Talibanar

Talibanar eru einhver mesta ógn okkar tíma.

Ekki bara þessir múslimsku réttnefndu talibanar.

Ekki síður óeiginlegu talibanarnir, kristnir  öfgamenn í vestrænum samfélögum.

Hugsið ykkur ef þeir réðu hér öllu.

Þá væri ekkert blogg nema trúarblogg. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

já segðu. aldeilis rétt.  það þarf ekki langt áhorf á Omega til að sjá það.

sveiattan

Brjánn Guðjónsson, 7.5.2009 kl. 19:19

2 identicon

Þessir ofsatrúarmenn haga sér eins og þeir gera að mestu vegna þess að þeir eru svo óöruggir með sjálfa sig... hræddir við breytingar, að geta ekki höndlað þær. geta ekki staðið undir væntingum í þróuðum tæknisamfélögum.

Kóran og biblía er akkúrat það sem þetta lið getur falið sig ábakvið...
Skref
1 Gera konur að eign karla
2 Takmarka menntun.. og þá sérstaklega það sem kemur illa við trúarritin... einnig passa að konur nái ekki að mennta sig og fatta að þær eigi rétt á jafnrétti.
3 Reglurnar eru óbreytanlegar.. guddi sagði það... submit or burn
4 Við erum ómerkileg, lífið okkar hér og nú er bara biðstofa að betri stað.
5 Gera hvað sem er til að fyrirbyggja að guðinn og bækurnar hans séu gagnrýnd... fara fram á lög sem vernda almáttugasta gaur í alheiminum... hann getur ekki varið sig sjálfur

DoctorE (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 19:21

3 identicon

. (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 19:57

4 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Submit or burn  kemur það enn. Leitaði aftur í fleiri en einni enskri þýðingu allrar Biblíunnar.

Þrjóskan ríður ekki við einteyming. Fann ekkert. finndu þér nýjan frasa sem stenst.

Hólmfríður Pétursdóttir, 7.5.2009 kl. 22:03

5 identicon

Submit or burn.

eina leiðin til að brenna ekki er að leggjast undir Sússa, játa að hann sé masterinn yfir öllu.

DoctorE (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 22:26

6 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Er þetta nú ekki aðeins ofmælt? Í svipinn man ég ekki eftir neinum vopnuðum kristnum öfgamanni hér á Íslandi eða í nágrenninu. Sumir er of bókstafstrúaðir fyrir minn smekk en ég óttast þá ekki.

Tilhugsunin um að Talebanar komist yfir kjarnorkuvopn finnst mér hins vegar ekki góð.

Finnur Hrafn Jónsson, 7.5.2009 kl. 22:27

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hér hafa kristnir öfgamenn enginn völd. Ef þeir hefðu þau myndu þeir sýna klærnar. Birtingarmynd sama hugarfars fer líka eftir ytri aðstæðum. Þess er ekki að vænta að svipað hugarfari birtist á nákvæmlega sama hátt á Íslandi þar sem vopna hafa ekki verið notuð í margar aldir og í ríkjum þar sem blóðug átök eru algeng.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2009 kl. 22:36

8 identicon

Komandi aðstæður á íslandi eru tilvaldar fyrir öfganötta að grassera í.
Hversu örvæntingarfullt sem fólk er þá á það að forðast það að leita í trúarhópa... .þeir eru að selja pólitískan skilning sinn á einhverju hjátrúarkjaftæði.. .......

Það er ekki nokkur munur á að fara að trúa á Sússa, Mumma eða whatever.. og að segjast trúa á He-Man og Masters of the universe.. að Skeletor sé að reyna að koma með anti-He-Man til að rústa öllu fyrir okkur.
Munurinn á þessu er að fólk er þjálfað í að horfa á suma farout geðveika hluti sem eitthvað spes virðingarvert dæmi....en enginn munur er per se á He-Man og Sússa.
Takið biblíu og skiptið nafni Sússa út með He-Man.. Satan sem Skeletor... himnaríki er plánetan Eternia.

Comon krakkar vakna :)

DoctorE (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 23:46

9 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Það eru mörg ævintýraminni í He-Man en lítið úr Biblíunni. Ævintýrin og Biblían segja frá baráttu góðs og ills.

Gaman væri að ræða himnaríki seinna.

Hólmfríður Pétursdóttir, 7.5.2009 kl. 23:52

10 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ef "trúleysistalibanar" hefðu hér völd yrði ekki bara spilað bingó á föstudaginn langa heldur líka á jólunum!

Matthías Ásgeirsson, 8.5.2009 kl. 08:29

11 identicon

Hey ekki gleyma Tali-könum.. þeir eru kexruglaðir líka ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 18:19

12 identicon

Eru Íslendingar skárri?

Jón Þór (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 21:40

13 identicon

Eru Tali-íslendingar skárri en Kanar?

Jón Þór (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband