Spurningunni um forgang ekki svarað

Í fréttaauka sjónvarpsins var fjallað um svínaflensuna. Þar kom fram að til eru lyf fyrir einungis þriðjung þjóðarinnar.

Hins vegar var þeirri spurningu ekki svarað hverjir fengju lyfin ef sóttin yrði mjög skæð. Það liggur í augum uppi að ekki gætu þá allir fengið þau sem myndu veikjast.

Spurt var um forgang í þættinum. En það komu engin svör frá þeim embættismönnum  sem spurðir voru. Aðeins sagt að mest áhersla yrði lögð á það að halda samfélaginu gangandi.

Þetta er ekkert svar.

En ætli valdastéttin muni ekki hugsa fyrst og fremst um sjálfa sig. 

Alþýðan má drepast. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég er að pæla í hvort svínaflensuveira og fuglaflensuveira geti ekki stökkbreyst í ofurflensuveiru. Myndi svo breiðast út.Hálf veröldin verða veik á sama tíma. Hvað þá?

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.5.2009 kl. 20:17

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað verður svo um veirur? Deyja þær út? Afhverju er spænskuveikisveran ekki enn að?

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.5.2009 kl. 20:28

3 identicon

Sæll Sigurður.

Ég var að bíða eftir þessu eins og þú. Og allt getur gerst með þróun þessarar veiru og enginn veit neitt með vissu. Og óvissa er öllum óholl.

Mér finnst eðlilegt við svona aðstæður að þá sé það allar heilbrigðisstofnanir og löggæslan og stjórnsýslan hafi forgang en hvað svo ? 

Varla fara þeir að splæsa lyfi á mig, kominn á seinni árin og aðeins byrði á þjóðfélaginu. Svona gæti margur hugsað ! 

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 20:30

4 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Sá ekki þáttinn en þetta er margrætt. Til lyfjaskmmtar handa þriðjungi þjóðarinnar. 

1. Skoðanir eru nokkuð skiptar um fyrirbyggjandi lyfjagjöf. Gæti þurft að endurskoða.

2. Allir sem veikjast fái meðferð.

2. Heilbrigðisstarfsmenn og lykilstarfsmenn fyrir öryggi þjóðarina.

Ég tel að Jóhanna og Steingrímur ættu að hafa nokkurn forgang fram fyrir okkur Nimbus án þess að það teljist síngirni af þeirra hálfu. Það er til nóg af lyfjum ef þessum reglum er fylgt. 

Sigurbjörn Sveinsson, 3.5.2009 kl. 21:12

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En ef veikjast meira en einn þriðji hluti þjóðarinnar. En  hvað með ofurveiruhugmynd mína? Er hún möguleiki?

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.5.2009 kl. 21:19

6 identicon

Þú spurðir hvað hefur orðið um skæðu inflúensurnar, hvort þær deyi út. Sóttvarnarlæknir sagði mér í vetur að þær þær inflúensur sem árlega berast til Íslands eru flestar leyfar af stofni spænsku veikinnar. Við erum bara fyrir löngu búinn að byggja upp mótefni gegn flensunni og því er hún fæstum okkar hættuleg. Þetta þynnist út með tímanum.

Svínaflesnan er hins vegar veira af nýjum stofni, sem mannfólkið hefur ekki byggt upp mótefni fyrir. Því er hún svo hættuleg.

Baldur Guðmundsson (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 21:59

7 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Svo er það spurning hvort svínaflensuvírusinn geti stökkbreyst í tölvuvírus?

Ágúst H Bjarnason, 3.5.2009 kl. 22:05

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En getur tölvuvírusinn ekki stökkbreyst í einu feikna stökki í mannavírus!

Sigurður Þór Guðjónsson, 3.5.2009 kl. 22:08

9 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

tölvuvírusar fara oft illa með fólk

Hólmfríður Pétursdóttir, 3.5.2009 kl. 22:20

10 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Það er ólíklegt að þurrð verði í lyfjum ef rétt er með farið og læknar fylgja fyrirmælum og upplýstri samvisku sinni.

Veirurnar brenna út í þýðinu, sem þær leggjast á og rotaera í. Dalamenn slupu við Spönsku veikina á sínum tima. Þeir settu varðmenn á fjallvegi, sem kölluðu til þeirra sem nálguðust að hverfa frá. Þetta lánaðist ótrúlega vel og þegar sýslan var opnuð var veikin gengin hjá. 

Það tekur talsverðan tíma að greina hjúpgerð veirunnar nákvæmlega og geri ég ráð fyrir að hún liggi ekki fyrir í smáatriðum enn. Í bóluefni frá liðnu hausti var mótefnavaki fyrir H1N1 afbrigði inflúensu frá 2007. Þeirri spurningu hefur ekki verið svarað hvort og þá að hve miklu leyti sá mótefnavaki getur hafa veitt vörn við þeirri veiru, sem nú er á ferðinni. Það er ekki fráleitt að ætla það en spurningin er á kenningarstigi í augnablikinu.

Það er margt, sem bendir til þess, að þessi veira muni breiðast um heiminn á næstu mánuðum eða misserum en það er líka margt, sem bendir til þess, að varla verði hægt að kalla hana drepsótt.

Sigurbjörn Sveinsson, 3.5.2009 kl. 22:26

11 identicon

". . geti stökkbreyst í tölvuvírus". Big Grin

EE elle

. (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 22:27

12 identicon

"...En  hvað með ofurveiruhugmynd mína? Er hún möguleiki?"

Fyrst þurfum við að skilgreina ofurveiru.  Er það veira sem leggst einkum á ofurmenni eins og Nimbusinn, ofurkvendi eins og mig  eða mega ofurkisur eins og hann Mala?

Úr þessu þarf að fá skorið...

Malína (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 01:03

13 identicon

EE elle tee hee

. (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 09:35

14 identicon

Vísindamenn vöruðu við þessum vírus fyrir 5 árum,-svona geta veirur þróast og orðið skæðar:http://www.news.com.au/perthnow/story/0,21598,25427019-5017320,00.html 


EE ellehasEML = false;

. (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband