Handel

Í þessum mánuði eru 250 ár liðin frá dauða tónskáldsins Handels.

Hann samdi Messías sem flestir þekkja. Hallelúja!

Um sína daga var hann dáðasta tónskáld heimsins. Hann var samtíðarmaður Bachs.

Nú er hann óneitanlega nokkuð í skugga Bachs sem var lítt viðurkenndur meðan hann var uppi sem tónskáld þó hann væri rómaður organleikari.

Samt er Handel auðvitað einn af mestu tónsnillingum heimsins þó annar enn meiri hafi verið honum samtíma.

Eitt verk eftir hann er mér sérstaklega hugstætt.  Concerrto grosso op.6. Þetta eru tólf konsertar fyrir strengjasveit og tekur hver þeirra kringum 15 mínútur í flutningi. Slíkir konsertar voru algengir á baroktímanum.

Þessir skera sig úr öðrum fyrir ótrúlegt hugmyndaflug en þeir voru samdir á aðeins einum mánuði. 

Í gamla daga gengu séní um eins og ekkert væri.

Ef ég má segja það á okkar lágkúrulegu tímum þá þekki ég varla betra dæmi um hámenningu í tónlist en þessa konserta.

Þeir eru gæddir þeirri tign, fágun, fjölbreytni og dýpt sem eingöngu kemur fram þar sem snilldin er mest.

Þeir eru úrvalshugsun.

Menn eiga að sækja í slíka fjársjóði til að hefja hugann upp fyrir dægurþrasið, kosningahasarinn og bloggbullið. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Takk

Hólmfríður Pétursdóttir, 19.4.2009 kl. 13:15

2 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Farinn út í búð.

Sigurbjörn Sveinsson, 19.4.2009 kl. 14:36

3 identicon

góður Siggi, ætla að reyna að verða mér út um þetta, hvíla mig á Bartok.

sandkassi (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband