Múgæsing í stað þekkingar

Ég var með fyrstu mönnum sem fór að skrifa á Íslandi um kynferðisofbeldi eða áreitni gegn börnum. Það eru komin meira en 20 ár síðan.

Á þeim tíma var lítið um þau talað. Látið eins og þau væru ekki til. Þekking á eðli brotanna var engin. Þeir sem minntust á þau voru jafnvel illa séðir.

Nú tala allir um svona brot.

En þekkingin og skilningurinn á eðli þeirra, því umhverfi sem þau verða til í, hverjir fremja þau, hvernig þau birtast og svo framvegis virðist enn þá nær engin meðal almennings, að minnsta kosti þess hluta hans sem mest ber á.

Í stað þagnar og fálætis á grunni þekkingarleysis er komin múgæsing og hatur á grunni þekkingarleysis.

Saklausir menn eru jafnvel meðhöndlaðir af almenningi sem hættulegir kynferðisglæpamenn.

 


mbl.is Sr. Gunnar tekur við störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aðalástæðan fyrir því að hann var sýknaður var sú að þarna stóð orð gegn orði og ákvað bæði héraðsdómur og hæstiréttur að taka orð hans meira trúanleg, þrátt fyrir að hann hafi viðurkennt þessi brot en vildi ekki meina að þau væru hafi verið eins alvarleg og af er látið. Sjálfur er ég frá Selfossi og hef ekki minnsta áhuga á að fá þennan mann aftur í kirkjuna og reikna ég með því að söfnuðurinn klofni ef hann kemur aftur.

Í kringum þennan mann hefur alltaf verði vesen og hefur hann verið látinn fara í eitt skipti en ég held að hann hafi verið færður í annað!

Sigurjón (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 09:20

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Að vera með vesen þaraf ekki að vera glæpur. Ein vinkona mín, sem ég hitti á margra ára fresti, er sífelld flangsandi uppi í manni, öllum sem hún hittir, kyssandi og faðmandi og strjúkjandi. Það er óþolandi og pínlegt en ég lít ekki svo á að hún sé með kynferðislegt áreiti. Í sumum stéttum verða menn að passa sig vel á slíkum og það getur gert þá óhæfa í samskiptum. En þeir eru ekki þar fyrir kynferðisblæpamenn. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.4.2009 kl. 09:31

3 identicon

Sæll.

Ertu búinn að lesa dóminn?

http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S200800538&Domur=4&type=1&Serial=1

Sævar Már (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 09:35

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þessi síðasta athugasemd mín svarar í raunini líka athugasemd frá Grétari Eir, (það er strax byrjað að stilla manni upp, fátt við mann að ræða nema ...). Í þessum dómi sést skýrum stöfum og um það snýst málið að ákærði var ekki talinn hafa brotið kynferðislög gegn börnum og ekki heldur barnaverndarlög. En það fyrir getur vel verið að athæfi hans hafi verið óviðeigandi og ekki presti sæmandi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.4.2009 kl. 09:38

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er búinn að lesa dóminn. Maðurinn var sýknaður fyrir brot á þeim lagabálkum sem ákært var fyrir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.4.2009 kl. 09:42

6 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Mikið væri gott að geta rætt þessi mál án beinna tengsla við einstakt mál.

Það hefur komið fyrir þessa vel fullorðnu konu oftar en einu sinni í starfi að ungir menn hafa sagt sem svo á ég að kæra þig fyrir kynferðislega áreitni, þegar ég hef heldur viljað taka um axlirnar á þeim og leiða þá þannig til síns staðar en að standa og biðja þá enn einu sinni að gegna mér.

Samskipti fólks eru ótrúlega snúin.  Þessi orð mín tengjast ekki einstökum atburðum!!!

Hólmfríður Pétursdóttir, 14.4.2009 kl. 09:56

7 identicon

Það verður ekki auðvelt ef hann lendir í erfiðri jarðaför.Það var skýring hans

á kossaflangsinu áður.Það var einkvað athugavert við dóminn,þetta var kynferðisleg áreitti.Þetta voru karlfauskar sem sýknuðu hann.

fjolnir (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 10:00

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég vísa þarna til fréttar, sem hnígur að sérstöku máli. En að öðru leyti er ég einmitt almennur. Mig hefur oft langað til að koma þessum punkti á framfæri. Kannski var það viss mistök að bendla hann við sérstaka frétt í ljósi þess hvernig umræðan hér hefur þróast.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.4.2009 kl. 10:01

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það var ein kona í dómnum. Ber þá að skjilja það svo að maðurinn hefði verið sakfeldur ef einn karl hefði verið í dómnum en að öðru leyti konur? Er það kynferði sem á að ráða í Hæstarétti en ekki lagafyrirmælin sjálf? Það sem ræður í dómnum er einmitt skilningur dómaranna á skráðum lögum, EKKI að framburður fimm sé minna virði en framburður eins.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.4.2009 kl. 10:09

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Að brjóta mörk siðgæðis er ekki það sama og að hafa framið kynferðisbrot. Maðurinn var ekki heldur dæmdur fyrir að hafa farið út fyrir mörk siðgæðis. Hann var sýknaður af því sme hann var ákærður fyrir. Öðruvísi er ekki hægt að standa að dómum. Farðu nú að lesa dóminn Grétar Eir til að skilja hann. Og hvernig dómstólar vinna.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.4.2009 kl. 10:30

11 identicon

Sæll Sigurður. 

Þú segir að það sé komin upp múgæsing og hatur á grunni Þekkingarleysis.  Seinast þegar ég vissi þá er huglægt mat ekki þekking.  Huglægt mat getur kannski mótast af þeirri þekkingu sem viðkomandi hefur viðað að sér í gegnum sína hunds og kattartíð og það er einmitt það sem þetta mál snýst um.  Huglægt mat.  Dómurinn dæmir ekki samkvæmt því, hann dæmir samkvæmt lögum og samkvæmt lögum er ekki hægt að sakfella hann fyrir þetta brot, hann er ekki "nógu mikill Perri" til þess að það sé hægt.

EN aftur á móti skil ég ekki afhverju inn í þetta mál er ekki tekið tillit til "snepills" sem heitir Siðareglur Presta.  Þar stendur:   

"2.4 Sálgæsla byggist á virðingu og trúnaðartrausti og er því sérstaklega viðkvæm og vandmeðfarin. Prestur má ekki undir neinum kringumstæðum misnota aðstöðu sína sem sálusorgari eða ógna velferð skjólstæðings, t.d. með kynferðislegri áreitni, né vanvirða tilfinningar hans og tiltrú."

Ég verð að viðurkenna að "Þekkingarleysi" mitt á fyrirkomulagi dómsvaldsins, kemur í veg fyrir að ég geti fullyrt að hann hefði verið dæmdur, ef tekið hefði verið tillit til þessa plags og að viðkomandi er Prestur.  Það gæti vel verið að svona siðareglur hafi ekkert að segja í dómsölum landsins. 

Burtséð frá dómstólnum Þá er það svo mikil lágkúra að biskupstofa skuli ekki taka mark á sínum eigin reglum, þar sem þeir telja sig sem "andans menn", þá ætti nú ekki að vera mikið mál fyrir þá að "leggja huglægt mat" á málið. 

En hvað veit ég?  Sennilega er ég bara vitleysingur að skapa múgæsing!!!

Baldvin Árnason (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 10:32

12 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Grétar Eir, hvaða lögum finnst þér að kirkjan eigi að fara eftir, ef ekki gildandi lögum í landinu?

Hólmfríður Pétursdóttir, 14.4.2009 kl. 10:34

13 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Er ekki dómurinn eitt og það hvort rétt sé að umræddur fari aftur til starfa í söfnuði sínum annað?

Hólmfríður Pétursdóttir, 14.4.2009 kl. 10:42

14 Smámynd: Sylvía

er ekkert að marka orð þessara stúlkna?? Þetta er algjörlega ólíðandi hegðun af hendi manns sem sér um barnastarf.

Sylvía , 14.4.2009 kl. 10:47

15 Smámynd: Hlédís

Þakka þér pistilinn, Sigurður Þór!

Ekki að inntak hans komist vel til þeirra sem mest þyrftu á að halda. Við því er víst ekki að búast. 

Aumingja, blessað mannfólkið!

Hlédís, 14.4.2009 kl. 11:14

16 identicon

Ráðlegging til þín Sigurður Þór,  að Þú skulir taka upp hanskan fyrir hann, vitandi að hann hefur brotið af sér í starfi, hann viðurkenndi siðferðisbrot. Afstaða þín afhjúpar þitt eigið siðleysi.

Haltu þig við veðrið... 

Þórður (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 11:46

17 identicon

Eitthvað eru bækur þínar og fræði varðandi þessa hluti franar að rykfalla. Ég sat áfanga í HÍ sem heitir ,,ofbeldi og vanræksla" og það er á hreinu að í öllum nýtímafræðum myndi þetta túkast sem kynferðisofbeldi, engin spurning. Sigurður það verður að uppfæra skruddurnar og sjálfan sig svona á fimm ára fresti. Ömurlegt að vera taka upp hanskann fyrir þennan vesaling. Ef hann hefði bara viðurkennt þessar hvatir sínar og farið í meðferð hefði ég verið alveg tilbúin að sína honum stuðning, en maðurinn sýndi ekkert slíkt af sér og fannst þetta bara allt í lagi. Og Sigurður, þó svo þú eigir fullorðna vinkonu sem flaðrar upp um fólk þá er það ekkert sambærilegt á við það sem presturinn gerði, hann var að þukla, faðma og kyssa smástelpur! Ég á eina vink0nu sem varð fyrir slíku þegar hún var 11 ára gömul, þess ber að geta að það var ekkert annað en nákvæmlega það sama og þessi umræddi maður var að gera. Hún hefur aldrei beðið þess bætur og hefur m.a. þurft að fara í meðferð hjá Stígamótum. Ég held satt að segja að þú  hafir ekki hugmynd um hvað þú ert að tala.

Valsól (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 11:54

18 Smámynd: Hlédís

Kæri Sigurður Þór!

Nú opnaðirðu geitungabú!  Þetta blessað fólk skellir öllum ávirðingum allra kynferðisbrotamanna á prest-vesalinginn - plús syndum kaþólskra "skírlífispresta" - og hengir hann svo enn einu sinni upp í næsta tré!

Hlédís, 14.4.2009 kl. 12:51

19 identicon

Það er sorglegt að lesa hvað fólk sem virðist vera að misskilja Sigurð, ræðst gegn honum fyrir að verja mann sem hann er ekkert að verja.  Hann sagði þetta að ofan:

"Ég vísa þarna til fréttar, sem hnígur að sérstöku máli. En að öðru leyti er ég einmitt almennur. Mig hefur oft langað til að koma þessum punkti á framfæri.  Kannski var það viss mistök að bendla hann við sérstaka frétt í ljósi þess hvernig umræðan hér hefur þróast"

Hann skrifaði líka þetta:

http://nimbus.blog.is/blog/nimbus/entry/805276/ 

EE elle (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 12:59

20 identicon

Margar stúlkur biðja um að láta nauðga sér og fara svo í fýlu ef einhver kemur við þær. Sumir hata faðm og snert. Sjáið bara hvernig sumar stúlkur klæðast. Þær eru með brjóstin ber og lærin líka. Kannski væri væri betra að hafa konur í strigapokum eins og Talíbanarnir gera. Sjónvarp fullt af allsberu fólki syngjandi melodíur um LOVE. Við hverju búast menn? Afhverju eru krakkarnir settir í kirtla á fermingunni? Þetta er allt ákaflega snúið.

Jón bóndi (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 15:57

21 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Réttarríki er mikil blessun mannlegu samfélagi. Réttarmorð er ömurlegur atburður í réttarríkinu og raunar viðbjóðslegt tilhugsunar, þegar það á sér stað. Hefndin er mikilvæg hinum gamla Adam og ef hún fæst ekki fyrir dómaranum, þá er reynt að þvinga hana fram á götunni.

Meirihlutinn leggst jafnan á þann, sem veikari er og reynir að bíta hann af sér. Það sannast í skólum og á vinnustöðum landsins, þegar einelti á sér stað.

Sigurbjörn Sveinsson, 14.4.2009 kl. 16:07

22 Smámynd: ThoR-E

Ein vinkona mín, sem ég hitti á margra ára fresti, er sífelld flangsandi uppi í manni, öllum sem hún hittir, kyssandi og faðmandi og strjúkjandi. Það er óþolandi og pínlegt en ég lít ekki svo á að hún sé með kynferðislegt áreiti

Það er þónokkur munur á fullorðinni manneskju sem kyssir og kjassar vini og kunningja, og síðan á fullorðnum karlmanni.. sem kyssir fermingastúlkur á munninn.. og strýkur þeim með káfi og snertingum.

Ég las dóminn og maðurinn er ekki saklaus í þessu máli, þótt hann hafi ekki fengið dóm. Svona hegðun er presti ekki sæmandi, frekar en öðrum.

Að hann fái að koma aftur til starfa... og vinna með börnum .. tel ég alvarlegt mál.

ThoR-E, 14.4.2009 kl. 16:12

23 identicon

Jón bóndi: "Margar stúlkur biðja um að láta nauðga sér og fara svo í fýlu ef einhver kemur við þær".  Þetta er eitt það vitlausasta sem ég hef heyrt.  Klæðnaður biður ekki um neitt.

Jón (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 18:25

24 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Ályktun

Ályktun Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar um réttmæti þess að sr. Gunnari Björnssyni, sóknarpresti á Selfossi, skuli vera kleyft að snúa aftur til starfa.

Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) eru frjáls félagasamtök æskulýðsfélaga innan Þjóðkirkjunnar.  Markmið ÆSKÞ eru m.a. að efla kristið æskulýðsstarf fyrir börn og ungmenni, skapa öruggan vettvang til þroska fyrir leiðtoga og þátttakendur í starfi og vera málsvari fyrir ungt fólk.

Eitt af meginhlutverkum ÆSKÞ er að stuðla að leiðtogafræðslu sem miðar að því að tryggja öryggi barna og unglinga í æskulýðsstarfi og er það í samstarfi við þá fjölmörgu aðila sem starfa með ungu fólki í kirkjunni.  ÆSKÞ hefur m.a. staðið að námskeiðum í samstarfi við Barnahús, sem nefnist Verndum þau og fjallar um viðbrögð við grun um vanrækslu eða ofbeldi gegn börnum og unglingum.

Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar starfar eftir siðareglum fyrir fólk sem starfar með börnum og unglingum í kristilegu starfi.  Í 6., 7., og 9. grein stendur:

6. Finna skal úrræði til að koma í veg fyrir andlegt eða líkamlegt ofbeldi hvers konar.
7. Ekki skal stofna til óviðeigandi sambands við börn eða unglinga sem sækja starfið.
9. Gæta skal trúnaðar og þagmælsku um hvað eina sem starfsfólk verður áskynja í starfinu.  Þagnarskylda á ekki við þegar mál koma upp er varða ákvæði um tilkynningaskyldu (sbr. IV kafla Barnaverndarlaga, nr. 80/2002).

Einnig viljum við benda á lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins 70/1996 V. kafli.  Skyldur. 14.gr.

Starfsmanni er skylt að rækja starf sitt með alúð og samviskusemi í hvívetna.  Hann skal gæta kurteisi, lipurðar og réttsýni í starfi sínu.  Hann skal forðast að hafast nokkuð það að í starfi sínu eða utan þess sem er honum til vanvirðu eða álitshnekkis eða varpað getur rýrð á það starf eða starfsgrein er hann vinnur við.

Í ljósi ofantalinna starfsreglna og þess sem fram hefur komið í dómsgögnum þá hörmum við þá ákvörðun að sr. Gunnari Björnssyni skuli vera gert kleyft að snúa aftur til starfa 1. maí.  Okkur þykir ljóst að sr. Gunnar Björnsson hafi brugðist trausti ungmenna og sóknarbarna sinna og sýnt alvarleg afglöp í starfi sínu og teljum að hann eigi ekki að snúa aftur til starfa.  Sú ákvörðun grefur undan uppbyggingu æskulýðsstarfs á Selfossi og vegur að æskulýðsstarfi í kirkjunni allri.

Margrét Ólöf Magnúsdóttir, formaður ÆSKÞ
Sigurvin Jónsson, gjaldkeri ÆSKÞ
Kristján Ágúst Kristjánsson, ritari ÆSKÞ
Þórunn Harðardóttir, meðstjórnandi ÆSKÞ
Jóna Lovísa Jónsdóttir, framkvæmdastjóri ÆSKÞ

Ég lofa að klippa og líma ekki meira

Hólmfríður Pétursdóttir, 14.4.2009 kl. 19:15

25 identicon

Jón hvað ertu að mótmæla mér? Veistu ekki að ég heiti James, James Bond? Voðalega ertu skrítinn að viðurkenna ekki svona? Þetta er vísindalega sannað!

Jón bóndi (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 21:14

26 identicon

Ok, Jón bóndi, það er gott að vita að þér var ekki alvara!

Jón (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband