20.9.2007 | 00:56
Viðtal við glæpamann í Kastljósi
Ég skil ekki hvers vegna í ósköpunum Kastljós er að taka langt viðtal við dæmdan glæpamann sem sat í fangelsi í sex og hálft ár fyrir glæpi sína. Hann gerði útlendan banka gjaldþrota. Varla hafa viðskiptavinir bankans, sem þá töpuðu kannski aleigunnni, bara verið ríkisbubbar. Hvað skyldi þessi maður hafa bakað mörgu fólki þjáningar?
Nú er sagt að hann sé hér á landi öðrum til varnaðar.
Bauð einhver honum? Eða fann hann þetta bara upp hjá sjálfum sér að koma og vera okkur víti til varnaðar?
Það sýnir hvað peningadýrkunin er orðin blind að dæmdum glæpamanni sé hér hampað nánast eins og hetju bara af því að hann er fjárglæpamaður. Stórglæpir í fjármálum þykja nánast virðingarverðir. Það er auðvitað ekki sagt hreint út en verkin tala. Viðhöfnin og stimamýktin Í Kastljósi.
Hve nær verður viðtal í Kastljósi við kynferðisglæpamann sem sat inni í sex og hálft ár fyrir glæpi sína?
Já, svona öðrum til varnaðar.
Viðbót: Það er satt og rétt að Neeson hefur afplánað skuld sína við samfélagið. En þrátt fyrir það finnst mér að menn eigi ekki að hagnast á glæpum sínum. Hann fer nú í fyrirlestrarferðir um heiminn og gerir það varla ókeypis. Hér er hann í boði Icebank og Háskóla Reykjavíkur. Hann fær áreiðanlega greitt fyrir fyrirlesturinn. Mér finnst það siðlaust af þessum banka og skólanum að stuðla að því að hann hagnist á glæp sínum á þennan hátt jafnvel þó aðrir geri það. Og óþarfi af Kastljósi að dekra við hann. Það mundu menn skilja ef um kynferðisbrotamann eða morðingja væri að ræða. Yrði það tekið alvarlega ef slíkir menn ferðuðust um heiminn fyrir peninga og þættust gera það í forvarnarskyni? Auðvitað ekki. En fjárglæpir þykja fínnni en aðrir glæpir, eiginlega aðdáunarverðir. Neeson er orðinn frægur fyrirlesari eingöngu vegna afbrotsins sem hann framdi en ekki neins annars.
Peningadýrkun vestrænna samfélaga verður ekki betur lýst.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.12.2008 kl. 19:12 | Facebook
Færsluflokkar
- Allt í plati
- Blogg
- Bloggar
- Bækur
- Efnisyfirlit um veður
- Ég
- Guð sé oss næstur
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hlýustu og köldustu mánuðir
- Íslensk veðurmet
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Mali
- Mannlífið
- Mánaðarvöktun veðurs
- Menning og listir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Veðurfar
- Veður í annálum og öðrum gömlum heimildum
- Veður um allan heim
- Vísindi og fræði
Tenglar
Blogg
Ýmsir vefir
- Gjósandi eldfjöll
- Kantötur Bachs
- Schubert
- Stjörnuskoðun
- Nótnasafnið
- Torfusamtökin
- Lilta-Ávík
- Blogggáttin
- Doctor E
Blogg
Síður
- Sólarminnstu júlímánuðir
- Þíðukaflar að vetrarlagi í Reykjavík
- Jóla og áramótaveðrið frá 1880
- Sólrík sumur og sólarsnauð
- Sólskin á Íslandi
- Hámarkshiti á landinu um verslunarmannahelgina frá 1949 og veðrið í Reykjavík
- Slær júlí hitamet í Reykjavík
- Óvenju hlý júlíbyrjun
- Nokkrir kaldir janúarmánuðir og kuldadagar
- Hret og snjóar í ágúst
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Mars 2023
- Ágúst 2019
- Desember 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Desember 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Athugasemdir
Níundu sporin eru margs konar...
Ásgeir Kristinn Lárusson, 20.9.2007 kl. 06:58
Ég lít í fyrsta lagi þannig á að maðurinn sé búinn að afplána sinn dóm og hafi því staðið skil á gerðum sínum. Í öðru lagi tel ég að fjölmiðlar eigi ekki aðeins að ræða við "virðulega borgara" heldur alla flóru mannlífsins. Drottningarviðtöl ráðherranna eru t.d. orðin nokkuð þreytt og lítt upplýsandi.
Þriðja hliðin á þessu er auðvitað það gagn sem hægt er að hafa af því að hlusta eftir ráðleggingum þeirra sem hafa brotið lögin. Það getur ekki orðið til annars en að hjálpa samfélaginu að skilja hugarheim slíkra manna og aðferðir þeirra. Þannig hjálpar það, t.d. í þessu tilviki, fjármálastofnunum að bæta innra öryggi sitt.
Ég hef séð viðtöl við dæmda barnaníðinga á erlendum sjónvarpsstöðvum. Ég tel að þau viðtöl geti haft bæði almenn og sértæk varnaðaráhrif. Þau almennu eru að almenningur sannfærist um að þessir menn eru til og að þeir vinna kerfisbundið að því að komast yfir börn. Sértæku varnaðaráhrifin eru þau að eftir viðtalið veit almenningur hver hinn tiltekni barnaníðingur er og hvernig hann lítur úr. Þetta veit hann líka og það eru líkur til þess að hann reyni fremur að hemja sig þegar hann veit að hann er þekktur barnaníðingur.
Hreiðar Eiríksson, 20.9.2007 kl. 07:58
Reyndar verð ég líka að viðurkenna að það heillaði mig hvað maðurinn er vel máli farinn, annað en þessi íslensku fjármálaaular. Ég er líka sammála því, var einmitt að hugsa það þegar ég var að skrifa án þes að láta það þó koma fram, að tala eigi við fleiri en "virðulega borgara" og viðtal við dæmdan barnaníðing yrði vissulega fróðlegt, en ég hef samt lúmskan grun um að Kastljós hafi EKKI hugsað svona heldur hafi það verið EÐLI brotsins, fjárglæfrar, sem gerðu mannninn fyrir þeim einhvern veginn að minni glæpamanni en ef brotið hefði verið annars eðlis. Þetta kom fremur út sem flott viðskiptaheimsviðtal fremur en: sjáið þennan hér, hann skal verða oss víti til varnaðar! Þetta fór illa í mig. Og enn spyr ég: Hvers vegna kom hann: Hver bauð honum? Maðurinn frá Portúgal fékk þrjú og háft ár fyrir svívirðilegan glæp, þessi sex og hálft. Hve nær fáum við viðtal við dæmdan nauðgara sem setið hefur inni í sex og hálft ár og ferðast um heiminn sem "víti til varnaðar", ambassador illskunnar. Eins og ég segi: fjárglæfrar á grand skala þykja nánast fínir og það er borinn viss virðing fyrir þeim bófum sem fremja þau, öðrum bófum fremur.
Sigurður Þór Guðjónsson, 20.9.2007 kl. 08:20
Ég upplifði þetta einsog Anna: Þörf áminning.
María Kristjánsdóttir, 20.9.2007 kl. 08:33
Að sitja inni í 5 og 1/2 ár fyrir svona stóran glæp finnst mér vel sloppið, í rauninni engin refsing ef maður miðar við t.d. 10 ár Arons Pálma í Usa.
Skarfurinn, 20.9.2007 kl. 11:23
10 ár Arons Pálma voru fáránleg og ekki eðlilegt að þau séu notuð til viðmiðunar.
Leeson er hins vegar búinn að taka út sinn glæp og tekur nú þátt í forvörnum með fyrirlestrum sínum. Slíkt er algengt meðal þeirra sem verður hált á svellinu.
Það sem hann er að segja er að það sé öruggt að "strákarnir" hrasi í ólgusjó fjármálanna. Þess vegna sé svo mikilvægt að til staðar sé eftirlit til að grípa þá áður en þeir gera mikið af sér. Slíkt öryggisnet var ekki til staðar í hans tilfelli og því fór sem fór.
Sigurður Viktor Úlfarsson, 20.9.2007 kl. 12:01
Sigurður Viktor, ertu að segja að glæponinn sé nú orðinn algjört góðmenni ?
Skarfurinn, 20.9.2007 kl. 12:31
Allt í lagi ég fyrir gef þér bullið Ragnar Örn.
Skarfurinn, 20.9.2007 kl. 16:00
Hvað um Ómar í Þýsk Íslenska - kanski allir búnir að gleyma
Typhoon (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 16:26
Árni Johnsen hefur oft komið í sjónvarpinu í viðtal. Afhverju er ekki röflað yfir því???
eikifr (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 17:59
Það verður nú samt að segjast að barnaníðingar og nauðgarar fá almennt mun minni dóma en fjárglæfra menn. Hér er það litið alverlegri augum að stela peningum eða fremja glæp sem snýr að hagnaði en að myrða barnssálir með misnotkun. Misnotkun á peningum er verri en misnotkun á börnum.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.9.2007 kl. 21:26
Smá leiðrétting, Neeson þessi var dæmdur í 6 1/2 árs fangelsi en var sleppt eftir 4 1/2 ár, ekki að það skipti öllu máli hér, en rétt skal vera rétt.
Skarfurinn, 22.9.2007 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.