28.5.2018 | 10:03
Hitabylgjan í maí 1992
Kortið, frá Brunni Veðurstofunnar, sýnir þykkt og hæð 500 hPa flatarins yfir landinu 26. maí en þykktin, sem sýnd er í litum, er mælikvarði á hita loftsins. Því gulari og brúnni litur því hlýrra. Hlý háloftahæð er yfir Norðurlöndum og teygja hlýindin sig til austurlands en lægðarsvæði er við Grænland og lægð suður í höfum. Kortið stækkar ef smellt er á það. Þessi bylgja, hvað yfir 20 stiga hita varðar, var bundin við norðaustanvert landið en tuttugu stiga hiti mældist aðeins á svæðinu frá Hrauni á Skaga og Dalsmynni í Viðvíkujrsveit austur og suður um til Neskaupstaðar. Á Hrauni kom reyndar maímet, 20,6 stig þ. 26. Bylgjan var ekki þurr eins og 1987 heldur mældist umtalsverð rigning sum staðar á suður og vesturlandi þá daga sem hún stóð yfir en þurrt var yfirleitt fyrir norðan og austan. Mikill munur var á sólskini 1992 og 1987. Í bylgjunni 1987 var einstaklega sólríkt um mest allt land en 1992 var sólarlítið eða sólarlaust á suður og vesturlandi en nokkuð sólfar suma dagana norðanlands og austan en aldrei þó verulega mikið.
Stóra tromp hitabylgjunnar 1992 er mesti hiti í sem mælst hefur á Íslandi í maí, 25,6 stig í Vopnafjarðarkauptúni. Það var fyrsta daginn, 26. maí. Þann dag var víðast hvar úrkomulítið en skýjað en nokkuð sólfar á norðausturlandi inn til landsins. (Þess má geta að þ.25. var víðast hvar sólskin á landinu en engin sérstök hlýindi). Eins og áður segir mældu þá 25 af hundraði veðurstöðva tuttugu stiga hita eða meira. Dagurinn er seinna í almanakinu en sá 21. sem var hámark hitabylgjunnar 1987 og að meðaltali hlýnar um hálft stig á landinu milli 21. og 26. maí. Þennan fyrsta og mesta dag hitabylgjunnar mældist hitinn 25,0 á Raufarhöfn sem er maímet þar og þar skammt frá mældist mesta sólskin á landinu þennan dag, 9,3 klukkustundir. Á Mánárbakka mældist hitinn 23,7 stig, 24,0 á Garði í Kelduhverfi, sem er maímet, 24,0 stig á Sandi í Aðaldal og 22,9 stig á Sauðanesi sem er maímet þau ár sem athugað var. Meðalhitinn á Akureyri var 16,1 stig sem er dægurmet. Landsmeðalhitinn var 11,56 stig, um fimm stig yfir langtíma meðalhita dagsins, en daginn eftir var hann 11,64 stig sem er næst hlýjasti maídagur á landinu frá a.m.k. 1949 en hlýjastur er 3. maí 2017, 12 stig. Hámarkshiti var lægri þann 27. en 26. þó meðaltal sólarhringshita væri hærra og munaði þar mest um mikinn næturhita. Þann 27. mældist enn minna sólskin en daginn áður en Bakkafjörður, þar sem lengi hefur verið mælt, krækti þó í methita í maí, 21,8 stig. Mikil rigning var sums staðar á vesturlandi. Í Húnavatnssýslum kom ekki 20 stiga hiti í þessari hitabylgju en þann 26. Mældust 19,8 stig á Blönduósi, 19,5 í Miðfirði og 18,5 stig í Hrútafirði. Þennan dag var hellirigning á suðausturlandi og hitinn á Kirkjubæjarklaustri komst ekki hærra en í 9,6 stig. Kortið sýnir veðrið á hádegi á landinu 26. maí og er úr safni Veðurstofunnar. Það stækkar við smell.
Næstu tvo daga mældu 15 af hundraði veðurstöðva 20 stiga hita eða meira. Þann 27. var talsverð rigning með köflum sunnanlands og vestan en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Hitinn fór í Vopnafirði í 22,7 stig en var annars víða 21-22 stig norðaustanlands. Þann 28. skein loks talsverð sól á norðaustanverðu landinu og var það eini umtalsverði sólardagurinn í hitabylgjunni en þó aðeins sums staðar á landinu. Hiti komst þá í í 23,5 stig í Vopnafirði og 22,1 á Dratthalastöðum á Úthéraði en var víða um 21 stig á hlýjasta svæðinu. Þetta var reyndar hlýjasti dagurinn á sunnanlands og fór hitinn á suðurlandsundirlendi allvíða í 18-19 stig í skýjuðu veðri.
Síðasti dagurinn í þessari syrpu sem 20 stiga hiti eða meira mældist á landinu var sá 29. þegar þrjár veðurstöðvar á Fljótsdalshéraði mældu hann en allmjög var þá tekið að kólna yfirleitt á landinu. Þá náði hitinn sér einnig best á strik í Skaftafellssýslum þegar 18,0 stig mældust í Álftaveri og 16,4° á Kirkjubæjarklaustri.
Engar hálendar stöðvar í byggð náðu 20 stigum í þessari bylgju nema einn dagur við Mývatn (20,2° þ, 26.), ólíkt því sem var i hitabylgjunni 1987 þegar þar mældust 20 stiga hiti 7 daga í röð. Hitinn fór aldrei hærra en í 8,7 stig á Hveravöllum, þann 29. þegar mesta hitabylgjan var reyndar um garð genginn.
Ráðhúsið í Reykjvik var nýlega vígt og stríðið á Balkanskaga var að brjótast út.
Í fylgiskjalinu er yfirlit yfir tuttugustiga hitamælingar í þessari hitabylgju.
Meginflokkur: Veðurfar | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:54 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Desember 2024
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.