Enn hlýtt en hvassara

Í gær komst hitinn á landinu í tuttugu stig eða meira á einum fimm veðurstöðvum. Mest á mönnuðu stöðinni á Skjaldþingsstöðum, 21,6 stig en 20,0 á mönnuðu stöðinni á Sauðanesvita og á sjálfvirku stöðvunum á Ólafsfirði og Siglufirði. Á Akureyri hefur hitinn ekki náð tuttugu stigum þessa hlýju daga en þó mjög nærri því. 

Það hefur ekki bara verið hlýtt norðaustan og austanlands heldur einnig ananrs staðar og sólahringsmeðaltal hita verið vel hátt alls staðar á landinu.

Úrkoman í Reykjavík þessa tíu daga er 32,2 mm sem er reyndar 2,2 mm undir meðaltali þessara daga á öldinni. Þar hefur því ekki verið mikil útkomutíð venju fremur og aðeins óveruleg fyrstu daga mánaðarins. Mest úrkoma hefur verið vestast á landinu en fremur lítil á suðurlandi og mjög lítil á norður og austurlandi og á Vestfjörðum. 

Sólin hefur hins vegar lítið látið sjá sig á suðvesturlandi enda ananrs ekki að vænta í þessu veðurlagi. 

Síðustu þrír dagar hafa verið þeir hlýjustu á landinu sam komið hafa í sumar að meðaltali og ekki mælst meiri hámarkshiti en í fyrradag. Þessir dagar eru ekki bara hlýir miðað við september heldur líka vel hlýir miðað við hásumardaga. Það er því mjög sterkur sumarblær á veðrinu. Jú,jú,það er þungt yfir sunnanlands og nokkuð úrkomusamt vestast á landinu en svo myndi líka vera ef sams konar veðurlag hefði komið um miðjan júlí. Það er bara einkenni þessa veðurlags sem núna er að haga sér svona á hvaða árstíð sem er. Það er ekkert dæmigert haustástand við þetta eins og sumir eru þó farnir að kalla það. En bráðum verður farið að tala um það sem haustveður (er reyndar þegar byrjað) ef rignir og blæs dálítið fyrri hluta sumars eða kemur kuldakast þá. "Það haustar óvenju snemma í ár" er verið að segja í júní í skammvinnu kuldakasti og svo áfram. Það er eins og sumir geti ómögulega ímyndað sér að veðurlag sem hefur ríkt í einhvern tíma, til dæmis í eina viku eða einn mánuð, snemma sumars  eða miðsumars, geti breyst all verulega þegar á líður.  -

Gat ekki stillt mig um þetta tuð eftir að hafa fylgst með athugasemdum á íslenksum veðursíðum síðustu tvö árin! 

September á það til að vera breytilegri en mánuðurnir júní til ágúst hvað hita snertir. Stundum er hann ágæutr sumarauki en stundum ekki. Hann er samt óumdeilanlega fjórði hlýjasti mánuður ársins að meðaltali og alla jafna finnst mér mjög ákveðið að telja beri hann sumarmánuð en ekki haustmánuð. Hann getur auðvitað brugðist afleitlega eins og aðrir sumarmánuðir (svo sem júli núna fyrir norðan). Og hann  kólnar vitaskuld jafnt og þétt allan mánuðinn. En september er miklu hlýrri í heild en október sem ég tel fyrsta raunverulegan haustmánuðinn og september er miklu líkari næstu þremur mánuðum á undan heldur en otóber. September er svo sem ekki mikið kaldari en júní á landinu og við austurtröndina er sáralitill munur á hita júni og september. 

Orðið "haustlægð" er á seinni árum illilega ofnotað. Það er meira að segja farið að nota það um lægðir af dýpra tagi með nokkurri úkomu í júlí og það má heita regla um slíkar lægðir ef þær láta á sér kræla eftir að komið er fram í ágúst eða byrjun september. Reyndar er orðið "haustlægð" álíka ónotæft og orðið "páskahret". Mestanpart meiningarlaust. Nær væri að tala bara um óvenju djúpa lægð eftir árstíma (sem alltaf hljóta að koma annað slagið að sumri) eða bara lægðir og tilgreina dýptina ef hún er eitthvað verulega spes. En nú er farið að kalla lægðasyrpur sem koma í ágúst eða senmma í september sem haustlægðir, haustlægðir, haustlægðir, haustlægðir, bara ef þær koma nokkrar hver á eftir annarri en það finnst lægðum einmitt sérlega gaman að gera.

Það er eins og sé bannað að tala bara um heiðarlegar lægðir. Allar þurfa þær að vera "haustlægðir".  

Og nú er bara að sjá hvort núverandi veðurlag haldi bara ekki áfram og áfram og áfram. Allt til krossmessu á vori!

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það sem gerir september m.a. að sumarmánuði en ekki haustmánuði er að þá er 20 stiga hiti eða meira einhves staðar á landinu nokkuð algengur (meðaltal hámarkshita á landinu í september síðustu hálfa öldima er yfir 20 stigum) en sárasjaldgæfur í október þó slíkt komi þá fyrir. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.9.2015 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband