Húrra fyrir þeim sem hugsa öðruvísi

Ég rakst á þessa skoðun um vændi á bloggsíðu.

Ég held að hún gangi stundum upp í vestrænum ríkum löndum. 

En mansal er staðreynd og nauðungarvændi í ýmsum myndum víða um heim. Ekki má gera lítið úr því

Hins vegar þorir nánast engin að nefna hér á landi þá hlið mála sem hér er ymprað á. Hún skiptir nefnilega nokkru máli.

Fróðlegt væri svo að heyra skoðanir þessa norska heimspekings Ninu Karen Monsen á hjónabandinu og á samkynhneigð.

Á Íslandi eru reynt að berja niður allar skoðanir með harðri hendi sem ekki samrýmast réttrúnnaði þeirra sem móta umræðuna um hin ýmsu mál með því að hafa sig mest í frammi.

Húrra fyrir þeim sem hugsa ''öðruvísi''.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að þetta geti átt við sumar vændiskonur en ekki þær sem seldar eru mansali landa á milli. Við sáum smjörþefinn af mansalinu í þáttunum sem teknir voru upp í Kambódíu. Þar voru börn seld upp í spilaskuldir og síðan notuð sem hver önnur skiptimynt.

Fyrir einu eða tveimur árum var frétt, sem þó fór ótrúlega lágt, um mann í bresku listaakademíunni (Robert e-ð) sem ásamt annarra landa barnaníðingum keypti sjö ára gamalt stúlkubarn frá Kambódíu. Þeir lýstu því fjálglega hvernig misnotkunin fór fram uns "leikfang" þeirra dó. Barnaníð og mansal hangir á sömu spýtu, því fórnarlömb mansals geta líka verið börn.

Kolla (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 16:56

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta er alveg rétt hjá þér Kolla. Og svo held ég að ekki að hafi verið snert við þessum listfrömuði sem var víst mjög þekktur maður í Bretlandi en nú er hljótt um. En hann var aldrei dæmdur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.5.2009 kl. 17:11

3 Smámynd: Halldóra Halldórsdóttir

Það gleymist svo oft að geta þess hversu hátt hlutfall þess fólks sem stundar vændi hefur verið misnotað í æsku. Misnotkunin hefur margvíslegar afleiðingar m. a. verður sjálfsmyndin fyrir hnjaski og sjálfsskaðandi hegðun fylgir oft í kjölfarið.

Halldóra Halldórsdóttir, 10.5.2009 kl. 19:31

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Góður punktur Halldóra.

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.5.2009 kl. 19:36

5 Smámynd: Sylvía

ju flott ad hugsa odruvisi og leyfa ser ad segja thad.

Hun hlaut lika Fritt Ord verdlaunin i ar.

Sylvía , 11.5.2009 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband