Mali fjögurra ára í dag

Í dag er stjörnukötturinn Mali fjögurra ára.

Sú var tíðin að hann var alþekktur í bloggheimum og átti sér fjölmarga hysteríska aðdáendur í öllum heimshornum.

En upp á síðkastið hefur hann forðast sviðsljósið enda hefur hann fengið sig fullsaddan af frægðinni og þeim söguburði, rógi, öfund og illmælgi sem henni fylgir.

Þó Mali sé kominn af allra léttasta skeiði er hann þó enn  feiknarlega grimmur og harðskeyttur og athyglin og einbeitnin alltaf jafn eiturskörp. Þetta sést glögglgega á efstu myndinni sem tekinn var fyrir örfáum dögum. 

En Mali getur líka verið spakur og horft á heiminn úr sínum upphæðum. 

Á velli er hann ætíð sperrtur og merkilegur með sig með sitt  ótrúlega langa skott enda veit hann vel af verðleikum sínum.

Og enn er hann ekki kominn út úr skápnum. Það er alltaf hans uppáhaldsstaður.

Ef smellt er nokkrum sinnum á myndirnar verður afmæliskettið Mali larger than life

 dsc00224_1093601.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

dsc00223_1093602.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

dsc00185.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

dsc00219.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Til hamingu með Mala. Hann er stórglæsilegur þarna í glugganum. Kannski að gá til veðurs?

Emil Hannes Valgeirsson, 25.6.2011 kl. 21:07

2 Smámynd: Kama Sutra

Malinn með gimsteinaaugun á ennþá sína hysterísku aðdáendur sem gleyma honum ekki svo glatt.

Svartur sólargeisli sem auðgar tilveruna. 

Kama Sutra, 25.6.2011 kl. 22:11

3 identicon

Heill og sæll; Sigurður Þór !

Til hamingju; með þessi tímamót, í lífi ykkar fóstra.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason - og ferfætlingarnir, á heimilinu 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.6.2011 kl. 13:49

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Til hamingju með Mala The Magnificent!

Kveðja frá Svövu frænku og Dáð Tító og Gosa frænda.

Svava frá Strandbergi , 27.6.2011 kl. 12:04

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Danmerkurdeild vina Mala sendir sínar innilegustu hamingjuóskir.

Ekkert er meira viðeigandi þessa dagana en að senda myndir af hrjáðum köttum. Ég get alveg gert mér í hugarlund hvað nunnan hefur gert þessum ketti.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 28.6.2011 kl. 05:23

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vilhjálmur þó! Gættu tungu þinnar í Jahve nafni!

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.6.2011 kl. 10:40

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sé á mbl.is, http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/06/30/ovanalegur_junimanudur/

að þú hefur sett Mala í píanótíma. Staccato e pizzicato.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 30.6.2011 kl. 07:19

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mali er orðinn virtúós á píanó og spilar Liszt alveg listavel. Furioso meira að segja.

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.6.2011 kl. 12:18

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og við Mali erum nú alltaf fjarsakalega ábúðarfullir og veðurvitalegir og ekki til að spauga með!

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.6.2011 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband