Pæling um gott og illt

Hafi guð skapað alla hluti og manninn í sinni mynd hefur hann líka skapað vilja mannsins.

Vilji mannsins getur verið illur eða góður. 

Sé hinn góði vilji í samræmi við algóðan vilja guðs ætti hann að vera ánægður.

Sé hinn illi vilji ekki í samræmi við vilja guðs getur hann sjálfum sér um kennt að hafa skapað hinn illa vilja mannsins.

Hafi hann hins vegar ekki skapað hinn illa vilja mannsins hefur hann ekki skapað alla hluti og síst af öllu manninn í sinni mynd - heldur í annarri mynd. Af því að maðurinn sem guð hefur skapað býr yfir illum vilja alveg eins og góðum.

Hvað er guð þá að nöldra.  

Nema hinn illi vilji mannsins sé hið eina sem guð hefur ekki skapað. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.4.2009 kl. 23:06

2 identicon

Fyrra Pétursbréf 2:15

15. Það er vilji Guðs að þið þaggið niður í vanþekkingu heimskra manna með því að breyta vel.

Rómverjabréfið 12:2

2. Fylgið ekki háttsemi þessa heims. Látið heldur umbreytast með hinu nýja hugarfari og lærið svo að skilja hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.

Jón bóndi (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 23:08

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mr. Bond. Þetta svarar ekki spurningunum. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.4.2009 kl. 23:14

4 identicon

Ég tek undir með Láru Hönnu:

Malína (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 23:41

5 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Er ekki viss um að svarið finnist.

Hólmfríður Pétursdóttir, 14.4.2009 kl. 23:46

6 identicon

Ég tek undir með hinum.  confused smiley #17470

EE elle (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 00:17

7 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þetta er auðvitað feiknasnúin og ofurdjúp guðfræði. Getur vilji verið hluti af mynd eða er viljinn sjálfstæður og óskapaður? Ég hallast frekar að því síðara og tel því að Guð sé ekkert að klikka þarna.

Emil Hannes Valgeirsson, 15.4.2009 kl. 00:39

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ágústínus sagði eitthvað á þá leið að hið illa væri ekki, það væri vöntun á hinu góða, ekki andstæða þess, ekki veruleiki í sjálfu sér.  En þetta sem ekki er er þá kannski hið eina sem guð hefur ekki skapað. Engar lífverur hafa siðferðilegan vilja nema maðurinn. Annars er mig farið að svima. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.4.2009 kl. 00:49

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En illur vilji er ein hlið af eðli mannsins. Hver skapaði eðli mannins?

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.4.2009 kl. 00:51

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Svimar svo mikið að ég verð að sofa á þessu. Er hluti af eðli mannsins óskapaður, en samt til?

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.4.2009 kl. 00:53

11 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Nema illur vilji sé afvegaleiddur góðvilji.

Emil Hannes Valgeirsson, 15.4.2009 kl. 00:56

12 identicon

Geturðu horft í augun á honum Mala án þess að blikna og sagt litla krílinu að hann hafi ekki siðferðilegan vilja?

Malína (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 00:57

13 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Sæll Sigurður.

Fín umræða sem þú bryddar upp á.

Þegar talað er um að Guð hafi skapað Manninn í sinni mynd er ekki átt við að hann hafi klónað sjálfan sig og búið til annan fullkominn GUÐ. Slíkt er líka rökfræðilegur ómöguleiki því tvö absalút öfl geta ekki verið til í sama alheimi. Guð hlýtur því að hafa gert manninn líkan sér, þ.e. innlagt í hann eiginleika sína.

Til að geta af sjálfdáðum ræktað þessa eigindir Guðs í okkur, lætur hann okkur eftir tól og tæki til þess. Eitt af þeim er frjáls vilji sem er hvorki góður né illur, en án hann væri ekki hægt að kalla okkur til ábyrgðar fyrir gjörðir okkar, hvorki góðar né illar. Annað sem hann lætur okkur eftir eru upplýsingarnar um hvað sé honum þóknanlegt og hvað ekki. Eigindirnar vaxa við að vera Guði þóknaleg og ekki annars. Hvorutveggja er á okkar ábyrgð.

Svanur Gísli Þorkelsson, 15.4.2009 kl. 01:51

14 Smámynd: Eygló

Ekki veit ég nákvæmlega hvar í Biflíunni það stendur (biblian.is virkar ekki hjá mér í bili) ... - ... að þá hafi Guð gefið manninum frjálsan vilja

Eygló, 15.4.2009 kl. 03:25

15 identicon

Nei einmitt Sigurður! Þetta var nú bara tilvitnun í vers um vilja Guðs! Getur maður talað um Guð eins og hann sé einhver slæmur gaur með frekju? Þá væri hann ekki Guð. Guð er víðari og hærri en nokkurt sem við getum hugsað. Í raun er nafn Guðs svo heilagt að það er ekki hægt að nefna það.

Jón bóndi (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 06:25

16 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sagt er að guð hafi gefið manninum frjálsan vilja. En það er líka sagður    vera til dómsdagur þegar menn verða dæmdir. Þeir munu fara til heljar sem ekki fóru að vilja guðs. Þetta er ekki að gefa mönnum frjálsan vilja, helldur skilyrtan vilja gagnvart guði. Að gefa mönnum einhvern eiginleika sem þeir er refsað fyrir að nota nema eftir forskrift er ekki um að ræða að eiginleikinn sé frjáls. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.4.2009 kl. 13:09

17 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ef útkoman væri sú sama hvort sem þú brýtur reglurnar eða ekki væri ekki hægt að tala um "frjálsan" vilja. Þá væri heldur ekki hægt að draga þig til ábyrgðar fyrir gjörðir þínar. Þú velur og tekur út umbun eða refsingu í samræmi við val þitt og í því sambandi er hver dagur "dómsdagur".

Svanur Gísli Þorkelsson, 15.4.2009 kl. 14:13

18 Smámynd: Eygló

Við einkavæðingu bankanna var þessum "sjentilmönnum" gefnar "frjálsar" hendur.  Sumir kunnu/vildu vel með það fara. Þeir liggja ekki undir ámælum. Hinir ("sumir") notuðu sitt frelsi til síður góðra verka, við (alla vega ég (þó ég sé ekki guð)) viljum að þeir fái dóm og refsingu.

Eygló, 15.4.2009 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband