Ég hef frelsast!

Í nótt vitraðist mér sjálfur Jesús Kristur og sagði:

Þú ert nú aumi syndarinn Sigurður! Og sál þín er svört sem bik og hjartað forhert og hart. Eins gott að þú snúir af villu þíns vegar áður en þú sekkur að eilífu í glötunardýpið. Þú ert trúlaus andskoti. En öll nótt er ekki enn úti. Þreifaðu nú á mínu síðusári og  trúðu.

Og ég þreifaði á hans blóðuga síðusári og sjá!

Ég fékk instrant frelsun!

Ó, hans blessaða síðusár hefur frelsað mig frá öllum syndum!

Og síðast en ekki síst frá HELVÍTI og kvölunum.

Kræst! Ég hef frelsast!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

var Ésú svartur eða hvítur? Með skegg eða ekki? Í baðslopp eða ekki? Í sandölum eða strigaskóm?

þú veist. Seg mér.

Brjánn Guðjónsson, 1.4.2010 kl. 11:40

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hann var nú bara stuttklipptur og í fínum jakkafötum (og með nafnspjald þar sem á stóð Djísus Kræst) eins og mormónar sem eru að boða trú. Klipptur og snyrtur fyrirmyndarborgari.

Sigurður Þór Guðjónsson, 1.4.2010 kl. 11:53

3 Smámynd: Dingli

Þið hljótið að vera klikk. Hafið þið ekki séð allar myndirnar af honum?

Dingli, 1.4.2010 kl. 12:16

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er nu hvorki meirna né minna en sjálfsmynd af manninum. Hana má finna í Genoa. Samkvæmt kirkjuföðurnum Eusebius, þá sendi Jesú Agabar konungi í Edessa þessa mynd af sér með löngu bréfi, sem Eusebius vitnar í. Ritað af Jesú sjálfum. Raunar eru einar þrjár myndir, í kirkjum evrópu, sem sagðar eru sú mynd, sem Eusebius hafði undir höndum, en þessi er elst og "líklegust"

Menn hafa ekki enn fundið neinar heimildir fyrir þessum Agabar konungi, enda er nafnið Agabar titill, sem þýðir konungur, rétt eins og Faraó eða Caesar. Þú skalt þó ekki voga þér að gera lítið úr þessu við kristna, sem flykkjast hvaðan æva að úr heiminum til að veita þessari sjálfsmynd lotningu.

Bréfið hefur aldrei fundist og enginn virðist hafa séð það nema Eusebius, sem m.a. nefndi fyrstur manna nafn bæjarins Nasaret á nafn á 4. öld. Heimurinn hafði aldrei haft heimild um að slíkur staður væri til, nema af snubbóttum fullyrðingum í tveimur guðspjallanna.

Fyrst ég er nú í stuði fyrir páskafróðleik, þá er kannski rétt að minna á að fleiri staðir voru óþekktir, þar til kristnir ákváðu stasetningu þeirra´og gáfu þeim hentugt nafn. Þar má t.d. nefna Getsemanegarðinn og Golgata.

Enginn veit hvar þessir staðir voru í raun og veru, en benda má á að 500 árum áður var Búdda nokkur látinn líða píslardauða á staur á hæð, sem hét Kolgata. Tilvísun um þann stað má enn finna í nafni borgarina Kalkutta. Annað er nú ekki líkt með þessum sögum, nema þá helst að Búdda lést og fór til heljar, en reis upp á þriðja degi í sitt Nirvana í eilífðinni miklu á himmnum.

Ef þið haldið að ég sé að bulla, þá hvet ég ykkur í það minnsta til að fletta þessu upp.

Jón Steinar Ragnarsson, 1.4.2010 kl. 13:13

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mér finnst hann líkjast Indriða H. Þorláksyni óhugnanlega mikið.

Jón Steinar Ragnarsson, 1.4.2010 kl. 13:18

6 Smámynd: Dingli

 Stofnanir átrúenda Krosslafs hafa enda verið duglegar að skattleggja almúgann.

Dingli, 1.4.2010 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband