Sumarsnjór á suðurlandi

Það kom mörgum á óvart að jörð hvítnaði af snjó á suðurlandi í gærmorgun. Jafnvel á Rjúpnahæð við Reykjavík í 120 metra hæð. Ef til vill hefur þá verið hvítt líka efst í Breiðholtinu. Maður nokkur sagði mér að grátt hafi verið í rót í Fífuhvammi í Kóapvogi.     

Þó kuldaköst séu algeng um allt land á þessum árstíma er það samt sem áður sjaldgæft að snjór liggi á jörðu fyrir sunnan svo síðla í maí.

Ég held að það hafi síðast gerst árið 1979 í kaldasta maí sem mælst hefur á Íslandi frá upphafi mælinga. Þá var alhvít jörð á Þingvöllum 25. maí og á Búrfelli 23. 

Árið 1971 var snjór 27. maí á Þingvöllum og Laugardælum  og 23. á Vegatungu, Hæli og Búrfelli. 

Í Vegatungu var jörð hvit 31. maí 1970.

Í síðustu viku maí  1949 kom mikið kuldakast. Svo segir í Veðráttunni:

"23.-31.Mátti heita vetrarríki um allt land … Linnulaus hríðarveður voru á Norðurlandi og suma dagana var einnig nokkur snjókoma sunnanlands. Vindur var norðlægur eða norðaustlægur og oft hvass … .

Í Vestmannaeyjum var snjódýptin 20 cm 21. maí og þá var líka alhvítt á Sámsstöðum. Vorkuldunum 1949 linnti ekki fyrr en eftir miðjan júní en þá kom sérlega öflug hitabylgja. Óneitanlega miklir öfgar í veðurfari. Gróðurhúsáhrifin?!!

Síðasta dag maímánaðar árið 1936 mældist snjódýpt 1 cm á Kirkjubæjarklaustri. 

En mest bizarre af öllu: 2. júní 1952 var snjódýptin á Stórhöfða í Vestmannaeyjum 2 cm.  

Það getur verið á allra seinustu árum, að snjór hafi verið á jörðu eftir 20. maí á suðurlandi en ég hef ekki óyggjandi gögn um það. Ég held samt ekki.

 Síðast hefur verið talin alhvít jörð kl. 9 í Reykjavík að vori 16. maí árið 1979.

1949-05-27_12

Á hádegi 27. maí 1949 var snjókomu getið bara sisvona í veðurathugun í Reykjavík í tveggja stiga hita.    

Snjóhula er metin og dýptin mæld klukkan 9 að morgni og það er vel þekkt að snjór hafi verið á jörðu syðra seint í maí og einstaka sinnum langt fram eftir júnímánuði en hefur verið horfin fyrir sólaryl klukkan níu á suðurlandi. Í Reykjavík var vitað um snjó í efri borgarhverfum í júní t.d. í hvítasunnuhretinu 1992. Hér er tekið (traustataki nátturlega) úr bók Trausta Jónssonar "Veður í Íslandi í 100 ár": "Efst í Árnessýslu og Borgarfirði er vitað um snjó jafnvel í júlí. Á þeim stöðum eru líka til dæmi um snjó að nóttu í ágúst. ... Fram eftir sumri 1866 var tíðarfar mjög óvenjulegt og þá snjóaði í júlíbyrjun um stóran hluta Suður-og Vesturlands, en ekki er ljóst hvort althvítt varð þá í Reykjavík."

Í veðráttunni 1947 er sagt að snjóað hafi niður undir byggð 7. júlí á Þingvöllum. Sagt er að líka hafi hafi snjóað á Þingvöllum  10.  júlí 1970 þegar Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, kona hans og dóttursonur fórust í bruna þar. Þá var "norðan hávaðarok, föl á jörðu og grátt í fjöllum", segir Morgunblaðið 11. júlí. Sveinn Pálsson landlæknir mun geta þess í dagbók sinni að alhvítt hafi verið á Kjalarnesi niður að fjallsrótum 19. júlí árið 1801.   

Ég hef víst verið óþarflega bjartsýnn þegar ég spáði "rigningasumrinu mikla" 2007. Nú skal úr því snarlega bætt með viðeigandi raunsæi: Það verður auðvitað "snjóasumarið mikla" 2007!   

En ég verð í sól og sumri á Krít. Tounge

     

   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Jæja mikið var að maður fær náðarsamlegast að kvitta fyrir sig hérna.
Það kemur mér annars lítið á óvart að jörðin hafa hvítnað af snjónum. Frekar hefði verið fréttnæmt ef hún hefði blánað af snjó.
Þetta þykir mér nú léleg fréttamennska.

gerður rósa gunnarsdóttir, 22.5.2007 kl. 18:08

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fréttin er að það hafi snjóað svona seint  ansinn yðar!

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.5.2007 kl. 18:16

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ætli sumar og vetur snjói ekki saman?

Svava frá Strandbergi , 22.5.2007 kl. 19:09

4 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Já en þú undirstrikaðir sérstaklega hvítnaði af snjónum. Hvað á maður að halda?

gerður rósa gunnarsdóttir, 22.5.2007 kl. 19:21

5 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Og hvað er frúfröken Strandberg að gera hér með köttinn sinn? Átt þú ekki að vera á djamminu góa?? Og í sólbaði? Eða er kannski allt grænt af snjó þar líka?

gerður rósa gunnarsdóttir, 22.5.2007 kl. 19:32

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já zoa það er nú stóra spurningin, hvað Fr. Strandberg sé að gera hér?
Hjá mér er bara allt í grænum sjó en ekki grænum snjó .
Ég komst ekki í þessa draumaferð  eftir allt saman, þar sem ég fékk á síðustu stundu svo hrottalega í mitt kalkaða bak að ég mátti mig hvergi hræra.
Ég lá bara í rúminu eins og skata og hámaði í mig parkódín forte eins og það væri M&M nammikúlur.
Svona fór um flugferð þá og peningarnir mínir fljúga eins og hvítu fiðrildin fyrir utan gluggann.
Vona samt að ég nái að veiða þá með veikindavottorði frá lækninum mínum.
 

Svava frá Strandbergi , 23.5.2007 kl. 01:27

7 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Skrítið að þú minnist á M&M því ég var einmitt að klára einn poka :)
En þetta er greinilega guðleg forsjón. Þú átt greinilega að koma hingað í staðinn ;)
Íbúðin við hliðina á er laus frá 14. júlí til e.t.v. 22. sept. (Nema ákveðinn maður neiti að fara.) Leiguverði er stillt afskaplega mikið í hóf. Eiginlega bara brandari. Láttu mig vita ef ég á að panta pláss fyrir þig. Við gætum þá verið bakveikar saman. Annars er girðingarvinna allra bakmeina bót. Er aldrei betri í bakinu en þegar ég er að negla niður girðingarstaura. Set þig kannski í svoleiðis í lækningaskyni.

gerður rósa gunnarsdóttir, 23.5.2007 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband