23.6.2011 | 00:53
Mikil dægursveifla
Hitinn í Reykjavík í þessum mánuði má nú heita kominn upp í meðallag. En ekki víst að hann hangi í því næstu daga. Nokkrir ágætir dagar með mikilli sól og hámarkshita upp á 15-16 stig hafa komið undanfarið og það gerist svo sannarlega ekki í hverjum júní. Hér í Reykjavík getum við ekki kvartað.
En annars staðar á landinu en suðvesturlandi er fremur kalt miðað við meðallag, meira að segja á suðurlandi og suðausturlandi. Og enn er hitinn vel undir tveimur stigum frá meðallagi fyrir norðan og jafnvel tiltölulega enn kaldara er á Vestfjörðum.
Aldrei er hlýtt loft yfir landinu en hitinn á suðurlandi hefur orðið furðu hár á daginn þegar sólin skín en næturkuldinn líka ansi mikill.
Á Þingvöllum fór hitinn í gær upp í 17,9 stig en í nótt féll hann niður í -1,8, en steig svo aftur í dag upp í 16,6 stig, dægursveifla upp á 19,7 stig, en annað eins gerist stundum snemma sumars á Þingvöllum. Bæði mesti og minnst hiti á landinu í dag í byggð var á Þingvöllum.
Meginflokkur: Mánaðarvöktun veðurs | Aukaflokkar: Bloggar, Veðurfar | Breytt 28.6.2011 kl. 02:59 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Greinileg vinstrisveifla
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 23.6.2011 kl. 11:30
Já, og veðurfarið vill ekki sjá neina hægrivillu sem leiddi síðast til hafísáranna alræmdu þegar hún var allsráðandi.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.6.2011 kl. 11:56
Ættum við ekki að vera farnir að miða við meðaltal áranna 1981–2010, og er ekki rétt hjá mér að þar með væri þessi júnímánuður enn nokkuð undir meðaltali?
Birnuson, 23.6.2011 kl. 13:11
Já, þá væri meðalhitinn enn 0,4 stig fyrir neðan meðaltal. Ef miðað er við siðustu tíu ár er meðalhitinn 22. júní núna hins vegar 1,2 stig undir meðallagi og sýnir það hlýindi síðasta áratugs . En ekki er kannski líklegt að jafn hátt meðaltal haldist áfram næstu 20 ár svo næsta 30 ára meðaltal haldist í þeim hæðum. Samt aldrei að vita!
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.6.2011 kl. 13:28
Meðallagið sem ég var að miða við var sem sagt hið lögformlega 1961-1990 sem er með þeim köldustu 30 ára tímabilum sem hægt er að finna frá því snemma á 20. öld. En þetta er samt meðtalsástand í heil 30 ár og segir því mikið um það hitaástand sem fylgt hefur stórum hluta þjóðarinnar megninu af lífsskeiði hennar. En yngsta fólkið hefur aðra reynslu og líka það elsta.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.6.2011 kl. 14:13
Sæll! Það varð mikil dægursveifla á Akureyri fyrir nokkrum árum. Hiti um miðjan dag var um eða yfir 25°, undir miðnætti var hitinn um 17° og daginn eftir var hann kominn niður undir 1-2° og farið að mugga. Ekki vill svo vel til að þú eigir eitthvað um þetta í þínum fórum?
Við finnum gögn í gamla Degi um jónsmessuhretið 1992 þegar Norðmenn og Svíar komu til að skoða skíðasvæðið að Bjarnargili í Fljótum en þetta dæmi sem við höfum í huga er nýrra. Með kveðju og þakklæti fyrir fróðlegt blogg.
Áslaug Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 23.6.2011 kl. 14:56
Áslaug: Mér dettur í hug júní 1997. Þá segir Veðráttan: ''Aðfaranótt 4. fór mjög skarpt lægðardrag suður yfir landið. Vindur gekk til norðurs og kólnaði snögglega niður undir frostmark fyrir norðan með éljahreytingi. Aðeins 12 tímum áður hafði hiti verið vel yfir 20 stigum.'' Þann 3. var hámarkshitinn á Akureyri 24,6° en meðalhitinn 17,1° og hitinn kl. 18 var 24,1° en 17,4° á miðnætti. Um nóttina kólnaði svo mjög og kl. 9 næsta morgun var hitinn 1,8°. Þann dag var meðalhitinn 2,7° og fór aldrei hærra en í 4,0° og næstu nótt féll hitinn í -0,2°. Þetta eru einhver skörpustu veðrabrigði sem um getur að sumarlagi. Og í kuldakastinu sem þessu fylgdi mældist frost í eina skipti í júní í Vestmannaeyjum.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.6.2011 kl. 15:47
En þessi hitamunur 1997 er ekki venjuleg dægursveifla eins og hefur verið síðustu daga á Þingvöllum heldur ruddi ískalt loft hlýju lofti burtu sem verið hafði yfir landinu. Í hitabylgjunni 2004 í ágúst meðan hlýindin enn stóðu sem hæst var dægusveiflan á Staðarhóli í Aðaldal hins vegar hlýjasta daginn, þ. 13., 27 stig, frá 1-28 stig. Þá voru engin loftskipti eins og 1997 heldur aðeins útgeislun nætur og inngeislun dags og hlýtt og þurrt loft yfir.
Sigurður Þór Guðjónsson, 23.6.2011 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.