Mesta hitabylgjan í maí

Mesta hitabylgja sem komið hefur á Íslandi í maí sem mælingar ná yfir var 1987. Þá fór hiti yfir tuttugu stig 8 daga í röð sem er alveg einsdæmi í þessum mánuði og hlýjasta daginn hafa aldrei hlutfallslega fleiri veðurstöðvar mælt tuttugu stiga hita eða meira í maí. Og aldrei hafa jafn margar veðurstöðvar mælt tuttugu stiga hita í sömu hitabylgju í maí þegar allir hitabylgjudagarnir eru teknir saman. Mannaðar veðurstöðvar í þessum mánuði voru 80 og þar af mældu 37 stöðvar tuttugu stiga hita. Og 21 veðurstöð  mældu mesta hita í maí sem þær hafa mælt en reyndar með mislanga mælingasögu.

Það mældist sem sagt tuttugu stiga hiti eða meira einhvers staðar á landinu dagana 20.-27. Mikið háþrýstisvæði réð þá veðurlagi á landinu. Það var í fyrstu fyrir sunnan land, í grennd við Azoreyjar en hlýtt loft tók að berast yfir landið þann 19. þó hiti næði þá hvergi 20 stigum. Miðvikudaginn 20. maí náði hitinn tuttugu stiga markinu á aðeins fimm veðurstöðvum, á norðaustur og suðausturlandi, mest 22,4 stig á Vopnafirði, eða á 6,2 af hundraði stöðva og er ekki hægt að kalla daginn neinn hitabylgjudag út af fyrir sig. En þetta var nú bara upptakturinn að mestu hitabylgju alls mælingatímans eftir árstíma. Sólarlaust var þennan dag á suður og vesturlandi en bjart annars staðar.

Næsta dag (21.) hafði alvöru hitabylgja tekið völdin með slíkum glæsibrag að 25 af hundraði veðurstöðva (hundraðstalan kallast hitabylgjuvísitala, eða bara hitabylgjutala og er hugmynd Trausta Jónssonar veðurfræðings) voru með tuttugu stiga hita eða meira og hafa aldrei verið jafn margar nokkurn dag í maí nema þann 26. árið 1992 þegar þær voru jafn margar. Er þessi dagur (ásamt 27. maí 1992) í 176 sæti yfir mestu hitabylgjudaga sem komið hafa á  lista sem ég hef gert yfir alla daga þegar hiti hefur náð 20 stigum einhvers staðar á landinu frá stofnun Veðurstofunnar 1920 (2443 dagar eru á listanum) og eru þetta einu maídagarnir sem ná 25%. En 21. maí 1987 varð hlýjast 23,3 í Vopnafjarðarkauptúni og 23,0 á Hallormsstað, en 20 stig mældust allt frá Skagafirði austur og suður um að Kirkjubæjarklaustri. Hitamet í maí voru sett á Seyðisfirði, 21,4 stig, Neskaupstað 21,2 og á Fagurhólsmýri 22,3 stig. Og auk þess á þeim arma stað Kambanesi, 20,2 glæsistig! Sólarhringsmeðalhitinn var 17,0° á Akureyri en hámarkið 20,1 stig. Og er þetta hlýjasti maídagur að meðalhita sem mælst hefur á Akureyri í maí síðan 1938 og dagurinn á undan var reyndar með dagsmet, 15,2 stig, og svo líka dagsmet fyrir hámarkshita þó hann væri ekki meiri  en 19,0°. Meðalhiti á landinu þann 21. var 11,38, stig og var sá hæsti í bylgjunni. Það er 7. hlýjaseti maídagur sem mælst hefur á landinu. Glaðasólskin var á öllu norður og austurlandi og á hálendinu og þó nokkuð  sólfar var einnig á suðurlandsundirlendi og í Reykjavík en þoka var víða við sjóinn syðra og vestra. Loftþrýstingur mældist sá mesti í  mánuðinum þennan dag, 1037,2 hPa á Stórhöfða í Vestmannaeyjum.

1987-05-22_12_1282563.gifDaginn eftir (22.)var hitabylgjuvísitalan 16,2%.  Landsmeðalhiti var 10,97 stig en meðaltal hámarkshita 16,04,það hæsta í hitabylgjunni. Hlýjast varð 23,5 stig í Birkihlíð í Skriðdal og eins og daginn áður var tuttugu stiga hiti frá Skagafirði og austur og suður um allt að Norðurhjáleigu í Álftaveri. Nú skein sól glatt í heiði nær alls staðar en þó var þokuloft við Vestmanneyjar.Sólarhringsmeðalthitinn á Kirkjubæjarklaustri var 16,8 stig sem er met fyrir allan maí og einnig hámarkshitinn 21,5 stig. Þá mældist mesti hitinn á Vestfjörðum í þessari hitabylgju, 18,2 stig í Æðey. Kortið til vinstri sýnir sólina og hitann á hádegi þennan dag og  stækkar ef smellt er á það. Útreiknuð þykkt yfir landinu kl. 18 var 5599 metrar sem er sú mesta sem reiknuð hefur verið á nokkrum maídegi. Þykkt lofthjúpsins milli 1000 hPa flatarins, sem er oftast mjög nærri sjávarmáli, og 500 hPa flatarins, sem er í um 5,5 km hæð á sumrin,er í rauninni hitamælir á hita loftsins sem er yfir landinu,segja háloftavitringar, því meiri þykkt því hlýrra loft, en ekki er alltaf víst að hiti við jörð endurspegli algjörlega þá  hitamöguleika uppi eru. En ekki koma hitabylgjur nema hlýtt loft í eðli sínu sé yfir landinu. Sólin hjálpar til og hagstæðir vindar sem ekki blása af hafi. Um þetta og margt fleira æsi spennandi má lesa í greinargerðinni Langtímasveiflur V Hitabylgjur og hlýir dagar eftir Trausta Jónsson veðurfræðing frá 2003. Skilgreining á hitabylgjum getur vísast verið ýmis konar en hann miðar við að hitabylgja sé þegar 10% veðurstöðva ná því að mæla 20 stiga hita. Reyndar finnst mér þetta vera of væg mörk fyrir alvöru hitabylgju á hásumri en viðunandi fyrir maímánuð. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur lika fjallað um hitabylgjuspursmálið. Kannski segi ég eitthvað seinna um málið af mínu litla veðurviti!

Það sem olli þessari óvenjulegu hitabyltgjju var mikill háloftahæð af hlýju loft sem kom sunnan að en  settist beinlínis að í nágrenni landsins og færðist jafnvel enn í aukana þar. Oft var hægviðri og  nær engin úrkoma, engar hvassar og hlýjar sunnanáttir með rigningu sunnanlands og vestan en hiti rauk upp þar sem hafloft hélt sog fjarri.  Allar lægðir voru víðs fjarri. Kortið sýnir hlýja hóllinn eins og hann var síðdegis þ. 21. og stækkar ef á það er smellt. Brúni liturinn sýnir mikil hlýindi, alvöru sumarhlýindi, á austanverðu landinu.  

era-i_gh500_gh500-1000_1987052112_06_1282565.png

           

 

 

 

 

 

 

Næstu tvo daga (23. og 24.) var hæðin að fikra sig í austur og hitabylgjutalan féll niður í 10,0%, Báða dagana mældust 20 stig á stöðvum, frá Eyjafirði og austur á Fljótsdalshérað, mest 22,2 stig á Dratthalastöðum á Úthéraði fyrri daginn, en 23,0 þann seinni á Egilsstöðum. Fyrri daginn var víðast hvar bjart og var hann reyndar sólríkasti dagurinn í syrpunni í Reykjavík þar sem sólin skein frá morgni til kvölds. Ekki var þó hitanum þar fyrir að fara og fór hann ekki hærra en í 11,7 stig enda hafloft allsráðandi. Seinni daginn var víðast hvar skýjað á suður og vesturlandi en sól annars staðar.   

rrea00219870526.gifNæstu tvo daga (25. og 26.) færðist hitabylgjan aftur í aukana og voru þeir báðir með hitabylgjutölu upp á 13,7%.En þann 25. var áttin farin að snúa sér til austurs enda var háloftahæðin komin austur fyrir og tóku þá stöðvar á suður og vesturlandi við sér í landáttinni með tuttugu stiga hita en nokkuð kólnaði fyrir norðan og austan og gerði þoka þar vart við sig við strendur. Hitinn fór 20 stig eða meira á Hellu, Sámsstöðum í Fljótshlíð, Hvanneyri og á Hamraendum í Stafholtstungum og Hamraendum í  Dölum. Á síðastnefnda staðnum fór hitinn í 22,0 stig sem er mesti maíhiti sem mælst hefur á svæðinu. Hlýjast á landinu var hins vegar í Reykjahlíð við Mývatn 23,3 stig. Glaða sólskin var nánast alls staðar og í Reykjavík mældist mesti hitinn í þessari syrpu. 18,0 stig í heilmikilli sól. Þótti mönnum þetta góður dagur í höfuðborginni. Þennan dag varð einnig mesti hiti mánaðarins í Vestmannaeyjum, en þó aðeins 10,6 stig!  Kortið sýnir hitann í 850 hPa fletinum í um 1500 metra hæð daginn sem hlýjast varð á suður og vesturlandi. Það stækkar við laufléttan smell.           

Þann 26. í suðaustanátt tók norðausturland aftur völdin í hitanum, reyndar ásamt Hólum í Hjaltadal þar sem kom maímet, 21,2 stig. Og þennan dag  mældist mesti hiti á landinu í allri bylgjunni, 24,0 stig á Mánárbakka á Tjörnesi. Ekki endilega líklegasti metstaðurinn í maí en þetta er maíhitamet þar og líka var met á Húsavík,23,5°stig. Þá mældist mesti hiti í hitabylgjunni á norðurlandi, vestan Skagafjarðar, 19,3 stig á Barkarstöðum, inni í dalnum í Miðfirði og met maíhiti mældist i Grímsey,19,2°.  

Úrkoma var hverfandi á suður og vesturlandi meðan hitavylgjan stóð yfir en  mátti heita engin annars staðar. Mjög víða var léttskýjað svo leitun er á dögum yfirleitt sem jafn mikið sólskin hefur mælst jafn marga daga í röð. Oft var þó þoka við stendur, einna mestar við suður og vesturströndina.    

Eftirhreytur hitabylgjunnar voru svo þann 27. Hæðarmiðjan var þá komin norðaustur í haf en enn þá var nokkuð hlýtt loft yfir landinu. Þá mældu þrjár stöðvar á norðausturlandi tuttugu stiga hita eða meira, mest Dratthalastaðir, 21,4 stig.

Í þessari hitabylgju fór hitinn í Reykjahlíð við Mývatn sjö daga í röð í 20 stig eða meira, dagana 21.-27. og sex daga í Lerkihlíð í Vaglaskógi. Þetta er algert einsdæmi með veðurstöðvar í maí.   

Þann 28. var tuttugu stiga veislan búin og veður fór kólnandi á landinu en víða var samt enn þá bjart og fremur hlýtt þó engir væru tuttugu stiga hitarnir. Hlýjast varð 19,4 stig á Búrfelli, sem er reyndar mesti hiti þar í maí meðan stöðin var mönnuð, og á Hveravöllum mældist mesti hitinn þar í mánuðinum, 14,0 stig. Hitinn náði sér aldrei almennilega á strik á Hveravöllum enda var þar ekki enn orðið snjólaust. Hins vegar mældi stöðin á Hveravöllum meira en 10 klukkustunda sólskin alla dagana frá 20. maí til mánaðarloka og léku engar aðrar sólskinsmælistöðvar það eftir henni.

Þessi hitabylgja 1987 var með lengstu samfellda röð 20 stiga daga á landinu í maí og fór víða um landið.Auk þess skartar hún deginum með mestan fjölda tuttugu stiga hita á veðurstöðum. Hún má teljast sér á parti.

Meðan hlýindin voru hér sem mest voru kuldar og rigningar í V-Evrópu svo hitinn náði varla tíu stigum sums staðar um hádaginn. Menn mega alveg muna að hitar og kuldar slá sér mismunandi niður á sama tíma á jarðarkringlunni og það á stöðuðm sem nálægt hverjum öðrum liggja.   

Á fylgiskjalinu má sjá allar þær stöðvar sem mældu 20 stiga hita eða meira dagana 20.-27. mai 1987, hve þær voru margar og hve margar af hundraði. Á blað síðu 2 er skrá yfir öll maíhitamet sem enn standa frá þessari hitabylgju og einnig sést landsmeðalhiti hvers dags og meðaltal hámarkshita og dagsmeðaltal miðað við 1961-2000. Sömuleiðis sólskin á öllum sólskinsmælingarstöðvum þessa dæmalausu sólríku og hlýju maídaga.

Myndirnar eru frá amerísku endurgreiningunni og af brunni Veðurstofunnar. Talsvert hefur verið stuðst i textanum við Veðrátttuna, mánaðarrit Veðurstofunnar.  Frá Veðursetofunni koma líka hvaða stöðvar mældu 20 stig og hvaða dag og meðalhiti hvers dags. En hitabylgjutölurnar hef ég reiknað sjálfur út frá fjölda allra stöðva sem daglega mældu 20 stig eða meira, skeytastöðvum og svokölluðu veðurfarsstöðvum, sem þá voru enn við lýði.

Þessi pistill, sem reyndar er endurvinnska eldri pistils, átti að birtast 21. maí, þann mánaðardag sem hitabylgjan 1987 var mest,  en vegna tölvubilunar hefur biringin dregist og kannski valdið einhverjum ruglingi að auki sem við þessar aðstæður er erfitt við að eiga. Ætlunin er á þessari síðu að víkja seinna að nokkrum merkustu sumarhitabylgjum og má líta á nokkrar maíbylgjur sem forleik að þeim alvöru hitabylgjum! 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband