Sólríkustu marsmánuðir á Akureyri

Á Akureyri er mars 1996 sá sólríkasti með 154,1 sólarstund en meðaltalið 1961-1990 er 76,7 stundir. Við Mývatn var þó enn meiri sól, 182 klukkustundir. Alls staðar var sólríkt. Þetta var hlýr mánuður og snjóléttur. Snjólag var 29%  Hitinn var tvö og hálft stig yfir meðallagi á landinu og sjaldan því vant í mars var hann hálfu stigi meiri á Akureyri en í Reykjavík og hafa aðeins sjö marsmánuðir verið hlýrri á Akureyri en 13 á landinu frá 1866. Úrkoman var rétt yfir meðallagi á landinu en mjög þurrt var víða á norðausturlandi og er þetta þurrasti mars sem mælst hefur í Grímsey, 4,8 mm, Tjörn í Svarfaðardal,1,2 mm, Lerkihlíð í Fnjóskadal, 4,3 mm, Mýri í Bárðardal,0,4 mm, Sandi, 1,7 mm,  Staðarhóli í Aðaldal, 4,7 mm og á Grímsstöðum á Fjöllum, 0,4 mm. 

Í þessum mánuði stóðu hinar hatrömmu deilur milli Flóka Kristinssonar sóknarprests í Langholtskirkju og organistans Jóns Stefánssonar. Kúariðan geisaði í Bretlandi og þ. 28.tilkynti enginn annar en Ólafur Ragnar Grímsson um það að hann byði sig fram til forsetakjörs.

Næstur er mars 1965 en þá skein sólin í 124 stundir í höfuðstað norðurlands. Á Reykhólum mældist aldrei sólríkari mars meðan mælt var 1958-1986, 165,6, klukkustundir og heldur ekki á Hallormsstað 1953-1989, 134 stundir.  Þetta var reyndar fyrsti mánuður hafísáranna fyrir alvöru og náði ísinn lengst suður að Berufirði. Kalt var í veðri. Hitinn var tæp tvö stig undir meðallaginu. Svo var þurrt að mánuðurinn er á miðjum topp tíu listanum yfir þurrka. Ekki hefur mælst þurrari mars á Hrauni á Skaga, 5,0 mm,  og við Grímsárvirkjun á austurlandi, 9,1 mm. Í blálokin gerði sjaldgæf hlýindi sem voru mest á suður og vesturlandi. Síðasta daginn komst hitinn í 17,9 stig á Sámsstöðum sem er lang mesti hiti sem mælst hefur á suðurlandi í mars. Fremur snjólétt var í þurrkinum og kuldanum en snjólagið var 42%.

Víetnamstríðið var að hefjast af fullu krafti í þessum mánuði. Fyrsta gervitunglamyndin var Íslandi birtist seint í mánuðinum en nokkru áður var fyrsta geimgangan og Hljómar frá Keflavík gáfu út sína fyrstu hljómplötu. 

Þriðji sólríkasti mars á Akureyri er 1960 þegar sólin skein í 121 stund en þetta er aftur á móti sólarminnsti mars á Hólum í Hornafirði frá 1950, 55,4 stundir. Tíðarfarið var talið afbragðsgott eftir fyrstu vikuna og allt árið sem á eftir fór var mikið gæðaár. Snjólag var 39%, úrkoman var nokkuð yfir meðallag en hitinn var 2,7 stig yfir því. Þann 25. var fyrst haldið upp á alþjóðlega veðurdaginn. Elvis var leystur úr herþjónustu þ. 5 en tveimur dögum áður fór bandaríski landherinn frá Íslandi. Bresk herskip héldu svo úr landhelginni um miðjan mánuðinn. 

Fjórða og fimmta sólríkasta marsmánaðar á Akureyri, 1934 og 1979, hefur áður verið getið hér að framan en þeir voru þeir fimmtu og fjórði  sólríkasti í Reykjavík. 

Mars 1976 er sá sjötti sólarmesti fyrir norðan en þá skein sólin í 110 klukkustundir á Akureyri en á Reykhólum mældist aldrei minni sól í mars, 44 stundir. Hitinn var um eitt og hálft stig yfir meðallagi en úrkoman var feiknarlega mikil á landinu og er þetta næst úrkomusamasti mars á þeim fáu stöðvum sem lengst hafa athugað úrkomu (metið  er mars það sögufræga ár 1918). Á Akureyri sjálfri var úrkoman þó minni en í meðallagi. Mest var úrkoman hins vegar á  Fljótsdalshéraði. Á Skriðuklaustri var hún sjö og hálf meðalúrkoman sem þá var miðað við á Veðurstofunni, 195,1 mm. Ekki hefur þar mælst úrkomusamari mars og ekki heldur á Hallormsstað, 292,6 mm, Grímsárvirkjun, 251,0 mm og  Brú á Jökuldal, 103,7 mm. Hins vegar var met úrkomuleysi á Hólum í Hjaltadal, 6,3 mm og á Vopnafirði, 5,2 mm. Snjólag var 55% á landinu. Þann annan fórst vélbáturinn Hafrún við Reykjanes með 8 mönnum. Lögreglan hélt blaðamannafund um Geirfinnsmálið þ. 24. rétt eftir að herforingjar höfðu tekið völdin í Argentínu.

Árið 1982 voru 110 sólskinsstundir á Akureyri sem gerir mánuðinn þann sjöunda sólríkasta. Alls staðar var nokkuð sólríkt. Hitinn á landinu var hálft stig yfir meðallagi en úrkoman mátti heita í meðallagi. Eins og í mars 1976 var úrkoman tiltölulega mest á Fljótsdalshéraði, þrjú og hálf meðalúrkoma á Hallormsstað. Snjólagið var 69% og er þetta eini marsmánuðurinn af þeim tíu sólríkustu á Akureyri sem snjólag á landinu var yfir meðallaginu 1961-1990.  

Mars 2005 er sá áttundi sólríkasti á Akureyri með 109 sólarstundir. Landshitinn var mjög svipaður og 1960 en úrkoman miklu minni og náði aðeins meðallagi á stöku stað. Mjög snjólétt var, 23%,  sem gerir mánuðinn  fjórða snjóléttasta mars frá 1924 á eftir 1929, 1964 og 1963,  en árin 2003 og 2004 var snjólagsprósentan 24 og 25%. Þrír snjóléttir marsar í röð! Í lok mánaðarins kom Bobby Fischer til landsins sem íslenskur ríkisborgari en um miðjan mánuðinn hélt stórsöngvarinn Placido Domingo tónleika í Egilshöll.     

Níundi sólarmesti mars á Akureyri er 1928 þegar sólin skein í 109 klukkustundir en 130 í Reykjavík. Hitinn á landinu var heilt stig yfir meðallagi en úrkoman kringum meðallagið. Hægviðrasamt var og snjólítið. Sjólagstalan var 39%. Þann 17. Fórst bátur frá Vogum með sex mönnum. Síðasta dag mánaðarins hóf vikublaðið Fálkinn göngu sína og var mjög vinsælt næstu áratugina.

Neðst á topp tíu listanum yfir sólríkustu marsmánuði á Akureyri er svo árið 1974 en þá voru sólarstundirnar  þar 106 en aðeins 65 í Reykjavík. Þetta er hlýjasti mars á landinu af þeim tíu sólríkustu á Akureyri og var hitinn um 3,8 stig yfir meðallagi sem gerir hann að sjöunda hlýjasta mars en fimmta hlýjasta á Akureyri sjálfri. Úrkoman var næstum því eins mikil og 1976 og er þetta þar með þriðji úrkomumesti mars á landinu ef miðað er aðeins við þær örfáu stöðvar sem allra lengst hafa mælt úrkomu.  Á nokkrum stöðvum voru þó sett þurrkamet í mars, Skeiðsfossvirkjun í Fljótum, 24,9 mm, Reykjahlíð við Mývatn, 0,2 mm  og á Mánárbakka, 2,3 mm. Úrkomumet  komu aftur á móti í Stóra-Botni í Hvalfirði,298,2 mm, Hamraendum í  Dölum,141,1, mm, Mjólkárvirkjun, 248,1 mm, Þingvöllum, 280 mm og Hveravöllum, 160,9 mm.  Snjólag var 33% á landinu. Á eftir þessum mánuði kom svo hlýjasti apríl sem mælst hefur og hafði það jafnframt af að vera sá sólarminnsti í Reykjavík.

Þann þriðja fórst þota við París með 346 manns og var það þá mannskæðasta flugslys sögunnar en þ. 21 hófst undirskriftarsöfnun Varins lands um það að varnarliðinu væri ekki vikið úr landi.  

Meðalhiti tíu sólríkustu marsmánuðir á Akureyri er -0,2 stig eða heilt stig yfir meðallagi marsmánaða 1961-1990 en 0,1 yfir meðallaginu 1931-1960. Í Reykjavík er meðalhiti tíu sólríkustu mánaðanna -1,2 stig, nákvæmlega heilu stigi kaldari en samsvarandi mánuðir á Akureyri og 1,6 undir meðallaginu 1961-1990 en 2,6 undir meðallaginu 1931-1960.              

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband