1.6.2009 | 12:10
Óvenjulegur sólar-og hlýindakafli í maí
Maí var sá sjöundi sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga. Sólin skein í 280 klukkustundir. Sólríkastur allra maímánaða var árið 1958, 330, 1 klst. En næstur í röðinni kemur maí 2005 þegar sólskinsstundirnar voru 317,7.
Síðasti maí var líka vel hlýr, 7,7 stig, held ég, en var samt heilu stigi kaldari en maí í fyrra sem var sá hlýjasti síðan 1960. Úrkoma var vel yfir meðallagi.
Eiginlega var þessi síðasti maí samt notalegri en í fyrra. Það er ekki aðeins sólin sem veldur heldur einnig gott hlýindatímabil sem hófst þann 12. og stóð í nokkra daga.
En merkilegast var þó að í 9 daga í röð frá þ. 14. skein sólin í 10 klukkustundir eða meira hvern dag. Það hefur ekki gerst í maí áður nema 1.-9. árið 1958 og 17.-25. árið 1967.
Meðalhiti sólarhringsins þessa 9 daga núna var 10,0 stig en sólarstundirnar voru 123,4. Þetta er óvenjulega hár meðalhiti en langir sólarkaflar í maí eru nánast alltaf kaldir.
Til samanburðar voru sólarstundirnar samfelldu 9 dagana árið 1958 125,3 klst. en meðalhitinn var aðeins 3,4 stig, en árið 1967 voru samfelldu sólarstundirnar 135,4 en meðalhitinn var 6, 4 stig. Mesti hiti sem mældist þessa daga 1958 var 12,0 stig en 1967 12,9 stig. Núna fór hitinn í 18,3 stig, þ. 17. (Þegar Jóhönnu Guðrúnu var fagnað á Austurvelli), daginn áður í 16,9 stig og daginn eftir í 16,2 stig.
Vegna hitans í síðasta maí má því alveg segja að í þeim mánuði hafi borgarbúar notið lengsta samfellda hlýinda og- sólarkafla sem dæmi eru um frá því mælingar hófust í máimánuði. Hlýrri tímabil hafa komið sem staðið hafa færri daga en með meiri hita, minnisstæðast árin 1960 og 1988.
Hægt er líka að finna kringum hálfsmánaðar sólarkafla í maímánuðum þar sem sólarstundir hafa flesta daga verið yfir 10 klukkustundir en inni á milli hafa komið dagar með minna sólskini. Allir hafa þessir dagar verið kaldir að meðaltali og engin tímabilana náð 10 stiga meðalhita en stundum verið sæmilega hlýir dagar með öðrum köldum.
Við megum því vel við una í upphafi rigningasumarins alræmda árið 2009!!
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Gott að sjá færsu frá þér aftur.
Ég man þennan bjarta og oft hlýja maí 1958. Ég las úti, ég borðaði út, ég meira segja straujaði úti.
Það var þá. Nú er ekkert straujað og lítið farið út, en gott er blessað sólskinið samt.
Hólmfríður Pétursdóttir, 1.6.2009 kl. 12:48
Takk fyrir þetta. Það er í raun merkilegt að þótt mánuðurinn sé þetta kaldari en í fyrra þá sýnist mér hann samt vera næsthlýjasti maí síðan '74.
Emil Hannes Valgeirsson, 1.6.2009 kl. 14:25
má ´eg minna á,sá vindasamasti, hvassasti.
Helga Kristjánsdóttir, 1.6.2009 kl. 17:21
Þú ert alveg harðákveðinn í að hafa rigningasumar, Siggi!
Lára Hanna Einarsdóttir, 1.6.2009 kl. 17:37
Hann var ekkert sá vindasamasti. Allra síst samfelldu sólardagana. En vindhraðu hefur þó líklega verið nokkuð yfir meðallagi.
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.6.2009 kl. 17:39
Lára, eins og ég hef sagt áður skal ég hundur heita ef ekki verður rigningarsumar. Voff!
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.6.2009 kl. 17:40
Já, þá skaltu hundur heita og koma í fótbolta með okkur Kötlu á Landakotstúni í rigningunni!
Lára Hanna Einarsdóttir, 1.6.2009 kl. 17:41
Þú munt ekki finna neinn mun á mér og Kötlu eftir 40 daga rigningu dag og nótt. Við verðum bæði hundblaut!
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.6.2009 kl. 17:48
Það verður bara fínt fyrir okkur inniklessurnar að fá rigningarsumar. Þá fáum við góða ástæðu til að hanga inni í sumarfríinu án þess að nokkur hneykslist á okkur né reyni að draga okkur upp um fjöll og firnindi.
Ég hlakka til innipúkasumarsins.
Malína (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 18:56
Og fer þessi rigning ekki að hefjast?
EE elle (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 19:33
Veðrið er íhaldssamt. Það hafa verið vestanáttir undafarið amk. hér við Flóann. Þær kalla á bleytu en oftast kaflaskipta bleytu. Sigurði gæti orðið að ósk sinni að einhverju leyti.
Sigurbjörn Sveinsson, 1.6.2009 kl. 19:49
Þetta er ekki ósk mín heldur spádómsgáfan ógurlega!
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.6.2009 kl. 19:54
Enginn vottur enn af nanó-dropa úr lofti.
EE elle (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 23:09
Rigningin byrjar vonandi ekki fyrr en ég fer í sumarfrí - seinna í þessum mánuði...
Malína (IP-tala skráð) 2.6.2009 kl. 00:07
Talandi um rigningarsumur; eitt mesta rigningarsumar, sem ég man eftir um sunnan- og vestanvert landið var 1955. Hef reyndar grun um að einhver sumur hafi komið sambærileg síðan, en ég hafi sloppið við þau vegna búsetubreytinga á tímabilinu. Hef tröllatrú á að þú hafir tölur um þetta atriði, sem önnur veðurfarsafbrigði og meðaltöl. Kv.
Bótólfur (IP-tala skráð) 2.6.2009 kl. 07:28
Sumarið 1955 virðist öllum minnisstætt hér sunnanlands sem afburða rigningarsumar og öllum öðrum fremra.
Sigurbjörn Sveinsson, 2.6.2009 kl. 09:50
Sumarið 1955 var frægt rigningarsumar og lengi til þess vitnað. Síðar hafa komið mikil rigningarsumur svo sem 1969 og 1984 að ógleymdu kalda rigningarsumrinu 1983. En það er sérstaklega eftirtektarvert að ekki hefur komið heilt rigningarsumar á suðurlandi eftir 1984.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.6.2009 kl. 10:11
Enn er von!
Sigurbjörn Sveinsson, 2.6.2009 kl. 10:21
Það er næsta víst að það mun koma rigningarsumar, spurningin er bara hve nær.
Sigurður Þór Guðjónsson, 2.6.2009 kl. 10:33
Fáum við ekkert að sjá Lamasessinn neitt meira sem var hérna fyrr í dag? Þetta voru orðnar svo assgoti fjörugar umræður. Sú síðasta kom frá einhverjum sem var skriðinn ofan í pokann hjá Fljúgandi Kengúrunni...
Malína (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 19:34
Ég er í bloggógeðskasti og finnst allt blogg fánýtt nema veðurblogg. Fljígandi kengurublogg er kannski líka ágætt, að minnsta kosti ef sjálfur Doksi er í pokanum. Hvað er í pokanum? - Doksi!
Sigurður Þór Guðjónsson, 3.6.2009 kl. 19:48
En hvað varð um regnið? Fór það líka ofan í pokann?
EE elle (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 21:02
Þið fylgir ykkur svalur andblær - eins og veðrinu.
Sigurbjörn Sveinsson, 3.6.2009 kl. 22:16
Við erum svalur andblær.
EE elle (IP-tala skráð) 3.6.2009 kl. 22:52
Hvað varð um öll hallelúja bloggin eiginlega... gengur ekki að fara og skipta um umræðuefni ;)
DoctorE (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 11:31
Þú reiknar semsagt með rigningu í 40 daga og 40 nætur. Það verður samt varla annað eins flóð og skolaði örkinni upp á Araratsfjöll.
Hólmfríður Pétursdóttir, 4.6.2009 kl. 11:43
Setti aftur inn hallelúkjabloggin - bara af því að Doksa finnst svo gaman að steypa sér kollhnís í pokanum á fljúgandi risakengúrunni sem er náttúrlega bara guð.
Sigurður Þór Guðjónsson, 4.6.2009 kl. 12:46
Guð hjálpi þér þegar Docsi kemur úr messu og les þetta.
EE elle (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 13:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.