Höfuðið bitið af skömminni

Ég er ekki í Vantrú, enda maður mjög einfaldur og trúgjarn, og hef reyndar lítið fylgst með kæru Vantrúar gegn Bjarna Randver Sigurvinssyni fyrir Siðanefnd Háskólans. Við lestur þessarar yfirlýsingar starfsmanna Háskólans er ljóst að Siðanefnd skólans gerði mistök í framkomu sinni gegn Bjarna Randver með því að bera ekki ákvörðun sína um sættir undir hann.

En það er jafnframt augljóst að yfirlýsingin tekur að sér að skera úr um það sem Siðanefndin átti að gera en klúðraði:  að meta efnislega réttmæti kvörtunar kærandans. Yfirlýsingin valtar beinlínis yfir kvörtunarefni Vantrúar þó þeir sem að yfirlýsingunni standa hafi ekkert formlegt umboð til þess. Sé ekki betur en að upprunalegu kæruna þurfi að taka upp aftur af til þess bærri siðanefnd en ekki svo og svo mörgum starfsmönnum Háskólans.

Meðferð málsins í heild er ekki sæmandi akademískri stofnun. Það er óþolandi að menn geti ekki leitað réttar sins fyrir síðanefnd einhverrar stofnunar og HÚN ljúki málinu með efnislegum lokadómi með réttri formlegri málsmeðferð án þess að stofnunin öll fari meira og minna að skipta sér að málinu. Yfirlýsing starfsmanna Háskólans er röng málmeðferð og að engu hafandi.

Hún bítur höfuðið af skömminni.       

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þessu.  Ég skora á Vantrú að taka upp kæruna aftur og leyfa málinu að fá eðilega málsmeðferð.  Eftir að hafa skoðað glærurnar gaumgæfilega get ég ekki séð annað en að Vantrúarmenn hafi ýmislegt fyrir sér í þessu máli.  Ef við sæjum sambærilega glærukynningu á t.d. Þjóðkirkjunni þar sem búið væri að týna saman og taka úr samhengi tilvitnanir frá hinum og þessum innan Þjóðkirkjunnar í þeim tilgangi að gera hana tortryggilega þá leyfi ég mér að fullyrða að allt yrði vitlaust.

Arnþór (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 15:36

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég hef enga trú á Vantrú

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.12.2011 kl. 17:37

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta er svona svipað og ef ég kærði lækni á Landsspítalanum fyrir siðanefnd lækna sem myndi klúðra málinu, sem þá er ónýtt og verður að byrja upp á nýtt, en þess í stað kæmi yfirlýsing um kæruefnið frá læknum og hjúkrunarkonum spítatalns, eða ef ég kærði sóknarprest fyrir siðanefnd presta sem klúðraði málinu en í staðinn kæmi yfirlýsing presta og prófasta. Kærandi til siðanefndar, hver sem hann er, á heimtingu á því að fá gildan úrskurð mála sinna af siðanefndinni en ekki einhverjum hópi annarra manna.

Ég myndi hreint ekki sætta mig við þetta ef ég væri kærandinn.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.12.2011 kl. 18:12

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það er ljóst að siðanefnd klúðraði málum illilega. Nú taka 109 starfsmenn HÍ sig til og lýsa Bjarna saklausan. Vantrú segir að þessir 109 hafi gerst sekir um svipuð afglöp og Bjarni var sakaður um. Á vantrú ekki að endurkæra Bjarna fyrir hinni nýju siðanefnd og svo hina 109 fyrir þeirra þátt?

Svanur Gísli Þorkelsson, 13.12.2011 kl. 19:26

5 identicon

Já hvernig væri að taka upp galdrabrennur að nýju og byrja á að reisa 109 staura fyrir framan háskólann og brenna liðið. Ég meina, það er jú það sem Vantrúarsnillingarnir vilja.

Böðvar (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 22:05

6 identicon

Hvaða bull er þetta í þér Böðvar. Brenna liðið?

Vantrú sendi inn erindi til siðanefndar. Kennarinn sem um ræðir og stuðningsmenn hans blésu til gagnsóknar og þetta er útkoman.

Það mætti halda að fæstir þeirra sem kema með upphrópanir og kommenta á þetta mál hafi kynnt sér það.

Annars tek ég undir þessa bloggfærslu Sigurður.

Einar (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 22:15

7 identicon

Ég vil minna á að Vantrú dró kæruna til baka þannig að þeir eiga nú sinn þátt í því að málinu lauk ekki með úrskurði Siðanefndar, hvað sem hennar klúðri líður.

Bergur Ísleifsson (IP-tala skráð) 14.12.2011 kl. 01:43

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég er alveg ósammála þér, Sigurður í þessu máli, en sammála Pétri Péturssyni í Mbl. um daginn og þessum háskólamönnum öllum. Þú verður að lesa texta þeirra rækilega upp á nýtt, sýnist mér, þér hefur sézt yfir svo augljósa hluti. Og yfirgangur Vantrúar, sem heyktist svo á kærunni og lætur eftir á sem hún sé saklaus af hrikalegum persónumeiðingum, er alveg með endemum. Ég mæli með því að þú kynnir þér vandaða úttekt Helga Ingólfssonar kollega þíns (rithöfundar) og umræðuna á síðu hans hér á Moggabloggi, auk þess að lesa grein dr. Péturs; og ég efa ekki, að svo skarpur maður sem þú fari þá að sjá ljósið í málinu, sem að sönnu er talsvert flókið og vafningasamt.

Jón Valur Jensson, 14.12.2011 kl. 07:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband