar en Jónas hefur aðeins eina hlið sem oft er reyndar ágæt.

Blogg á að vera fjölbreytt og skemmtilegt. Sum blogg eru það.

En önnur eru yfirgengilega leiðinleg. Og leiðinslegastir eru þeir bloggarar sem taka sig  alltof hátíðlega og gera aldrei að gamni sínu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

eðlilegur rythmi bleh bleh blah.... Auðvitað er ég sammála þér Sigurður. Hann Jónas er svona montinn og hrokafullur kall sem heldur að hann viti allt og skilji allt og hikar ekki við að segja hvernig hlutirnir EIGA að vera, hvort sem það eru annarra manna skrif eða bernsessósur. 

Þórdís (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband