Enn hlýrra í dag fyrir austan en í gær

Hitinn í dag fór í 24,1 stig á Seyðisfirði. Það er reyndar mesti hiti sem mælst hefur á landinu þennan mánaðardag frá stofnun Veðurstofunnar 1920. En meiri hiti hefur þó mælst nokkrum sinnum nærri þessari dagsetningu, bæði fyrir og eftir. Mesti hiti sem mælst hefur á Íslandi í september er 26,0 á Dalatanga þann 12. árið 1949.

Í dag mældist hitinn 23,3 stig á mönnuðu stöðinni á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði, 23,2 í Neskaupstað og 22,2 stig á mönnuðu stöðinni á Miðfjarðarnesi. Þetta er mesti septemberhiti sem mælst hefur á Skjaldþingsstöðum síðan stöðin byrjaði 1994. Meiri septemberhiti hafði áður mælst í Vopnafjarðarkauptúni. 

Á Raufarhöfn fór hitinn í 21,7 stig á sjálfvirku stöðinni en á mönnuðu stöðinni þann 12. september 1949 mældust 22,0 stig. 

Hitinn í dag er því aðeins einu þrepi eða svo neðar en það mesta sem mælst hefur á norðausturlandi í september. Skilyrði voru í háloftunum fyrir enn meiri hita en mældist en sjaldan skila slík skilyrði sér fyllilega niður við jörð.

Ekki er þó hægt að segja annað en þetta hafi verið vel heppnaður dagur norðaustanlands. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurdur. Eg er i Pollandi og gaman ad segja fra tvi ad nu er kuldakast her og hiti undir 15 gradum. Hædin yfir Bretlandi stjornar ta vedrinu a Islandi og Pollandi. Um helgina a ad hlyna eitthvad.

Rafn Benediktsson (IP-tala skráð) 8.9.2015 kl. 09:12

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Gaman að heyra frá þér Rabbi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.9.2015 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband